Hleð Viðburðir
  • Þessi event er liðinn

Öryggisnámskeið í klifri

Um viðburðinn:

Þjálfun í uppsetningu á klifri og sigi í Öskjuhlíð. Dagskrá byrjar 15:00 við Mjölnishúsið svo þátttakendur verða að gæta þess að mæta tímanlega. Dagskrá lýkur klukkan 17:00.

Námskeiðið kostar 3000 kr aukalega

Farið verður yfir helstu þætti til að hafa í huga og létt fræðsla um búnaðinn svo stjórnendur séu færir um að setja upp, bera ábyrgð á og þekkja hætturnar í slíkri dagskrá.

Eingöngu 10 geta tekið námskeiðið á sama tíma, verði aðsókn nógu mikil verður bætt við öðru námskeiði sama dag klukkan 16 til 18. Annars verður jöfnunarreglu gætt milli útilífsskóla.

Leiðbeinandi er Sif Pétursdóttir skáti, björgunarsveita- og jöklaleiðsögukona

ATHUGIÐ! Þótt þátttakandi skráist á biðlista gæti samt verið að hið sama verði tekið inn á námskeiðið, eins gildir að þótt þátttakandi sé ekki á biðlistanum þá þarf ekki að vera að hið sama komist að á námskeiðinu. Þátttakendum verður tilkynnt hvort þeir komist að á námskeiðinu eða ekki eftir jöfnunarreglu þvert á útilífsskólana.

Klst

Min

Sek

Lykilupplýsingar

Dagsetning:
03/06/2020
Tími
15:00 - 17:00
Aldurshópar:
Róverskátar, Eldri skátar

Staðsetning

Öskjuhlíð