Námskeið fyrir starfsfólk Útilífsskóla 2025
Þessi námskeið eru ætluð öllu starfsfólki Útilífsskóla 17 ára og eldra - ATH að skólastjórar hafa yfirumsjón með skráningu síns starfsfólk og ganga úr skugga um að þau séu skráð á rétt námskeið.
Námskeið fyrir leiðbeinendur er ætlað öllu starfsfólki Útilífsskólanna 17 ára (á árinu) og eldri. Þótt 17 ára starfsfólk teljist sem vinnuskólaliðar í sumum sveitarfélögum hefur reynslan sýnt að þau fá meira út úr því að mæta á þessi námskeið en vinnuskólanámskeiðin.
Athugið að námskeiðið er einnig ætlað skólastjórum sem hafa ekki sinnnt starfinu áður.
Á námskeiðinu verður farið í ólíkar smiðjur sem miða að því að undirbúa starfshópinn fyrir starf sumarsins ásamt því að gefa þeim tækifæri á því að kynnast betur, bæði innan starfsstöðva og á milli starfsstöðva.
Námskeiðin eru 2 dagar, 3. og 4. júní, og eru þau haldin í Skátamiðstöðinni, Hraunbæ 123, klukkan 10:00-14:30.
Hádegismatur er ekki innifalin en boðið verður upp á kaffi á námskeiðinu.
Þátttakendum er bent á að taka með sér nesti en einnig eru verslanir í nágreni Skátamiðstöðvarinnar.
Reikningur fyrir námskeiðsgjöldum verður sendur á skátafélögin að námskeiðinu loknu
Útilífsnámskeið 2025
Skíðasamband skáta stendur fyrir útilífsnámskeiði í Eyjafirði helgina 28. febrúar - 2.mars 2025.
Námskeiðið er ætlað 14 ára og eldri.
Þátttakendur fræðast um ýmis atriði tengd vetrar útivist, svo sem klæðnað, búnað, mataræði, skyndihjálp, skíðabúnaði og margt fleira.
Námskeiðið er að mestu leyti verklegt og fer fram að stórum hluta úti.
KYNNINGARFUNDUR
Kynningarfundur fyrir þátttakendur verður mánudaginn 17. febrúar klukkan 20:00 í Hyrnu. Boðið verður upp á streymi. Þá fá þátttakendur útbúnaðarlista og nánari upplýsingar um tilhögun námskeiðisins. Hér er hlekkur að streyminu.
SKRÁNING
Skráningu lýkur 24. febrúar og fer hún fram inn á Sportabler aðgangi Klakks, hér. Þátttökukostnaður er 17.000 kr. og innifalið í gjaldi er gisting, matur og námskeiðisgögn. Hámarks þátttakendafjöldi er 25 skátar.
Ath. Mikilvægt er að taka fram að þátttakendur undir lögaldri verða að vera með ábyrgðaraðila/foringja með sér.
RÚTA
Boðið verður upp á rútu á viðburðinn með þeim fyrirvara að nægur þátttakendafjöldi náist á viðburðinn.
Rútan fer frá Skátamiðstöðinni, Hraunbæ 123, föstudaginn 28. febrúar klukkan 12:00 og er reiknað með mæting á Akureyri um 17:30.
Rútan leggur af stað frá Akureyri, sunnudaginn 11. febrúar, klukkan 15:00 og við reiknum með heimkomu klukkan 20:30 í Skátamiðstöðina.
Vert er að taka fram að ábyrgðaraðili þarf að fylgja þátttakendum undir lögaldri
Verð fyrir rútuna er 9.000 kr. og mun BÍS halda utan um skráninguna í rútuna. Stofnuð verður sér þjónustu fyrir rútuna inn á BÍS Abler sem skráðum þátttakendum verður bætt við. Þar geta þau staðfest rútuna eða afþakkað hana.
GISTING
Fyrri nóttina verður gist í skátaskálanum Valhöll. Gistirýmið þar er sameiginlegur salur þar sem þátttakendur og ábyrgðaraðilar sofa, reynt verður eftir fremsta megni að skipta þátttakendum eftir aldri og kyni.
Seinni nóttina verður gist í tjöldum, ef aðstæður og veður leyfir.
Nánari upplýsingar á tumisnaer@gmail.com eða jokkna@gmail.com
Útilífsnámskeið 2024
Skíðasamband skáta stendur fyrir útilífsnámskeiði í Eyjafirði helgina 9.-11. febrúar 2024.
Námskeiðið er ætlað dróttskátum og rekka/róverskátum.
Þátttakendur fræðast um ýmis atriði tengd vetrar útivist, svo sem klæðnað, búnað, mataræði, skyndihjálp, skíðabúnaði og margt fleira.
Námskeiðið er að mestu leyti verklegt og fer fram að stórum hluta úti.
KYNNINGARFUNDUR
Kynningarfundur fyrir þátttakendur verður mánudaginn 29. janúar klukkan 20:00 í Hyrnu (Boðið verður upp á streymi). Þá fá þátttakendur útbúnaðarlista og nánari upplýsingar um tilhögun námskeiðisins.
RÚTA
Boðið verður upp á rútu á viðburðinn með þeim fyrirvara að nægur þátttakendafjöldi náist á viðburðinn.
Rútan fer frá Skátamiðstöðinni, Hraunbæ 123, föstudaginn 9. febrúar klukkan 12:00 og er reiknað með mæting á Akureyri um 17:30.
Rútan leggur af stað frá Akureyri, sunnudaginn 11. febrúar, klukkan 15:00 og við reiknum með heimkomu klukkan 20:30 í Skátamiðstöðina.
Vert er að taka fram að ábyrgðaraðili þarf að fylgja þátttakendum undir lögaldri
Verð fyrir rútuna er 8.500 krónur á mann.
SKRÁNING
Skráningu lýkur 3. febrúar og fer hún fram inn á Sportabler aðgangi Klakks, hér. Þátttökukostnaður er 11.000 kr. og innifalið í gjaldi er gisting, matur og námskeiðisgögn.
Ath. Mikilvægt er að taka fram að þátttakendur undir lögaldri verða að vera með ábyrgðaraðila/foringja með sér.
GISTING
Fyrri nóttina verður gist í skátaskálanum Valhöll. Gistirýmið þar er sameiginlegur salur þar sem þátttakendur og ábyrgðaraðilar sofa, reynt verður eftir fremsta megni að skipta þátttakendum eftir aldri og kyni.
Seinni nóttina verður gist í tjöldum, ef aðstæður og veður leyfir.
Nánari upplýsingar á tumisnaer@gmail.com eða jokkna@gmail.com
Útilífsnámskeið 2023
Skíðasamband skáta stendur fyrir útilífsnámskeiði í Eyjafirði helgina 10.-12. febrúar 2023.
Námskeiðið er ætlað dróttskátum og rekka/róverskátum.
Þátttakendur fræðast um ýmis atriði tengd vetrar útivist, svo sem klæðnað, búnað, mataræði, skyndihjálp, skíðabúnaði og margt fleira. Þátttakendur gista eina nótt inni, en seinni nóttina í tjaldi. Námskeiðið er að mestu leyti verklegt og fer fram að stórum hluta úti.
Kynningarfundur fyrir þátttakendur verður mánudaginn 30. janúar klukkan 20:00 í Hyrnu (Boðið verður upp á streymi). Þá fá þátttakendur útbúnaðarlista og nánari upplýsingar um tilhögun námskeiðisins.
Skráningu lýkur 3. febrúar og fer hún fram inn á Sportabler aðgangi Klakks, hér. Þátttökukostnaður er 8000 kr. og innifalið í gjaldi er gisting, matur og námskeiðisgögn. Ferðakostnaður félaga utan Akureyris á námskeiðið verður niðurgreiddur af BÍS.
Rúta fer frá Skátamiðstöðinni, Hraunbæ 123, á föstudegi og til baka á sunnudegi. Verð fyrir rútu er 4.500 kr á mann.
Ath. Mikilvægt er að taka fram að þátttakendur undir lögaldri verða að vera með ábyrgðaraðila/foringja með sér.
Nánari upplýsingar á tumisnaer@gmail.com eða jokkna@gmail.com