1. Viðburðir
  2. Eldri skátar

Views Navigation

Viðburður Views Navigation

Today

Gilwell 2024 – 1. hluti

Útilífsmiðstöð skáta Úlfljótsvatni Útilífsmiðstöð skáta á Úlfljótsvatni, Grafningsvegur efri, Selfoss, Iceland

Fyrsta helgin í Gilwell leiðtogaþjálfuninni árið 2024 verður haldin helgina 2.-4. febrúar. Gilwell er tilvalið tækifæri fyrir skáta, 20 ára og eldri, að upplifa 10 daga skátaævintýri sem inniheldur leiðtogaþjálfun og uppbyggingu einstaklingsins. Á Gilwell fá þátttakendur að efla og […]

Hinsegin fræðsla – Námskeiðaáætlun ÆV

KFUM og KFUK Holtavegur 28, Reykjavík, Iceland

Á Íslandi og í íþrótta- og æskulýðsfélögum landsins er fjöldi barna og unglinga hinsegin og það er mikilvægt að þau finni fyrir öryggi og vellíðan á sínum vettvangi. Þekking og fræðsla í hinsegin málum er grundvöllur fyrir því að draga […]

Frítt

Þankadagurinn

Þankadagurinn eða World Thinking Day er dagur alþjóðlegrar vináttu þar sem skátar út um allan heim hugsa hlýtt til annarra skáta og senda þakklæti út í heiminn. Haldið hefur verið upp á Þankadaginn á hverju ári síðan 1926. Hugmyndin varð […]

Námskeið um inngildingu og fjölmenningu

Skátamiðstöðin Hraunbær 123, Reykjavík, Reykjavík, Iceland

Skráning til 14. mars
Á námskeiðinu er meðal annars fjallað um fjölmenningarleg samfélög, almennt sem og í íslensku samhengi. Fjallað er um nokkur mikilvæg hugtök, viðhorf og umræðuhefð sem og mismunandi birtingarmyndir fordóma, kynþáttaníðs og mismununar í íþrótta- og æskulýðsstarfi.

Frítt

Verndum þau – Námskeiðaáætlun ÆV

Skátamiðstöðin Hraunbær 123, Reykjavík, Reykjavík, Iceland

Skráning til 20. mars

Það er mikilvægt fyrir alla þá sem starfa með börnum og unglingum að vera meðvitaðir um skyldur sínar og ábyrgð, að geta lesið í vísbendingar um að vanræksla eða ofbeldi, hvort sem það er andlegt, líkamlegt eða kynferðislegt, eigi sér stað og vita hvernig bregðast á við ef slík mál skjóta upp kollinum.

Frítt

Aðalfundur Úlfljótsvatns

Skátamiðstöðin Hraunbær 123, Reykjavík, Reykjavík, Iceland

Kæru skátar, Aðalfundur Útilífsmiðstöðvar skáta á Úlfljótsvatni (ÚSÚ) verður haldinn þriðjudaginn, 2. apríl 2024 kl. 20:00 í sal Skátamiðstöðvarinnar, Hraunbæ 123. Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf. Léttar veitingar verða í boði.

Lagabreytingatillögu kvöld

Á netinu

Miðvikudaginn 3. april kl. 20:00 ætlar stjórn BÍS að bjóða skátum á Íslandi til að hittast á fjarfundi og fara yfir þær lagabreytingatillögur sem á að leggja til kosninga á Skátaþingi 2024. Hægt er að skoða yfirlit yfir lagabreytingatillögurnar á […]

Skátaþing 2024

Sólheimar Sólheimar, Selfoss, Iceland

Skráningafrestur til 29. mars kl 19:00

Skátaþing 2024 fer fram helgina 5.-7. apríl á Sólheimum í Grímsnesi og á Úlfljótsvatni og er skátafélag Sólheima gestgjafi þingsins.

Þingið hefst með stetningu klukkan 19:00 föstudaginn 5. apríl á Sólheimum og lýkur kl. 13:00 sunnudaginn 7. apríl á Úlfljótsvatni. Aðstaðan á Sólheimum opnar kl. 18:00 á föstudag og frá þeim tíma er hægt að fá þinggögn afhent.

9500isk

Vinnuhelgi á Úlfljótsvatni – helgi 2

Útilífsmiðstöð skáta Úlfljótsvatni Útilífsmiðstöð skáta á Úlfljótsvatni, Grafningsvegur efri, Selfoss, Iceland

Undirbúningur fyrir sumarið á Úlfljótsvatni er í fullum gangi og leitum við nú að sjálfboðaliðum sem eru tilbúnir að koma og rétt hjálparhönd á vinnuhelgum hjá okkur. 
Ef þú hefur áhuga getur þú skráð þig á Sportabler til 18. apríl.

Frítt

Sumardagurinn fyrsti

Sumardagurinn fyrsti 2024 er haldinn hátíðlegur fimmtudaginn 25. apríl um land allt og hafa skátar skipulagt og standa að glæsilegum og stórskemmtilegum hátíðarhöldum fyrir börn, ungmenni og fjölskyldur þeirra. Hér má sjá yfirlit yfir viðburði víðsvegar um landið.