Þá og nú

Um færnimerkið
Það er mikilvægt að þekkja sögu og þróun skátahreyfingarinnar til að skilja betur hugmyndafræðina á bak við skátastarf og til að skilja af hverju skátar gera það sem þeir gera. Skátahreyfingin hófst fyrir meira en 100 árum síðan í Bretlandi og er í dag stærstu æskulýðssamtök í heiminum.
Kröfur
Reynir á
● Skilning á samfélaginu/heiminum
● Eigin gildi
● Gagnrýna hugsun.
Til að fá færnimerkið “Þá og nú” þarftu að þekkja hvernig og hvers vegna skátastarf hófst, hvað skátar gerðu í starfi sínu þá sem við gerum enn í dag og hvernig þróun samfélagsins hefur mótað skátahreyfinguna. Það felur m.a. í sér að: ● Kynna þér WOSM, WAGGGS, BÍS og skátafélagið þitt.
● Bera saman skátalög og skátaheit þá og nú (t.d. 1907, í kringum 1950 og svo í dag). Af hverju heldurðu að þau hafi tekið breytingum? Hvernig heldurðu að þau muni líta út árið 2100?
● Þú kynnir þér helstu merkisdaga í sögu skátahreyfingarinnar og hvers vegna við höldum þá hátíðlega.
● Þú berir saman sögu skátafélagsins þíns og sögu annars skátafélags á Íslandi.