Útkall – Mótsstjórn Dróttskátamóts 2025

Um verkefnið: 

Skátaþing í apríl 2024 samþykkti að haldin yrðu aldursbilamót sumarið 2025. Aldursbilamótin eru skátamót fyrir hvert aldursbil á þátttakanda aldri að fyrirmynd þeirra móta sem haldin voru árin 2018 og 2022.

Stjórn BÍS leitar að áhugasömum einstaklingum eða hópum til að taka að sér hlutverk mótsstjórnar fyrir Dróttskátamótið.  

Áætlað er að Dróttskátamótið fari fram síðari hluta sumars 2025, og sé skipulagt sem flokkamót í tjaldbúð. 

Hverjum leitum við að í mótstjórn: 

Við leitum að skátum sem brenna fyrir efldu dróttskátastarfi, finnst tjaldbúðarlíf og útvera frábær og finnst gaman að vera frumkvöðlar í dagskrármálum. Einnig vantar sérstaklega einstakling til að stýra miðlun fyrir mót og frá mótinu sjálfu. 

Hlutverk mótstjórnar er til dæmis eftirfarandi: 

  • Fyrsta hlutverk mótstjórnar er að staðfesta nákvæma tímasetningu og staðsetningu á dróttskátamótinu í samvinnu við Skátamiðstöð.
  • Mótsstjórn skiptir með sér hlutverkum til að tryggja ábyrgðaraðila yfir öllum verkþáttum mótsins og auglýsir eftir og fær til starfa sjálfboðaliða fyrir mótið eins og þörf er metin á.
  • Mótstjórn vinnur fjárhagsáætlun með fjármálastjóra BÍS og ábyrgist frágang, endurmat og uppgjör í samvinnu við Skátamiðstöðina.
  • Mótstjórn skipuleggur tjaldbúðm matarmál og dagskrámál út frá því að mótið sé flokkamót og passar að auki að skipuleggja dagskrá sem er ævintýraleg, skemmtileg, krefjandi og aðgengileg fyrir þátttakendur og byggir á frumkvæði og sjálfstæði þeirra. Mótsstjórn skipuleggur einnig samfélagsverkefni í samstarfi við mótssvæðið sem allir þátttakendur taka þátt í á mótinu. 
  • Mótstjórn ábyrgist upplýsingar og kynningarmál í aðdraganda móts í samstarfi við Skátamiðstöð svo að þátttakendur geti undirbúið sig sem best fyrir mótið og æskilegt væri ef hægt er að vefja undirbúninginn eitthvað saman við vetrarstarfið í þeim félögum sem stefna á mótið.

Hvernig sæki ég um? 

Ef þú hefur áhuga á að vera í mótsstjórn Landsmóts dróttskáta getur þú sótt um strax með að fylla út umsóknina hér að neðan. Umsóknarfrestur er til og með 31. ágúst 2024 

Segðu í stuttu máli frá því hvers vegna þú hefur áhuga á verkefninu. Hvaða reynslu þú hefur eða ástríðu sem þú telur að nýtist í mótsstjórn. Og hvers vegna þú ættir að verða fyrir valinu.