Hringborð skátaforingja

Hringborðin eru vettvangur fyrir sjálfboðaliða um land allt í samskonar hlutverkum að kynnast innbyrðis, ræða sín á milli þær áskoranir sem þau mæta í sínu starfi og deila á milli sín lausnum og góðum aðferðum.

Hringborðið er fyrir öll aldursbilin:

Viðburðurinn er ætlaður skátaforingjum sem halda utan um fjölskylduskátastarf, drekaskátastarf, fálkaskátastarf, dróttskátastarf, rekkaskátastarf og róverskátastarf. Við viljum bjóða upp á vettvang þar sem skátaforingjarnir geta speglað sig við aðra skátaforingja og aðstoðað hvert annað við að móta skátastarf á Íslandi.

Hvar verður hringborðið:

Viðburðurinn verður í Skátamiðstöðinni, Hraunbæ 123, þar sem skátaforingjunum verður skipt í umræðuhópa eftir aldursbilum. Þau sem vilja mæta á viðburðinn gegnum fjarfund mega endilega senda póst á skatarnir@skatarnir.is og við munum finna lausn við því.

Skráning á hringborðið:

Skráning á öll hringborðin fer fram á skraning.skatarnir.is, mikilvægt er að skrá sig svo skipuleggjendur geta áætlað skiptingu í rýmin miðað við umræðuhópa og umræðuefni.

Hvað verður á dagskrá við hringborðið:

Í dagskrá hringborðsins verður meðal annars

- Kynning á niðurstöðum úr færnimerkjakönnun

- Sagt frá nýjum leiðbeiningum um flokkastarf

- Skipt upp í aldurbil umræður um skipulag, áskoranir og hvernig hægt er að nýta starfsgrunnin til stuðnings

- fyrirspurnir til erindreka og starfsráðs