Útkall – Mótsstjórn drekaskátamóts

Drekaskátamót

Um verkefnið:

Skátaþing í apríl 2024 samþykkti að sumarið 2025 yrðu haldin landsmót fyrir hvert aldursbil á þátttakanda aldri að fyrirmynd þeirra móta sem haldin voru 2018 og 2022.

Drekakátamót er tjaldbúðarmót yfir heila helgi sem haldið verður 13. – 15. júní 2025 á Úlfljótsvatni.

Mótsstjórn síðasta móts leitar að einstaklingum til að bætast við hópinn !

Hverjum leitum við að í mótsstjórn:

  • Mótsstjórn skiptir með sér hlutverkum til að tryggja ábyrgðaraðila yfir öllum verkþáttum mótsins og auglýsir eftir og fær til starfa sjálfboðaliða fyrir mótið eins og þörf er metin á.
  • Mótstjórn vinnur fjárhagsáætlun með fjármálastjóra BÍS og ábyrgist frágang, endurmat og uppgjör í samvinnu við Skátamiðstöðina.
  • Mótstjórn skipuleggur tjaldbúð, matarmál og dagskrámál og passar að auki að skipuleggja dagskrá sem er ævintýraleg, skemmtileg, krefjandi og aðgengileg fyrir þátttakendur og byggir á frumkvæði og sjálfstæði þeirra. Mótsstjórn skipuleggur einnig samfélagsverkefni í samstarfi við mótssvæðið sem allir þátttakendur taka þátt í á mótinu. 
  • Mótstjórn ábyrgist upplýsingar og kynningarmál í aðdraganda móts í samstarfi við Skátamiðstöð svo að þátttakendur geti undirbúið sig sem best fyrir mótið og æskilegt væri ef hægt er að vefja undirbúninginn eitthvað saman við vetrarstarfið í þeim félögum sem stefna á mótið.

Hvernig sæki ég um?

Ef þú hefur áhuga á að vera í mótsstjórn Drekaskátamóts getur þú sótt um strax með að fylla út umsóknina. Umsóknarfrestur er til og með 12. ágúst 2024

Segðu í stuttu máli frá því hvers vegna þú hefur áhuga á verkefninu. Hvaða reynslu þú hefur eða ástríðu sem þú telur að nýtist í mótsstjórn. Og hvers vegna þú ættir að verða fyrir valinu.