Sumardagurinn fyrsti 2023

April 19, 2023

Sumardagurinn fyrsti 2023 er haldinn hátíðlegur fimmtudaginn 20. apríl um land allt og hafa skátar skipulagt og standa að glæsilegum og stórskemmtilegum hátíðarhöldum fyrir börn, ungmenni og fjölskyldur þeirra.

 

Í Reykjavík

Skátafélagið Árbúar í Árbæ

Staðsetning: Árbæjarsafn
Tímasetning: 12:30-16:00

Skátafélagið Árbúar leiðir skrúðgöngu frá Árseli að Árbæjarsafni en þar tekur við póstaleikur, útieldun og fleira. Veitingasala verður á staðnum sem fjáröflun fyrir félagið. Fá frekari upplýsingar á facebook viðburðarsíðu.

Skátafélögin Garðbúar í Fossvogi, Landnemar í Hlíðunum og Skjöldungar í Laugardal

Staðsetning: Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn
Tímasetning: 14:00-17:00

Skátafélögin þrjú ætla að sameina krafta sína og standa fyrir miklu sumarfjöri í fjölskyldu og húsdýragarðinum. Dagskráin verður í gangi á milli 14:00 og 17:00 þar sem hoppukastalar, klifurveggur og skátaþrautir verða í boði. Á staðnum verður sölutjald þar sem ýmis góðgæti verður til sölu sem fjáröflun fyrir unga skáta sem stefna á Alheimsmót skáta í Suður-Kóreu 2023. Fá frekari upplýsingar á facebook viðburðarsíðu.

Skátafélagið Vogarbúar í Grafarvogi

Staðsetning: Skátaheimili Vogabúa, Logafold 106
Tímasetning: 13:00-16:00

Skátafélagið Vogabúar munu standa fyrir skemmtidagskrá fyrir alla fjölskylduna við skátaheimilið sitt. Í boði verða leiktæki, hoppukastalar og ýmis skemmtun með skátaívafi. En síðan verða sirkúsatriði og mun trúbadorinn Jón Sigurðsson halda uppi stuðinu. Á staðnum verður veitingasala og candylfoss sem fjáröflun fyrir skátafélagið. Fá frekari upplýsingar á facebook auglýsingu.

Skátafélagið Ægisbúar í Vesturbænum

Staðsetning: Skátaheimili Ægisbúa, Neshaga 3
Tímasetning: 11:00-14:00

Skátafélagið Ægisbúar blæs til sumarhátíðar á sumardeginum fyrsta við skátaheimili sitt. Á staðnum verða hoppukastalar auk annarar skemmtunar. Á staðnum verða sölutjöld með góðgæti og ýmis matarkyns sem fjáröflun fyrir félagið. Fá frekari upplýsingar á facebook viðburðarsíðu.

Í Kópavogi

Skátafélagið Kópar

Staðsetning:  Skátaheimili Kópa
Tímasetning:  14:00-17:00

Skátafélagið Kópar bjóða öllum Kópum og fjölskyldum þeirra í skátaheimilið sitt í opið hús. Veitt verða heiðursmerki til sjálfboðaliða kópa og í boði verður ratleikur um dalinn ásamt heitu kakói og vöfflur. Hægt er að sjá frekari upplýsingar  hér  á facebook viðburðinum.

Í Garðabæ

Skátafélagið Svanir og Skátafélagið Vífill

Staðsetning:  Vídalínskirkju og Miðgarði
Tímasetning:  13:00-16:00

Skátafélögin Svanir og Vífill verða með skrúðgöngu frá Hofsstaðaskóla kl. 14 sem gengur að Miðgarði íþróttamiðstöð og þar tekur skemmtidagskrá við stútfull af tónlistarfólki, töframönnum, andlitsmálun, hoppuköstulum, veltibíl og candyfloss.

Frekari upplýsingar má finna á upplýsingasíðu Garðabæjar. Eða á facebook viðburði hátíðarinnar  hér.

Í Hafnarfirði

Skátafélagið Hraunbúar

Staðsetning: Víðistaðakirkju og Thorsplani
Tímasetning: 13:30-16:00

Skátafélagið Hraunbúar tekur þátt í hátíðarhöldunum og verður með skemmtilega og fjölbreytta skátadagskrá fyrir alla fjölskylduna á Víðistaðatúni og við skátamiðstöðina Hraunbyrgi. Í boði verður kassaklifur, klifurveggur, útieldun þar sem grillaðir eru sykurpúðar og hike-brauð, hoppukastalar, bátar og risa hengirúm. Í Hraunbyrgi verður kaffisala og á Víðistaðatúni verður söluhús með ullarsykur, krap og popp. Hægt er að skoða frekari upplýsingar á heimasíðu Hafnafjarðar hér eða á facebook viðburði hátíðarinnar hér.

Í Mosfellsbæ

Skátafélagið Mosverjar

Staðsetning: Miðbæjartorgi og Varmá
Tímasetning: 13:00-16:00

Skátafélagið Mosverjar mun leiða skrúðgöngu frá Miðbæjartorgi að Varmá þar sem skólahljómsveit Mosfellsbæjar tekur á móti skrúðgöngunni með sumartónum. Að skrúðgöngu lokinni hefst dagskrá á Varmá með hoppuköstulum, kassaklifri, leikjum, og þrautum. . Frekari upplýsingar má finna á facebook viðburði hátíðarinnar.

Í Reykjanesbæ

Skátafélagið Heiðabúar

Staðsetning: Keflavíkurkirkju og skátaheimili Heiðabúa, Hringbraut 101
Tímasetning: 12:30-17:30

Skátafélagið Heiðabúar mun leiða skrúðgöngu frá skátaheimilinu að Keflavíkurkirkju þar sem skátafélagið kemur að hátíðarmessu þar sem nýjir skátar verða vígðir. Hægt er að fylgjast með Heiðabúum á facebook síðu þeirra hér.

Í Hveragerði

Skátafélag Strókur

Staðsetning: Hveragerðiskirkja
Tímasetning: 11:00

Skátafélagið Strókur verður með skátamessu í Hveragerðiskirkju og að henni lokinni verður Strókur með sumarskemmtun barnanna á planinu fyrir frmaan kirkjuna kl. 13. Þar verður ýmislegt í boði eins og hoppukastalar, tónlist, ullarsykur og fleira. Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu Hveragerðis hér.

Á Selfossi

Skátafélagið Fossbúar

Staðsetning: Skátaheimilinu Glaðheimum, Tryggvagötu 36
Tímasetning: 13:00-16:00

Nóg verður um að vera á Selfossi þar sem skátafélagið Fossbúar taka þátt í hátíðinni Vor í Árborg. Skrúðganga leggur af stað frá miðbæ Selfoss að Glaðheimum, skátaheimili Fossbúa þar sem skátaverkefni að ýmsu tagi verður í boði  og er hluti af stimplaleik hátíðarinnar.   Frekari upplýsingar um hátíðina má finna á upplýsingasíðu Árborgar. Einnig er hægt að fylgjast með facebook viðburði frá Fossbúum.

Á Akranesi

Skátafélag Akraness

Staðsetning: Skátahúsið og Akraneskirkja
Tímasetning: 10:30

Skátafélagið Akraness verður með skrúðgöngu frá skátahúsinu að Akranesskirkju þar sem við tekur sumarhátíð.

Í Dalabyggð

Skátafélag Stígandi

Staðsetning:  Laugar í Sælingsdal
Tímasetning:  13:00 – 15:00

Skátafélagið Stígandi tekur þátt í Jörfahátíð Dalabyggðar og bjóða alla velkomna á Lauga í Sælingsdal þar sem þau verða með leiki og fjör. Frekari upplýsingar er hægt að sjá á heimasíðu Dalabyggðar  hér.

Á Akureyri

Skátafélagið Klakkur

Staðsetning: Skátaheimili Klakks, Þórunnarstræti, Glerárkirkja og tjaldsvæðinu á Hömrum
Tímasetning: 10:40-15:00

Skátafélagið Klakkur mun vera með skrúðgöngu frá Giljaskóla kl. 10:40 að Akureyrarkirkju þar sem skátafélagið kemur að messu sem hefst kl. 11:00 en að henni lokinni er öllum boðið að koma í sumarhátíð að tjaldsvæðinu á Hömrum. Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu Klakks.

 

Nýlegar færslur
By Sædís Ósk August 17, 2026
CREAN 2027 - UMSÓKN
August 12, 2026
Á Landsmóti skáta að Hömrum á Akureyri fór fram vikulangt skátamót með þátttöku fjölda ungmenna. Til þess að stór samkoma af þessu tagi gangi vel fyrir sig er mikilvægt að allir þátttakendur fylgi reglum mótsins og þeim gildum sem skátastarf byggir á. Einn hópur þurfti því miður að hætta þátttöku á mótinu þar sem einstaklingar innan hópsins fylgdu ekki settum reglum. Til að tryggja velferð þeirra er málið varðaði, þar á meðal þeirra ungmenna sem þurftu að yfirgefa mótið, var viðbragðsáætlun Æskulýðsvettvangsins fylgt. Í því felst m.a. að kalla til lögreglu og barnavernd og tryggja að viðeigandi fullorðnir aðilar geti tekið við umsjá þeirra ungmenna sem yfirgefa mótið og eru stödd hér á landi án forráðamanna. Þar sem málið varðar ungmenni verður ekki farið nánar í einstök atvik eða aðstæður þeirra á opinberum vettvangi. Skátarnir leggja ríka áherslu á að gæta trúnaðar og hagsmuna allra þeirra barna og ungmenna sem hlut eiga að máli.
By Sædís Ósk August 6, 2026
Útkall í ung i norden 2026
July 23, 2026
Hér má lesa öll tölublöð sólstafa
July 22, 2026
Landsmót var sett á hömrum 20. júlí

Share this article