Hleð Viðburðir

Gilwell – framhald

Um viðburðinn:

Langar þig að taka næsta skref í þínu skátastarfi?

Nú gefst þér einstakt tækifæri til að upplifa skátaævintýrið á nýjan leik og vinna að þriðju eða fjórðu perlunni á framhalds Gilwell.

Markmið námskeiðsins er að gefa Gilwell skátum tækifæri til að efla sig í stjórnun og þjálfun í verkefnum á stærri skala, stefnumótun og innleiðingu breytinga svo fátt eitt sé nefnt.  Umgjörð námskeiðsins er í samræmi við Gilwell hefðina, í gegnum flokkastarf, tjaldbúðalíf og samvinnu með áherslu á jákvæð samskipti og gildi í leiðtogahlutverkinu.

Námskeiðið fer fram á tveimur helgum, í maí og febrúar en auk þess verður unnið að stóru verkefni sem reynir á leiðtogahæfileika, færni í stjórnun og framkvæmd stærri viðburða, verkefna eða innleiðinga í verklagi.

1. hluti – 29. maí-1. júní

Fyrri helgina munum við vinna með verkefna- og viðburðastjórnun, stjórnun vinnuhópa, krísustjórnun og stefnumótun þar sem við vinnum með stærri verkefni og viðburði á landsvísu.  Auk þess eflum við samvinnu og samkennd með því að vinna í flokkum og búa saman í tjaldbúð.  Gaman er að segja frá því Diana Slabu í Evrópustjórn WOSM verður einn af fyrirlesurum helgarinnar auk annarra gestakennara.

2. hluti – 6.-8. febrúar

Seinni helgina munu þátttakendur fá innsýn inn í reynsluheim leiðtoga í samfélaginu, fá endurgjöf og handleiðslu á framvindu verkefna og kynna verkefnin sín ef þeim verður lokið.

Gilwell verkefni

Gert er ráð fyrir að þátttakendur vinni að raunverulegum verkefnum innan skátahreyfingarinnar til þriðju eða fjórðu perlunnar.  Verkefnum verður úthlutað áður en námskeið hefst á persónulegum undrbúningsfundi.

Verkefnin til þriðju perlu eru á landsvísu, þ.e. miða að viðburðum eða verkefnum hjá BÍS sem eiga við allt landið.  Einnig verður þessa sömu helgi tækifæri fyrir þau sem eru komin með þriðju perluna að hefja vinnuna að fjórðu perlunni, en þá eru verkefnin komin á stærra plan, t.d. í stefnumótun stærri verkefna, að stýra vinnuhópum á innleiðingu á verkefnum fyrir BÍS eða í tengslum við WOSM og WAGGGS í Evrópu.

Þeim sem klára þriðju og fjórðu perluna mun bjóðast tækifæri til að leiðbeina á Gilwell námskeiðum þegar fram líða stundir.

FORKRÖFUR

Hafa lokið Gilwell leiðtogaþjálfuninni.

VERÐ OG SKRÁNING

Skráning fer fram á Abler en henni lýkur 1. maí.

Verð fyrir Gilwell leiðtogaþjálfunina er 85.000 krónur og er það fyrir báða hluta.

Þau sem borga sjálf eru beðin um að haka líka við ‘borga sjálf’ valmöguleikann og áskilur Skátamiðstöðin sér rétt á að setja skáta í greiðsluferli sem skrá sig á 0 krónum en félög hyggjast ekki greiða fyrir.

​Með því að skrá þig á Gilwell samþykkir þú eftirfarandi skilmála:

  1. Þátttakendur sem skrá sig á 0 krónur skuldbinda sig til að greiða fullt gjald ef í ljós kemur að félag hyggst ekki greiða fyrir þau.
  2.  Staðfestingargjaldið, 10% af námskeiðsgjaldi og er það óafturkræft.
  3. Þátttakendur eru ekki sérstaklega slysatryggðir, ábyrgðartryggðir eða vátryggðir að öðru leyti af Bandalag íslenskra skáta (BÍS) í skátastarfi, bent er á að þessar tryggingar eru oft hluti af heimilis- og fjölskyldutryggingum og öðrum almannatryggingum forráðafólks.
  4. Meðferð persónugreinanlegra upplýsinga sem skráðar eru vegna þátttöku er í samræmi við samþykkta persónuverndarstefnu BÍS sem finna má hér (https://skatarnir.is/personuverndarstefna/).
  5. Bandalag íslenskra skáta áskilur sér rétt til að halda eftir hluta af gjaldi þátttakandi greiðir sem hér segir:
    Ef hætt er við þátttöku 1 mánuði fyrir viðburð er staðfestingargjaldi haldið eftir.
    Ef skátinn hættir við þátttöku 3 vikum fyrir viðburð, er 50% af gjaldi haldið eftir.
    Ef skátinn hættir við þátttöku 14 dögum fyrir viðburð, er 75% af gjaldi haldið eftir.
    Ef skátinn hættir við þátttöku þegar skemmra er til viðburðar en sem nemur 14 dögum verður endurgreiðsla engin.
  6. BÍS eða umsjónaraðili á þess vegum getur þurft að aflýsa viðburðum og mótum vegna gildra og óviðráðanlegra aðstæðna s.s. vegna náttúruhamfara, hryðjuverka, stríðs, heimsfaraldra o.fl. Við þessar aðstæður áskilur BÍS sér rétt til þess að endurgreiða ekki mótsgjaldið, þótt ávallt sé leitast eftir að hámarka endurgreiðslu til þátttakenda.​

Auk ofangreindra skilmála gilda almennir skilmálar BÍS, sem má lesa hér.

Staðsetning viðburðar á korti

37

Dagar

1

Klst

44

Min

9

Sek

Lykilupplýsingar

Byrjar:
29. maí
Endar:
1. júní
Kostnaður:
85000kr
Aldurshópar:
Róverskátar, Eldri skátar

Skipuleggjandi

Gilwell leiðbeinendur
Netfang:
gilwell@skatarnir.is

Staðsetning

Útilífsmiðstöð skáta Úlfljótsvatni
Útilífsmiðstöð skáta á Úlfljótsvatni
Grafningsvegur efri, Selfoss 801 Iceland
+ Google Map
Sími:
482-2674
Vefsíða:
View Staðsetning Website

BANDALAG ÍSLENSKRA SKÁTA


Hraunbær 123,110 Reykjavík (sjá á korti)Sími: 550 9800Netfang: skatarnir@skatarnir.is 

OPNUNARTÍMI SKRIFSTOFU

Mánudaga – fimmtudaga: 09:00 – 16:00Föstudaga: 09:00 – 13:00

SAMFÉLAGSMIÐLAR


 

Privacy Preference Center