1. Viðburðir
  2. Drekaskátar

Views Navigation

Viðburður Views Navigation

Today

Skátasumarið 2023

Útilífsmiðstöð skáta Úlfljótsvatni Útilífsmiðstöð skáta á Úlfljótsvatni, Grafningsvegur efri, Selfoss, Iceland

Hvað er skátasumarið? Skátasumarið er skátamót haldið á Úlfljótsvatni fyrir öll skátafélög á Íslandi og er ætlað dreka-, fálka-, drótt- og rekkaskátum. Sjóræningjaþema verður ríkjandi á mótinu í ár þar sem þátttakendur munu kynnast öðrum sjóræningjum og vinna saman við […]

Skátamiðstöðin 20 ára!

Skátamiðstöðin Hraunbær 123, Reykjavík, Reykjavík, Iceland

Skátafélagið Árbúar, Bandalag íslenskra skáta, Grænir skátar, Skátaland og Skátasamband Reykjavíkur bjóða í 20 ára afmæli Skátamiðstöðvarinnar í Hraunbænum, miðvikudaginn 30.ágúst næstkomandi. Skátamiðstöðin verður 20 ára í ár og að því tilefni ætlum við að slá saman í veislu. Skátamiðstöðin […]

Frítt

Afmæli skátastarfs á Íslandi

Skátarnir á Íslandi fagna 111 ára afmæli þann 2. nóvember, en þann dag árið 1912 var fyrsta skátafélagið stofnað, Skátafélag Reykjavíkur ,,Í Fjósinu" bak við Menntaskólann í Reykjavík. Í fyrra var haldin hátíðarkvöldvaka í samstarfi við Skátasamband Reykjavíkur í Ráðhúsi […]

Frítt

Jólaljósaslóði á Úlfljótsvatn

Útilífsmiðstöð skáta Úlfljótsvatni Útilífsmiðstöð skáta á Úlfljótsvatni, Grafningsvegur efri, Selfoss, Iceland

Við bjóðum ykkur velkomin á Úlfljótsvatn sunnudaginn 17. desember til að fagna aðdraganda jóla, eiga góða og huggulega stund með fjölskyldu, vinum eða skátum, öll eru velkomin. Jólaskógurinn á Úlfljótsvatni geymir lítil ævintýri fyrir unga sem aldna, þar sem við […]

Ungmennaþing 2024

Skátaheimili Eilífsbúa Borgartún 2, Sauðárkrókur, Iceland

Ungmennaþing verður haldið þann 2. - 4. febrúar á Akranesi í skátaheimili Skátafélagsins Akraness, Háholt 24. Ungmennaþingið hefst með setningu kl. 21:30 á föstudegi og lýkur með slitum kl. 13:00 á sunnudegi.  Skráning er opin á skraning.skatarnir.is og verðið er […]

15900kr

Þankadagurinn

Þankadagurinn eða World Thinking Day er dagur alþjóðlegrar vináttu þar sem skátar út um allan heim hugsa hlýtt til annarra skáta og senda þakklæti út í heiminn. Haldið hefur verið upp á Þankadaginn á hverju ári síðan 1926. Hugmyndin varð […]

Drekaskátadagurinn 2024

Hveragerði Hveragerði, Hveragerði

Drekaskátadagurinn er árlegur viðburður fyrir drekaskáta sem fer fram fyrstu helgina í mars ár hvert. Gestgjafar 2024 er skátafélagið Strókur í Hveragerði og þau bjóða drekaskátum Íslands að skella sér í gervi Ninju og koma í heimsókn til sín að […]

Frítt

Aðalfundur Úlfljótsvatns

Skátamiðstöðin Hraunbær 123, Reykjavík, Reykjavík, Iceland

Kæru skátar, Aðalfundur Útilífsmiðstöðvar skáta á Úlfljótsvatni (ÚSÚ) verður haldinn þriðjudaginn, 2. apríl 2024 kl. 20:00 í sal Skátamiðstöðvarinnar, Hraunbæ 123. Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf. Léttar veitingar verða í boði.

Skátaþing 2024

Sólheimar Sólheimar, Selfoss, Iceland

Skráningafrestur til 29. mars kl 19:00

Skátaþing 2024 fer fram helgina 5.-7. apríl á Sólheimum í Grímsnesi og á Úlfljótsvatni og er skátafélag Sólheima gestgjafi þingsins.

Þingið hefst með stetningu klukkan 19:00 föstudaginn 5. apríl á Sólheimum og lýkur kl. 13:00 sunnudaginn 7. apríl á Úlfljótsvatni. Aðstaðan á Sólheimum opnar kl. 18:00 á föstudag og frá þeim tíma er hægt að fá þinggögn afhent.

9500isk

Sumardagurinn fyrsti

Sumardagurinn fyrsti 2024 er haldinn hátíðlegur fimmtudaginn 25. apríl um land allt og hafa skátar skipulagt og standa að glæsilegum og stórskemmtilegum hátíðarhöldum fyrir börn, ungmenni og fjölskyldur þeirra. Hér má sjá yfirlit yfir viðburði víðsvegar um landið.