Bál

Um færnimerkið

“Bál” er framhald af færnimerkingu “Logi”. Með því að vinna að þessu merki nærðu góðum tökum á öllu sem viðkemur því að meðhöndla eld á ábyrgan hátt.

Kröfur

Reynir á ● Lausnaleit ● Náttúruvitund ● Samvinnu. Til að fá færnimerkið “Bál” þarftu að þekkja til og geta sýnt flokknum þínum og foringja að þú þekkir og kunnir skil á því sem færnimerkið “Logi” krefur af þér. Að auki þarftu að kunna skil á eftirfarandi:● Finna eldivið/eldsneyti í náttúrunni og geta, með aðstoð vasahnífs og eldspýtna, kveikt upp góðan eld og látið hann loga lengi. ● Þekkja mismunandi báltegundir og vita hvaða aðferðir er best að nota við t.d. eldamennsku, fyrir varðeld eða til að hlýja sér við. ● Geta þekkt ólíkar trjátegundir og vita hvernig mismunandi viður hagar sér í eldi, t.d. hvaða viður gefur mesta hitann eða snarkar mest í. ● Hafa prófað að kveikja upp eld með öðru en eldspýtum/kveikjara, svo sem með stækkunargleri eða eldstáli.