Útkall – Mótsstjórn Landsmóts fálkaskáta

 

Um verkefnið:

Skátaþing í apríl 2024 samþykkti að sumarið 2025 yrðu haldin landsmót fyrir hvert aldursbil á þátttakanda aldri að fyrirmynd þeirra móta sem haldin voru 2018 og 2022.

Landsmót fálkaskáta er 4 daga (3 gistinótta) tjaldbúðarmót sem verður fyrri hluta sumars. Staðsetning hefur ekki verið fest en það verður eitt af fyrstu verkefnum mótsstjórnar að ákveða staðsetningu og dagsetningu mótsins.

Mótsstjórn verður í góðu samstarfi við BÍS og Skátamiðstöð!

Hverjum leitum við að í mótsstjórn:

Við leitum að skátum sem finnst skemmtilegt að veita ungu fólki tækifæri að læra og vaxa í tjaldbúð. Hefur gaman af því að búa til metnaðarfulla stórleiki og gagnvirka dagskrá. Einnig vantar sérstaklega einstakling til að stýra miðlun fyrir mót og frá mótinu sjálfu.

Hlutverk mótsstjórnar:

Mótstjórn vinnur fjárhagsáætlun með fjármálastjóra BÍS og ábyrgist upplýsingar og kynningarmál í aðdraganda móts í samstarfi við Skátamiðstöð. Mótsstjórn skiptir með sér hlutverkum í mótsstjórn til að tryggja ábyrgðaraðila yfir öllum verkþáttum mótsins. Mótsstjórn tekur afstöðu til þess hvort matarmál verði á ábyrgð mótsins eða fararhópa.

Mótsstjórn miðlar upplýsingum svo að þátttakendur geti undirbúið sig sem best fyrir mótið og æskilegt væri ef hægt er að vefja undirbúninginn eitthvað saman við vetrarstarfið í þeim félögum sem stefna á mótið. Mótsstjórn auglýsir eftir og fær til starfa starfsfólk fyrir mótið eins og þörf er metin á. Mótsstjórn miðlar til félaganna hvernig fararstjórnum skuli háttað og reyna að hátta málum svo félögin geti sent sem fæsta án þess að fórna öryggi eða gæðum mótsins.

Mótsstjórn skipuleggur dagskrá sem er ævintýraleg, skemmtileg, krefjandi og aðgengileg fyrir þátttakendur og byggir á frumkvæði og sjálfstæði þeirra.

Mótsstjórn skipuleggur samfélagsverkefni í samstarfi við mótssvæðið sem allir þátttakendur taka þátt í á mótinu.

Mótsstjórn er ábyrg fyrir því að útvega allan búnað sem hún telur sig þurfa og nýtur þar stuðnings Skátamiðstöðvar og hefur aðgang að öllum búnaði BÍS. Mótsstjórn leiðbeinir félögum um flutning á þátttakendum og búnaði á og af mótinu en félögin eru ábyrg fyrir framkvæmd flutninga.

Mótsstjórn ábyrgist frágang, endurmat og uppgjör í samvinnu við Skátamiðstöð.

Hvernig sæki ég um?

Ef þú hefur áhuga á að vera í mótsstjórn landsmóts fálkaskáta getur þú sótt um strax með að fylla út umsóknina. Umsóknarfrestur er til og með 20. október 2024

Segðu í stuttu máli frá því hvers vegna þú hefur áhuga á verkefninu. Hvaða reynslu þú hefur eða ástríðu sem þú telur að nýtist í mótsstjórn. Og hvers vegna þú ættir að verða fyrir valinu.