Forritun

Um færnimerkið
Forritun er tækifæri til að nota ímyndunaraflið, búa eitthvað til og þjálfa sig í að leysa vandamál. Þú færð að prófa hvernig forritun virkar og tækifæri til að nota hana ásamt skátavinum. Með því að vinna saman færðu tækifæri til að kynnast öðrum á nýjan hátt.
Kröfur
Til að fá færnimerkið „Forritun“ þarftu að þekkja til og geta sýnt flokknum þínum og foringja eftirfarandi: • Prófa hvort forritunarrökfræði virkar í IRL (í raunveruleikanum) og sjá hvort hún stenst. Skiptist t.d. á að gera leiðbeiningar sem leiðbeinir skátafélaga þínum í gegnum torfæruleið sem þú hefur sjálfur búið til.
• Leystu forritunarverkefni ásamt að minnsta kosti einni annarri manneskju: Forritaðu eitthvað sem þú hefur fundið upp sjálfur. Til dæmis gæti það verið leikur, vélmenni, vefsíða, smáforrit eða kannski Minecraft Server. Þú getur valið að nota forrit eða tæki sem auðveldar forritun eða skrifað kóða á forritunarmáli. Það fer eftir fyrri þekkingu þinni hvað þú velur.