
Skátafélagið Mosverjar
Álafossvegur 18
270 Mosfellsbæ
Facebook: fb.com/mosverjar
Netfang: mosverjar@mosverjar.is
SKÁTAFÉLAGIÐ MOSVERJAR
Starfssvæði félagsins er Mosfellsbær og dreifbýli. Skátafélagið Mosverjar bjóða upp á skátastarf fyrir ungmenni á aldrinum 7 – 25 ára og leggur mikla áherslu á skemmtilegt starf fyrir skáta á öllum aldri. Við byggjum mikið á útivistinni og samvinnu ásamt því að sinna ýmsum samfélagsverkefnum í náttúruvernd og samfélagsþjónustu. Skátaheimilið er staðsett í Álafosskvosinni þar sem stutt er í náttúruna og samfélagið í Mosfellsbæ. Í húsnæði félagsins er að finna rúmgóðan sal, flokkaherbergi, minni sali fyrir drekastarf ásamt flestu því sem góð skátaheimili þurfa að eiga. Félagið á einnig kanóa og kajaka sem staðsettir eru í geymslugám við Hafravatn. Skátafélagið Mosverjar ásamt Mosfellsbæ hefur undanfarin ár lagt vinnu í að merkja tæplega hundrað kílómetra af gönguleiðum um fjöll, fell og náttúruna í kringum Mosfellsbæ.
FÉLAGSGJALD:
32.000 kr. fyrir allt starfsárið.
Ekki er greitt árgjald fyrir róverskáta, foringja, stjórn eða bakland.
STARFSMENN FÉLAGS:
Dagbjört Brynjarsdóttir
Hrafnhildur Oddný Sigurgísladóttir
Viðvera á fundartímum Dreka-, fálka- og dróttskátasveita.
STAÐSETNING SKÁTAFÉLAGS

STJÓRN SKÁTAFÉLAGSINS
Félagsforingi: Dagbjört Brynjarsdóttir
Aðstoðar félagsforingjar: Eiríkur Pétur Eiríksson Hjartar, Kolbrún Reinholdsdóttir
Gjaldkeri: Guðbjörn Gústafsson
Ritari: Haukur Örn Harðarson
Meðstjórnendur: Andrea Dagbjört Pálsdóttir