Verkefni 32 – Skáti er samvinnufús
April 16, 2020
Verkefni 32 – Skáti er samvinnufús
Verkefni dagsins er tileinkað sjöundu grein skátalaganna ‘Skáti er samvinnufús’. Þið þurfið að finna ykkur æfingafélaga á heimilinu og vinna í sameiningu að því að klára þessar æfingar. Hér fyrir neðan er listi með æfingum og útskýringum til að prófa. Þú getur kíkt á síðuna okkar á Facebook þar sem þið getið séð myndband af æfingunum
Upphitun
- Hoppa yfir planka
- Einn aðili plankar í 30 sek á meðan hinn aðilinn hoppar yfir fætur fram og til baka. Svo skipti þið um hlutverk.
Æfingar
- Magaæfingar með bolta
- Sitjið á gólfinu á móti hvort öðru, gerið magaæfingar og látið bolta ganga á milli ykkar.
- Því þyngri sem boltinn er því erfiðari er æfingin
- Planki eða armbeygjustaða + fimma
- Liggið á móti hvort öðru í planka eða armbeygjustöðu og skiptist á með hvorri hönd að gefa fimmu.
- Erfiðari útgáfa er að vera í armbeygjustöðu og gera armbeygjur á milli fimma
- Veggseta með bolta
- Sitjið við vegg með fæturnar í 90° og sendið bolta á milli ykkar
- Hér geta margir tekið þátt
- Hjólböruarmbeygjur
- Annar aðilinn er í armbeygjustöðu og hinn aðilinn heldur fótum hans uppi
- Aðilinn sem er í armbeygjustöðu gerir eins margar armbeygjur og hann getur
- Svo er skipt um hlutverk
- Til að gera æfinguna erfiðari getur sá sem stendur verið í hnébeygjustöðu
- Boltakast með hnébeygjum
- Hnébeygja og kasta boltanum yfir á hinn aðilann á leiðinni upp
- Hinn aðilinn grípur boltann, fer niður í hnébeygju og kastar boltanum til baka á leiðinni upp
- Fótalyftur með bolta
- Liggja á bakinu þar sem höfuð snúa saman
- Setjið bolta á milli fótanna ykkar og lyftið þeim upp og látið þannig boltann ganga á milli
- Hjóla
- Liggið á bakinu og snúið þannig að fæturnir ykkar snertist. Setjið iljar saman og beygið hnén
- Nú reynir á samhæfinguna að hjóla með fótunum
- Mjaðmalyftur og þríhöfðadýfur
- Annar aðilinn liggur á bakinu með fætur bognar og lyftir mjöðmunum
- Hinn aðilinn kemur sér fyrir, stendur með bakið að fótum þess sem liggur, styður sig við hnén hjá æfingafélaga sínum og tekur þríhöfðadýfur
- Svo skipti þið um stöðu
- Þríhöfðadýfur verða erfiðari eftir því sem lengra bil er haft á milli fótanna
- Hnébeygjur á öðrum fæti
- Stattu á öðrum fæti, þú getur stutt þig við æfingafélagann þinn
- Gerðu 10 hnébeygjur á hvorn fót
- Svo skipti þið
Til eru allskonar skemmtilegar æfingar sem skemmtilegt er að gera heima. Þekkir þú aðrar æfingar sem þú vilt deila með okkur hinum?






