Drekar fóru í sirkus

June 13, 2024

Helgina 31. maí – 2. júní var Drekaskátamót haldið á Úlfljótsvatni og var þemað í ár Sirkus. Skátarnir reistu tjaldbúð við Strýtuna sem að var nú orðin að sirkustjaldi og fengu að kynnast trúðunum á svæðinu og hjálpuðu þeim að læra nýjar sirkúskúnstir.

Dagskráin var svipuð og síðustu ár en meðal annars var boðið upp á klifur , bogfimi, báta , hoppukastala og samfélagsverkefni. Þetta árið stóðu samfélagsverkefnin upp úr þar sem drekaskátarnir hjálpuðu til við að snyrta skóginn fyrir aftan KSÚ og máluðu regnboga með höndunum á vegginn á Norðursal.

Á laugardeginum var Karnival þar sem að skátarnir gátu unnið sér inn miða með því að leysa allskonar skemmtilegar þrautir og gátu svo keypt sér kandífloss, popp og ferð í hoppukastalana með miðunum.

Veðrið stríddi okkur en við létum það þó ekki stoppa okkur og nutum okkar út í smá regni og roki. Sólin kom þó og kvaddi okkur með geislunum á sunnudeginum.

   

Nýlegar færslur
March 9, 2026
Reynir Tómas Reynisson
By Halldóra Skátarnir March 9, 2026
Björk Norðdahl
March 9, 2026
Hörður Andri Baldursson
March 6, 2026
Guðni Hannesson
March 6, 2026
Birkir Kári Gíslason

Share this article