![](https://skatarnir.is/wp-content/uploads/Landnemar-4-uai-258x260.png)
Skátafélagið Landnemar
Háuhlíð 9
105 Reykjavík
Sími: 561-0071
Heimasíða: landnemi.is
Netfang: landnemi@landnemi.is
SKÁTAFÉLAGIÐ LANDNEMAR
Skátafélagið Landnemar er eitt átta skátafélaga í Reykjavík. Starfsvæði félagsins er Gamli Austurbærinn og Hlíðarnar, það afmarkast af Lækjargötu í vestri og Kringlumýrarbraut í austri. Skátafélagið Landnemar býður upp á skátastarf fyrir ungmenni á aldrinum 7 – 25 ára og leggur mikla áherslu á útivist, samfélagsverkefni og náttúruvernd. Í húsnæði félagsins að Háuhlíð 9, 105 Reykjavík, eru fimm fundaherbergi fyrir flokka, lítill (64m2) salur, stórt eldhús, „smiðjur“, skrifstofa og sérstakt foringjaherbergi. Á lóð félagsins er pallur og eldstæði og stutt í Öskjuhlíðina. Félagið á skátaskála, Þrymheim við Skarðsmýrarfjall, þar sem eldri skátarnir fara í útilegur að vetri til. Þá á félagið ýmsan búnað sem nýtist vel í dagskrá og útilegum.
FÉLAGSGJALD:
7.500 kr. fyrir fjölskylduskáta
47.500 kr ársgjald fyrir dreka-, fálka-, drótt- og rekkaskáta.
STARFSMAÐUR:
Viðverutími er yfir fundartímana
FÉLAGSFORINGI:
Jón Grétar Sigurjónsson
STJÓRN SKÁTAFÉLAGSINS
Félagsforingi: Jón Grétar Sigurjónsson
Dagskrárforingi: Védís Helgadóttir
Gjaldkeri: Arnlaugur Guðmundsson
Sjálfboðaliðaforingi: Oddný Sturludóttir
Meðstjórnandi: Magnús Jónsson
STAÐSETNING SKÁTAFÉLAGS
![](https://skatarnir.is/wp-content/uploads/H%C3%A1ahl%C3%AD%C3%B0-9-30-uai-258x116.jpg)