Útkall – Mótsstjórn Landsmóts rekka-og róverskáta

Um verkefnið:

Skátaþing í apríl 2024 samþykkti að sumarið 2025 yrðu haldin landsmót fyrir hvert aldursbil á þátttakanda aldri að fyrirmynd þeirra móta sem haldin voru 2018 og 2022.

Rekka- og Róvermótið verður því líkt og síðast haldið í tveimur hlutum, þar sem fyrri hlutinn er göngumót sem varir í 3-4 daga (2-3 gistinætur) og síðari hlutinn er tjaldbúðarmót sem varir 3-4 daga (3-4 gistinætur). Þátttakendur geta síðan valið að taka þátt í öðrum eða báðum hlutum mótsins. Mótið verðu haldið um mitt sumar en fyrsta verkefni móstjórnar er að ákveða dagsetningu og staðsetningu.

Hverjum leitum við að í mótstjórn:

Við leitum að skátum sem finnst gaman að takast á við stór og spennandi verkefni með brennandi áhuga á útivist og að búa til skemmtilega dagskrá. Einnig vantar sérstaklega einstakling til að stýra miðlun fyrir mót og frá mótinu sjálfu.

Hlutverk mótstjórnar:

  • Mótstjórn ákveður staðsetningu mótsins út frá gönguleið sem nær a.m.k. 40 km og endar þar sem mögulegt er að halda tjaldbúðarmót
  • Mótsstjórn skiptir með sér hlutverkum í mótsstjórn til að tryggja ábyrgðaraðila yfir öllum verkþáttum mótsins. 
  • Mótstjórn miðlar upplýsingum svo að þátttakendur geti sem best undirbúið sig fyrir gönguna og tryggir að nægur fjöldi ábyrgðaraðila fylgi þátttakendum í göngunni. Mótstjórn stýrir öryggismálum, sjúkramálum, flutningsmálum og annast samskipti við tjaldsvæði á leiðinni. Þau reyna að tryggja velferð allra á meðan á göngu stendur í samstarfi við þá fararstjóra sem fylgja frá félögunum. Mótstjórn skipuleggur dagskrá sem er ögrandi og spennandi fyrir þátttakendur og byggir á frumkvæði og sjálfstæði þeirra ásamt því að skipuleggja samfélagsverkefni á öðrum eða báðum hlutum mótsins þannig að sem flestir þátttakendur fái tækifæri á að hafa góð áhrif í nærumhverfi mótsins.
  • Mótsstjórn þarf einnig að taka afstöðu varðandi flutning á þátttakendum og búnaðs fyrir báða hluta mótsins og einnig varðandi matarmál yfir báða hluta mótsins.
  • Mótstjórn vinnur fjárhagsáætlun með fjármálastjóra BÍS og ábyrgist frágang, endurmat og uppgjör í samvinnu við Skátamiðstöð.

Hvernig sæki ég um:

Ef þig langar að sækja um getur þú sótt um strax í dag með því að fylla út umsóknina. Umsóknarfrestur er til og með 12. ágúst 2024

Segðu í stuttu máli frá því hvers vegna þú hefur áhuga á verkefninu. Hvaða reynslu þú hefur eða ástríðu sem þú telur að nýtist í mótsstjórn. Og hvers vegna þú ættir að verða fyrir valinu.