26 sæmd forsetamerkinu á 60 ára afmæli þess

November 2, 2025

Í dag veitti frú Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, 26 skátum forsetamerkið við hátíðlegar athafnir á Bessastöðum. Þetta er fjölmennasti hópurinn sem hlýtur forsetamerkið síðan árið 2016. Frú Halla Tómasdóttir er verndari skátahreyfingarinnar og veitir forsetamerkið þeim rekkaskátum (16-18 ára) sem hafa stundað metnaðarfullt rekkaskátastarf. Forsetamerkishafarnir Fríða Björg Tómasdóttir, Skátafélaginu Klakki, og Kristófer Njálsson, Skátafélaginu Mosverjum, fluttu ávarp í athöfnunum þar sem þau sögðu frá skátaferli sínum og þeim verkefnum sem þau unnu að í tengslum við forsetamerkisvegferðina.

Í forsetamerkinu sameinast gildi skátahreyfingarinnar um persónulegar framfarir einstaklingsins og þess að gera sitt besta samfélaginu til heilla. Vegferðin að forsetamerkinu er 2-3 ára verkefni sem hvetur skátana til persónulegs vaxtar í gegnum 24 fjölbreytt verkefni sem skátarnir þurfa að vinna að.

Í byrjun vegferðarinnar setja skátarnir sér markmið fyrir rekkaskátastarfið sitt og í lok hennar endurmeta þeir síðan vegferðina. Skátarnir þurfa að ljúka verkefnum úr fjórum verkefnaflokkum: Leiðtogafærni, Skapandi hugur, Heimurinn og umhverfið og Tilveran mín. Til þess að öðlast merkið þurfa skátarnir meðal annars að sækja 5 daga skátamót, ferðast 40 kílómetra á eigin afli, sækja helgarnámskeið í leiðtogaþjálfun og 12 klukkustunda skyndihjálparnámskeið. Að lokum velja skátarnir sér 2 langtímaverkefni sem krefjast virkrar þátttöku þeirra yfir 3-12 mánaða tímabil. Dæmi um þetta eru að vera foringi yngri skáta, taka þátt í skipulagi stórs skátamóts, sitja í stjórn skátafélags, ráði eða vinnuhóp, að taka að sér viðhald skátaheimilis eða skátaskála og margt fleira sem forsetismerkishafar hafa látið sér detta í hug. Hér má lesa nánar um forsetamerkið.

Í ár er 60 ára afmæli forsetamerkisins og síðan merkið var fyrst veitt árið 1965 hafa 1488 skátar verið sæmdir því. Eftir athafnir dagsins var afmæli merkisins fagnað í Jötunheimum, skátaheimili Vífils en þar komu saman nokkrar kynslóðir forsetamerkishafa ásamt öðrum góðum skátum. Elín Richards, forsetamerkishafi 36, ávarpaði gesti veislunnar sem og Jóhanna Björg, forsetamerkishafi nr. 1083 fyrir hönd starfsráðs. Þá fóru Fríða og Kristófer aftur með hugvekjuna sína frá því fyrr um daginn og skátahöfðingi og forsetamerkishafi númer 1000, Harpa Ósk bauð gesti velkomna. 

Hugvekja nýtta forsetamerkishafa

Kristófer: Virðulegi forseti, ágætu skátavinir og aðrir góðir gestir

Það er ekki oft sem maður fær tækifæri líkt þessu, að standa frammi fyrir forseta Íslands, – hvað þá í höfuðstöð hennar þar sem tilefnið er að fagna okkar afreki. Mér finnst því frábært að geta nýtt þessa hugvekju til þess að miðla þakklæti mínu fyrir hönd okkar sem fyrir örfáum mínútum sátum í þessu herbergi með sveittar hendur, ólm í að öðlast þessa fögru nælu og heiðurinn sem henni fylgir. 

Nú sitjum við saman með misslitnar og krumpaðar bækur sem hafa öðlast líf eftir traust verk sitt sem fylgifiskar í verkefnum okkar. Það er mikilvægt að sjá hvernig hver bók endurspeglar fjölbreytnina í persónuleika og vinnubrögðum okkar. Því það er sama fjölbreytnin í huga, sálu og líkama hvers og eins okkar sem kjósa að vinna okkar hlut í að halda skátahreyfingunni lifandi sem málar þennan einstaka lit hennar.

Fríða: Ég hef oft verið spurð hvað það er eiginlega sem við gerum í skátunum. Fólk virðist halda að við séum að kveikja eld og hnýta hnúta alla fundi en öll hér inni vitum við að skátastarfið er svo miklu meira en það. Skátahreyfingin er eina æskulýðshreyfingin, svo ég best viti, sem er með eitt inntökuskilyrði: Að leggja sitt af mörkum til þess að bæta samfélagið. Þótt við kveikjum vissulega marga elda þá áttar maður sig á því að skátastarfið snýst ekki bara um eldinn sjálfann, heldur um það að kveikja eld innra með sér og öðrum. Að verða forvitin, þrautseig, opin fyrir ævintýrum og tilbúin að takast á við áskoranir. Núna, þegar ég stend hér í dag, finnst mér eins og þessi eldur logi aðeins skærar. 

Nú veit ég ekki með ykkur en ég ætla að vera alveg hreinskilin og segja að ég byrjaði ekki í skátunum vegna einhverjar djúprar köllunar til að þjóna samfélaginu eða bjarga heiminum, heldur einfaldlega vegna þess að vinir mínir voru í skátunum og þetta virtist skemmtilegt. Ég held að flest okkar geti samt verið sammála um að það hafi kannski ekki alveg verið fyrsti dagurinn sem breytti lífinu, en einhvern veginn, án þess að maður tók eftir því fór þetta starf að festa rætur í hjartanu mans og varð að gríðarstórum hluta af manni. Það hafa verið ótal skipti þar sem ég hef hugsað ,,af hverju er ég að gera þetta“ hvort sem ég hafi verið í skafrenningi að reyna að tjalda eða á landsmóti blaut alveg inn að beini.

Kristófer: En það eru einmitt þessi augnablik sem kenna manni hvað samvinna og jákvætt hugarfar þýða í raun. 

Fríða: Að þrautseigja þýði ekki að gefast aldrei upp, heldur að halda áfram jafnvel þegar maður þarf að taka smá hlé, draga andann djúpt og reyna aftur. Á milli þess að frjósa, hlæja og reyna að muna hvernig í ósköpunum maður gerir fánahnút, lærir maður eitthvað meira, um sjálfan sig, um aðra og um það hvað það þýðir að standa saman. 

Kristófer: Talandi um samvinnu. Ég myndi segja að ferðin til Kóreu hafi sett mestan svip á ferlið mitt. Ég hafði fjarlægst skátahreyfingunni mikið þegar ég ákvað að slást í fararhópinn okkar á Alheimsmót skáta. Þar upplifði ég eitt, ef ekki besta ævintýri lífs míns. Ég hef aldrei verið hluti af jafn stórum hópi fólks – skáta alls staðar af úr heiminum – jafnvel frá löndum sem ég hafði ekki einu sinni heyrt um. Ég hef aldrei fengið jafn gullið tækifæri til að vera jafn frjáls í anda og þá. Það var endalaust hægt að fíflast í og með fólki. Skemmtilegastir voru Indverjarnir. Þeir kunnu æstustu leikina en sýndu líka yndislega gestrisni sem ég miða nú sjálfur við þegar ég býð fólki heim til mín. Einnig var samheldnin og samvinnan í verki svo einstaklega góð meðal íslenska fararhópsins. Svo góð að ást mín fyrir skátastarfinu vaknaði úr blundi sínum. 

Fríða: Hér í dag eru líka mörg kunnugleg andlit úr ferðinni. Saman sköpuðum við ógleymanlegar minningar og erum nú aftur saman komin til að deila öðrum merkum áfanga í lífi okkar. 

Kristófer: Skátastarfið er svo sannarlega ólgandi sjór. Í því myndast vinabönd og upplifanir sem annað hvort haldast eða enda en öldurnar draga mann alltaf aftur til minninganna. Eins og í dag hafa þær dregið okkur saman til að heiðra allar þær einstöku minningar sem við höfum myndað saman eða sér.

Fríða: Það er eitthvað alveg einstakt við það hvað skátarnir draga fram það besta í fólki. Maður hittir fullt af mismunandi einstaklingum í skátunum en ég held að ég geti fullyrt það að fólkið í skátunum er eitt það besta og skemmtilegasta sem ég hef nokkurn tímann hitt. Ég hef bæði eignast nýja vini og tengst þeim ég átti fyrir á hátt sem erfitt er að útskýra. Þetta er fólkið sem hlær með manni, stundum að manni en hjálpar manni samt alltaf á fætur sem minnir okkur á það hvers vegna þetta er allt þess virði. 

Í ár fagnar forsetamerkið 60 ára afmæli. Það er svolítið sérstök tilfinning að standa hér í dag og hugsa til allra 1473 forsetamerkishafana sem hafa staðið hér á undan mér. 60 ár af skátum sem hafa tekið við þessu merkilega merki, hver og einn með sína sögu, sín ævintýri og sínar áskoranir. Þó tíminn hafi breyst, þá held ég að kjarninn sé sá sami. Við höfum öll á okkar hátt, lofað því sama: Að leggja okkar að mörkum í samfélaginu, að sýna gott fordæmi og að lifa eftir skátalögunum. 

Kristófer: Eða eins og Baden Powell orðaði það “Gerum okkar besta til að skilja við heiminn örlítið betri en þegar við komum í hann.”

Fríða: Það er fallegt að hugsa til þess að við erum nú orðinn hluti af þessum hópi, þessari keðju fólks sem sér til þess að skátaandinn lifi áfram, hvort sem það er meðvitað eða ekki. Forsetamerkið er nefnilega ekki bara viðurkenning fyrir það sem við höfum gert, heldur áminning um að halda áfram að lifa eftir skátalögunum. Að halda áfram að vera forvitin, hjálpsöm og hugrökk. Kæru skátar, innilega til hamingju með þetta afrek. Munið að forsetamerkið er ekki lokaverkefni, heldur byrjun á nýjum kafla.

 

Skátar úr 9 félögum

Eftirfarandi rekkaskátar úr 9 skátafélögum hlutu forsetamerkið á Bessastöðum 2. nóvember 2025 og bættust í hóp 1488 forsetamerkishafa frá upphafi.

Úr Árbúum:
Daníel Þröstur Pálsson

Úr Faxa:
María Fönn Frostadóttir

Úr Fossbúum:
Vigdís Jóna Árnadóttir

Úr Hraunbúum:
Dagný Lind Pálsdóttir
Inga Dís Guðjónsdóttir
Logi Friðriksson

Úr Klakki
Anton Bjarni Bjarkason
Anton Dagur Björgvinsson
Ásbjörn Garðar Yngvason
Birkir Kári Gíslason
Birkir Kári Helgason
Fríða Björg Tómasdóttir
Hörður Andri Baldursson
Snædís Hanna Jensdóttir

Úr Kópum:
Eva Rut Tryggvadóttir
Silja Líf Eiðsdóttir

Úr Mosverjum:
Eberg Óttarr Elefsen
Kristófer Njálsson
Pétur Jón Árnason
Unnur Elísa Sigurgísladóttir

Úr Víflum:
Elí Hrönn Hákonar
Helgi Þórir Sigurðsson
Ingvar Jarl Eineborg

Úr Ægisbúum:
Aðalsteinn Ingi
Andri Rafn Ævarsson
Berglind Anna Magnúsdóttir

Nýlegar færslur
November 16, 2026
Þrettán rekkaskátar voru sæmd Forsetamerkinu við hátíðlega og skemmtilega athöfn á Bessastöðum síðastliðinn laugardag. Öll unnu þau að fjölbreyttum og krefjandi verkefnum, allt frá því að fara í útilegur, bæði innanlands og utan, skipuleggja og halda skátafundi og viðburði fyrir yngri skáta og fara 45 km. eða meira á eigin afli. Vegferðin er að jafnaði 2-3 ár og er haldið utan um hana í svokölluðu vegabréfi. Að lokinni vegferð afhendir forseti Íslands forsetamerkið við athöfn á Bessastöðum. Smári Hannesson og Svava Dröfn Davíðsdóttir fluttu hátíðarræðu, sem lesa má hér að neðan. Kristbjörg Katla Hinriksdóttir og Eydís Ósk Sævarsdóttir sungu lagið, Enn við reisum tjöld. Forsetamerkishafar í númeraröð: 1489 | Svava Dröfn Davíðsdóttir | Skátafélagið Árbúar 1490 | Eiður Snær Óskarsson | Skátafélagið Hraunbúar 1491 | Eydís Ósk Sævarsdóttir | Skátafélagið Hraunbúar 1492 | Haukur Freyr Ólafsson | Skátafélagið Hraunbúar 1493 | Logi Jökulsson | Skátafélagið Hraunbúar 1494 | Melkorka Thea Rósenberg Þrastardóttir | Skátafélagið Hraunbúar 1495 | Nanna Sóley Ottósdóttir | Skátafélagið Hraunbúar 1496 | Smári Hannesson | Skátafélagið Hraunbúar 1497 | Þórður Jón Guðlaugsson | Skátafélagið Hraunbúar 1498 | Þórir Snær Sigurðsson | Skátafélagið Landnemar 1499 | Bergur Vilhjálmsson | Skátafélagið Vífill 1500 | Birgir Óli Guðmannsson | Skátafélagið Vífill 1501 | Kristbjörg Katla Hinriksdóttir | Skátafélagið Vífill Hátíðarræða Virðulegi forseti, Just Björn, skátavinir og aðrir góðir gestir. Það er skemmtilegt tækifæri og stórkostlegur heiður að fá að flytja hugleiðingu hér á Bessastöðum. Tilefnið er alls ekki smátt og okkur langar að byrja á því að óska öllum forsetamerkishöfum innilega til hamingju með áfangann. ( Bravó bravissimó). Forsetamerkið sjálft er að sjálfsögðu einstaklega glæsilegt, svona silfurlitað og nett. En eins og klisjan kveður á um þá snýst þetta um ferðalagið en ekki áfangastaðinn, og ég held við getum öll verið sammála um það að það frábæra fyrirbæri sem forsetamerkisbókin er bjóði manni sannarlega upp á æðislegt ferðalag . Hún býður manni að leggja sitt af mörkum til samfélagsins, hún býður manni að læra og leika, hún býður manni að þroskast, hún býður manni á skyndihjálparnámskeið, alþjóðleg skátamót, í foringjastarf, fjallgöngur, ferðalög og í endalaus ævintýri – og þó það hafi ekki verið manni alveg jafn ljóst þegar maður var fimmtán ára að byrja í menntaskóla og reyna að fitta inn, þá væri óðs manns æði að þiggja ekki slíkt rausnarboð um ævintýri. Ævintýrin geta verið mismunandi. Sum ganga eins og í sögu en í öðrum gleymir maður svefnpokanum, aukafötunum, loftdælunni, hlýju sokkunum eða, tannkreminu. Þegar maður hefur gleymt einhverju einu sinni man maður yfirleitt eftir því næst. Nema tannkreminu. Tannkremið gleymist alltaf. En ævintýrin halda áfram og gleymdi svefnpokinn verður að skemmtilegri sögu. Allt í einu ertu kominn ofan í poka með gjafmildri vinkonu, eða gengur um í lánuðum ullarsokkum sem ná þér upp að hnjám. Enginn man eftir ferðunum þar sem allt gekk smurt. En allir muna eftir jeppaferðinni upp í Þrym. Þrír bílar, og enginn mundi eftir loftdælu. Svo enginn hleypti úr og allir sátu pikkfastir. Saman. Það er þarna sem bestu sögurnar verða til. Einhvern veginn komumst við alltaf áfram. Skátar eru nefnilega sérfræðingar í að leysa vandamál, sérstaklega þau sem þeir búa til sjálfir. Við gefumst ekki upp. Við finnum lausnir, hjálpumst að og hlæjum að öllu saman eftir á. Ég las pistil um daginn þar sem fjallað var um rannsóknir sem sýna að það er beinlínis hollt fyrir fullorðna að fara út að leika sér. Það minnkar streitu og bætir bæði lífsánægju og félagsleg tengsl. Skátastarf er sem sagt vísindalega studd heilsuefling. Þannig að næst þegar einhver spyr hvað við séum eiginlega að gera, rennblaut í tjaldi uppi á heiði, þá erum við bara að hugsa um heilsuna. Þess vegna skulum við halda áfram að leika okkur og lifa lífinu. Hér með okkur, í anda, er einstakur strákur sem kunni svo sannarlega að lifa lífinu. Þórður Jón var gríðarlega öflugur og sannur skáti. Góð manneskja inn að beini. Hann var mikill samferðarmaður minn og margra hérna inni í þessari þriggja ára vegferð, og raunar líka lífinu öllu. Það er ótal margt sem við getum lært af Þórði, og fyrst við erum að tala um vegferðir og ferðalög langar mig að vekja sérstaklega máls á því hvað Þórður var góður ferðafélagi, hvort sem það var í víðum eða bókstaflegum skilningi þess orðs, það var jafn þægilegt að elta drauma með honum eins og að sitja við hliðina á honum í flugvél. Og við sem erum skátar skiljum verðmæti þess mikla mannkosts að vera góður ferðafélagi. Bestu ferðafélagarnir eru þeir sem standa í öllu veseninu með okkur. Sem hlæja með okkur þegar jeppinn situr fastur eða þegar maður hvolfir kanónum á alveg lygnu vatni, mínútu eftir að vinkona manns sagði: „Ekki hvolfa bátnum.“ Ég ætla að teikna upp mynd fyrir ykkur. Mynd úr ferðalagi. Dagurinn er 25. júlí árið 2024. Ég hef ekki hugmynd um það hvaða vikudagur er. Lopapeysan sem mamma prjónaði á mig tekur sig vel út í þessum skandinavíska skógi og Aku gönguskórnir hafa aldrei verið þægilegri. Ég er staddur í Noregi. Með í för eru margir af mínum bestu vinum, skátaflokkurinn Straumendur sem er án efa sá fjallmyndarlegasti á öllu mótinu. Hvernig væri annað hægt? Þetta eru Þórður, Logi, Eiður, ég og fleiri snillingar eins og Kristófer Njálsson, en hann fór einmitt með hugleiðingu hér á Bessastöðum fyrir einu ári, þvílík fótspor að feta í. En allavega. Skátaflokkurinn Straumendur stiklar yfir tæra lækjarsprænu, arkar ótroðnar slóðir og fyrr en varir erum við komnir til Svíþjóðar. Við erum bókstaflega búnir að labba til Svíþjóðar. Næsta sem við vitum er að við okkur blasir smábær, eins og vin í eyðimörkinni. Við pöntum pítsu af eldri manni sem talar enga ensku og nammi til að eiga á heimleiðinni. Við erum eins saddir og sælir og við erum þreyttir og sveittir. Og það er einmitt þarna sem það gerist, í sólsetri þessara ófyrirsjáanlegu ævintýra sem einkenna skátana, að samtölin við vini manns ná ótrúlegustu hæðum. Ég man ekkert hvað við töluðum um, enda skiptir það kannski minnstu máli. Ég man bara tilfinninguna. Einhverskonar þakklætislækjarspræna sem verður að beljandi fljóti innra með manni. Þvílíkur dagur. Þvílík nærvera. Og þvílíkt ferðalag sem við deildum saman. Eins og rauðglóandi analógía fyrir skátastarfið í heild sinni. Kæru vinir. Þórður var einstaklega glaður og raunsær einstaklingur, og það besta sem við getum gert til að heiðra minningu hans er að lifa í hans anda. Þessi þakklætistilfinning sem þú varst að nefna, orðið núvitund lýsir henni kannski ágætlega? Mikið rétt. Sjálfur þekki ég konu sem talar gjarnan um það að hún finni hvergi fyrir meiri núvitund en einmitt í skátunum. Þessi kona fer varla út úr húsi án þess að hafa Lífið er núna armband um únliðinn á sér og með hana sem fyrirmynd hef ég tileinkað mér að gera slíkt hið sama. Lífið er nefnilega núna. Lífið er þegar við gleymum svefnpoka og tannkremi, sættum okkur við ullarsokka sem ná okkur upp að hnjám eða sitjum föst í jeppum leiðinni upp í Þrym. Skátahreyfingin í sjálfri sér, og þá sérstaklega vegferðin að forsetamerkinu, hvetur mann til þess að lifa í núinu. Hvað er meiri núvitund en að ferðast 50 kílómetra á eigin afli? Hvolfa bát eða að verja kvöldvöku með skátum frá annarri heimsálfu? Þetta er dagur þar sem við leyfum okkur að vera stolt af því sem við höfum afrekað og af vegferðinni sjálfri, og erum þakklát fólkinu sem gekk leiðina með okkur. Því ekkert okkar hefði klárað þessa bók eitt síns liðs. Á bak við þetta merki eru allir foringjarnir sem höfðu trú á okkur. Foreldrarnir sem skutluðu okkur og græjuðu mat þegar við höfðum ekki tíma til þess. Og vinirnir sem studdu við bakið á okkur í gegnum þetta allt saman. Þeir hvöttu okkur áfram á síðustu og erfiðustu metrunum í göngunni og voru til í allar vitleysurnar og skrýtnu hugmyndirnar sem urðu svo að skemmtilegustu ferðunum. Takk, kæru áheyrendur fyrir að hafa verið svona dugleg að halda ykkur í núinu í þessari hugleiðingu, enginn að kíkja á tiktok eða pískra. Við hvetjum ykkur til þess að halda því áfram í lífinu. Eða að minnsta kosti þar til næsta ræða er búin. Kæru skátavinir. Takk fyrir þessa vegferð, við hlökkum til þeirrar næstu.
November 3, 2026
Gróðursettum 1.285 tré í esjuhlíðum
Fjögur ungmenni standa saman og horfa yfir tjaldbúð á viðburði sem þau skipulögðu
By Sædís Ósk • October 22, 2026
Útkall - drekaskátamótstjórn
September 30, 2026
ferðasaga frá Tinna snæ
By Sædís Ósk • September 22, 2026
Nordic Baltic Youth Summit 2026 – Umsóknir eru opnar!

Share this article