Hleð Viðburðir
  • Þessi event er liðinn

Skátasöngvar við Skátalund – einu sinni á ágústkvöldi

Um viðburðinn:

Kæri skáti!
Fimmtudaginn 24. ágúst 2023 kl. 19 ætlum við að halda varðeld í skátastíl við skátaskálann okkar, Skátalund, við Hvaleyrarvatn.

Umhverfi skálans má líkja við Paradís og varðeldaflötin rúmar fjölda skáta og gesta þeirra. Það er St. Georgsgildið í Hafnarfirði sem býður til þessa viðburðar, en hann er hluti af hátíðarhöldum í tilefni af 60 ára afmæli gildisins.

Öllum gildisskátum á landinu, sem eiga heiman­ gengt, er boðið á varðeldinn ásamt félögum í öðrum formlegum og óformlegum hópum skáta. Þá er starfandi skátafélögum, einkum foringjum og baklandi, boðið að koma á varðeldinn ásamt samtökum þeirra (BÍS og SFR).
Varðeldurinn hefst kl. 19. Frábærir varðeldastjórar og tónlistarfólk stjórna skátasöngvum og skátar úr Hraunbúum, nýkomnir heim frá Jamboree í Suður­ Kóreu, verða með klassísk varðeldaatriði. Gert er ráð fyrir að varðeldurinn sjálfur standi í um klukku­stund.
Að honum loknum verður boðið skátakakó í Skátalundi.

Skátalundur er sunnan við Hvaleyrarvatn.
Ekki eru næg bílastæði við skálann svo að best er að leggja bílum á bílastæðum vestan eða norðan við vatnið. Göngum þaðan eftir þægilegum göngustígum að Skátalundi (léttur 10­-15 mínútna gangur).

Nánari upplýsingar veita Ólafur Proppé, s. 8922468 proppe@hi.is og Hreiðar Sigurjónsson, s. 6601060 holshus@holshus.is
Eitt sinn skáti – ávallt skáti!

Staðsetning viðburðar á korti

Klst

Min

Sek

Lykilupplýsingar

Dagsetning:
24/08/2023
Tími
19:00 - 21:00
Kostnaður:
Frítt
Aldurshópar:

Warning: Invalid argument supplied for foreach() in /var/www/virtual/skatarnir.is/htdocs/wp-content/themes/uncode/tribe-events/modules/meta/details.php on line 264

Skipuleggjandi

Gildisskátar í Hafnarfirði

Staðsetning

Skátalundur
Skátalundur
Hafnarfjörður, Göngustígur 221 Iceland
+ Google Map
Sími:
skatalundur@gmail.com
Vefsíða:
View Staðsetning Website