Uppistandandi

Um færnimerkið
Stundum fara hlutirnir öðruvísi en lagt var upp með í upphafi. Kannski gleymdist matarkassinn, rafmagnið fer eða allur eldiviðurinn rennblotnaði á leið í skálann. Þá er mikilvægt að vita hvernig við getum nýtt okkur það sem við finnum í umhverfinu. Við þurfum að vera meðvituð um hverjar eru grunnþarfir mannsins og hvernig hægt er að uppfylla þær við erfiðar aðstæður, bæði heima og úti í náttúrunni.
Kröfur
Til að fá færnimerkið „Uppistandandi“ þarftu að þekkja til og geta sýnt flokknum þínum og foringja eftirfarandi: • Kynna þér og læra helstu grunnþarfir manna varðandi vatn, mat og hita.
• Vita hvað þú þarft að gera til að geta lifað af neyð í 72 tíma.
• Vita hvernig á að finna áttir og rata án korts og áttavita.
• Búa til öruggan næturstað úti í náttúrunni og eyða einni nóttu þar.
• Vita hvað í náttúrunni er óhætt að leggja sér til munns og á hvaða árstíma mismunandi fæðu er að finna, t.d. ber, fisk, sveppi eða plöntur.