Umsókn í fararhóp á Agora 2024

Hvað er Agora?

Um er að ræða alþjóðlegan viðburð þar sem róverskátar skipuleggja og keyra viðburð fyrir aðra róverskáta. Viðburðurinn einkennist af því að efla alþjóðleg tengsl milli þáttakenda þar sem að nokkrir fulltrúar frá hverju Evrópulandi eru boðnir til að koma og taka þátt. Megin inntak viðburðarins er að fræðast um og læra um skáta og róverstarf í öðrum löndum.

Hvar og hvenær:

Í ár verður viðburðurinn haldinn í Tjörnarp í Svíþjóð dagana 3.-7. apríl 2024.

Hverjir geta sótt um:

Bandalag íslenskra skáta fær 4 sæti á Agora 2024. Rekka- og róverskátar skráðir í Bandalag íslenskra skáta geta sótt um að vera þátttakandi frá Íslandi með því að fylla út umsóknareyðublaðið hér að neðan. Þátttakendur þurfa að geta tjáð sig um rekka- og róverskátastarf á Íslandi og vera virk, áhugasöm og tilbúin að læra nýjar og mismunandi aðferðir sem nota má í skátastarfi. Mikill kostur er að þátttakendur hafi áhuga á umhverfinu og sjálfbærni. Tungumálið sem notað er á viðburðinum er enska og er því mikilvægt að þátttakendur geti tjáð sig og skilið umræður á ensku.

Verð:

Þátttökugjaldið á Agora 2024 er 100 evrur. Þátttakendur þurfa að greiða flug og ferðakostnað sjálfir en hægt er að sækja um ferðastyrk upp að 200 evrum.

Frekari upplýsingar má finna á heimasíðu Agora. Endilega hafið samband við Alþjóðaráð 

Umsóknarfrestur er til og með 1. mars 2024 og er hægt að sækja um með því að fylla út umsóknareyðublaðið hér að neðan.

Umsækjandi

Viðburður:

Click or drag files to this area to upload. You can upload up to 4 files.
Gögn sem gagnast gætu við ákvörðun umsóknar.
Vinsamlegast hakið við allt sem á við

Skilmálar: