Loftslag

Um færnimerkið
Þátttaka ungs fólks í baráttunni gegn loftslagsvánni er alheimsafl sem hefur áhrif á ríkisstjórnir, stórfyrirtæki og annað fólk í valdastöðum um heim allan. Taktu þátt í baráttunni!
Lífsstíll okkar hefur áhrif jörðina en lofthjúpur hennar hlýnar með hverju árinu. Koltvísýringur og aðrar gróðurhúsalofttegundir safnast fyrir í lofthjúpnum og valda hnattrænni hlýnun með tilheyrandi náttúruhamförum, bráðnun jökla, hækkandi sjávaryfirborði, ofsaveðrum og þurrkum. Það hefur óhjákvæmilega mikil áhrif á líf okkar í nútíðinni og til framtíðar og við verðum að bregðast við til að minnka losun gróðurhúsalofttegunda. Í sameiningu getum við komið með nýjar og ferskar hugmyndir til að hægja á þessari neikvæðu þróun.
Kröfur
Til að fá færnimerkið „Loftslag“ þarftu að þekkja til og geta sýnt flokknum þínum og foringja eftirfarandi: • Reiknaðu út kolefnisfótspor þitt.
• Dragðu úr kolefnisfótspori þínu í heilan mánuð, t.d. með því að hjóla í stað þess að nýta ökutæki, gerast grænkeri eða grænmetisæta og kaupa notað frekar en nýtt.
• Leiddu átak í skátafélaginu eða sveitinni þinni sem hefur það að markmiði að minnka útblástur, t.d. með fjáröflun fyrir sólarsellum á skátaskálann, skipuleggja og stýra fjallgöngu þar sem allt nestið er vegan, bæta flokkun úrgangs og kynna leiðir til að draga úr matarsóun í útilegum og skátamótum.
• Finndu stofnun, samtök eða samfélagsvettvang sem láta sig loftslagsmál varða og taktu þátt í viðburðum með öðrum sem vilja bæta jörðina.