Útkall – Mótsstjórn Landsmóts Dróttskáta

Um verkefnið: 

Skátaþing í apríl 2024 samþykkti að haldin yrðu aldursbilamót sumarið 2025. Aldursbilamótin eru skátamót fyrir hvert aldursbil á þátttakanda aldri að fyrirmynd þeirra móta sem haldin voru árin 2018 og 2022.

Stjórn BÍS leitar að áhugasömum einstaklingum eða hópum til að taka að sér hlutverk mótsstjórnar fyrir Dróttskátamótið.  

Áætlað er að Dróttskátamótið fari fram síðari hluta sumars 2025, og sé skipulagt sem flokkamót í tjaldbúð. 

Hverjum leitum við að í mótstjórn: 

Við leitum að skátum sem brenna fyrir efldu dróttskátastarfi, finnst tjaldbúðarlíf og útvera frábær og finnst gaman að vera frumkvöðlar í dagskrármálum. Einnig vantar sérstaklega einstakling til að stýra miðlun fyrir mót og frá mótinu sjálfu. 

Hlutverk mótstjórnar: 

Mótstjórn skipuleggur tjaldbúð, dagskrármál og matarmál út frá því að mótið sé flokkamót. Mótstjórn vinnur fjárhagsáætlun með fjármálastjóra BÍS og ábyrgist upplýsingar og kynningarmál í aðdraganda móts í samstarfi við Skátamiðstöð. Mótsstjórn skiptir með sér hlutverkum í mótsstjórn til að tryggja ábyrgðaraðila yfir öllum verkþáttum mótsins. 

Mótsstjórn miðlar upplýsingum svo að þátttakendur geti undirbúið sig sem best fyrir mótið og æskilegt væri ef hægt er að vefja undirbúninginn eitthvað saman við vetrarstarfið í þeim félögum sem stefna á mótið. Mótsstjórn auglýsir eftir og fær til starfa starfsfólk fyrir mótið eins og þörf er metin á. Mótsstjórn miðlar til félaganna hvernig fararstjórnum skuli háttað og reyna að hátta málum svo félögin geti sent sem fæsta án þess að fórna öryggi eða gæðum mótsins. 

Mótsstjórn skipuleggur dagskrá sem er ævintýraleg, skemmtileg, krefjandi og aðgengileg fyrir þátttakendur og byggir á frumkvæði og sjálfstæði þeirra. 

Mótsstjórn skipuleggur samfélagsverkefni í samstarfi við mótssvæðið sem allir þátttakendur taka þátt í á mótinu. 

Mótsstjórn er ábyrg fyrir því að útvega allan búnað sem hún telur sig þurfa og nýtur þar stuðnings Skátamiðstöðvar og hefur aðgang að öllum búnaði BÍS. Mótsstjórn leiðbeinir félögum um flutning á þátttakendum og búnaði á og af mótinu en félögin eru ábyrg fyrir framkvæmd flutninga. 

Mótsstjórn ábyrgist frágang, endurmat og uppgjör í samvinnu við Skátamiðstöð. 

Hvernig sæki ég um? 

Ef þú hefur áhuga á að vera í mótsstjórn Landsmóts dróttskáta getur þú sótt um strax með að fylla út umsóknina hér að neðan. Umsóknarfrestur er til og með 20. október 2024 

Segðu í stuttu máli frá því hvers vegna þú hefur áhuga á verkefninu. Hvaða reynslu þú hefur eða ástríðu sem þú telur að nýtist í mótsstjórn. Og hvers vegna þú ættir að verða fyrir valinu.