Norðurlandaskátar glímdu við fuglaflensu á Go Global

October 13, 2023

Þátttakendur í smitvarnarbúning á Go Global

Helgina 6.-8. október komu saman 20 skátar frá Norðurlöndunum saman á stór- Kaupmannahafnar svæðinu í þeim tilgangi að kynnast þeim tækifærum sem sem standa til boða í alþjóðaskátastarfi á heismvísu.

Dagskrá helgarinnar var því með þeim hætti að auka vitneskju þátttakenda um WAGGGS og WOSM ásamt þeim verkefnum og tækifærum sem samtökin standa fyrir og þá var sérstök áhersla lög á að mynda sterk vinatengsl milli skáta á Norðurlöndunum.

Helgin byrjaði með öflugum póstaleik víðsvegar um Kaupmannahöfn þar sem þátttakendur sem skipt var í flokka og fóru um í leit að bæði dönskum sjálfboðaliða og erlendum frá bæði WOSM og WAGGGS og var reynt á vitneskju þátttakenda um heimsbandalögin.

Þátttakendur í víðavangsleik um Kaupmannahöfn hittu m.a. fyrir Berglindi alþjóðafulltrúa BÍS gagnvart WOSM

Þá fóru þátttakendur á kynningu hjá Signe Marie Obel, sem nýlega var kjörin í heimsstjórn WAGGGS,  sem kynnti verkefnui WAGGGS og „Speak Out For Her World“ verkfærakistuna um hvernig skuli tala fyrir málstað á alþjóðavísu.

Signe úr heimsstjórn WAGGGS kynnir verkefni á vegum WAGGGS fyrir Daða Má þátttakanda frá Íslandi ásamt öðrum þátttakendum á Go Global

í framhaldi af þessu kom Susanne Kolle fyrir hönd kvenskátaráðs danmerkur og hélt smiðju þar sem hún kynnti félagslegt nýsköpunarverkefni sem þau stýra.

Signý ræðir málin við aðra þátttakendur Go Global

Þegar kom að norræna kvöldinu, þar sem allir komu með besta snarlið frá sínum heimalöndum, komu skátar frá danska viðburðarteyminu KROPT og héldu óvæntan ævintýra-skáta næturleik sem kom öllum rækilega á óvart. Táknræn umgjörð leiksins var að skálinn, þar sem viðburðurinn fór fram, var skyndilega ógnað vegna skæðrar veiru. Þá kom ekki annað til greina en að veita starfsmönnum heilbrigðisstofnunarinnar hjálp við að stöðva útbreiðslu veirunnar og var því haldið út í skóg í leit að bóluefninu. Leikurinn var framkvæmdur þannig að upplifunin væri sem raunverulegust en þátttakendur þurftu m.a. að klæða sig upp í sóttvarnarbúning. Í gegnum leikinn fengu þátttakendur að kynnast þessari ævintýra-skátun sem er hefð hjá dönsku skátahreyfingunum en svo var líka sérstök kynning að leik loknum.

Danskur skáti í sóttvarnarbúning

Eftir þennan stórkostlega viðburð eru þátttakendurnir nú spenntir að komast í kynni við ný alþjóðatækifæri og að vonandi þau muni öll hittast á norðurlanda ráðstefnunni í Færeyjum, Roverway eða í ævintýra-skátun í Danmörku.

Myndir í þessari frétt eru teknar af Margrethe Grønvold Friis.

Daði Már úr Árbúum og Signý Ósk frá Skjöldungum tóku þátt fyrir hönd BÍS.

Nýlegar færslur
March 3, 2026
Um helgina var haldið vel heppnað fararstjóranámskeið þar sem farið var yfir allt sem þarf til að undirbúa skemmtilegt og vel heppnað Landsmót. Dagskráin var fjölbreytt og fræðandi og fengu þátttakendur góða innsýn í helstu þætti sem skipta máli við undirbúning og framkvæmd móts. Meðlimir í mótsstjórn sáu um námskeiðið. María Dýrfjörð fjallaði um grunnþarfir og velferð skáta og mikilvægi þess að skapa öruggt og styðjandi umhverfi. Ingibjörg mótsstjóri og Védís kynningarstjóri Landsmóts, ræddu um samskipti og viðbrögð í krísum. Kynnt var nýtt efni frá Svissneskum skátum sem hægt er að nota til að eiga uppbyggilegt og fyrirbyggjandi samtal í óþægilegum aðstæðum sem geta komið upp á mótinu. Andrea Dagbjört tók fyrir aðgengismál og mikilvægi þess að öll geti tekið þátt á eigin forsendum. Þá fór hún einnig yfir hlutverk Skjólsins og stuðningskjóðuna sem verður afhent öllum félögum fyrir mótið. Anna, tæknistjóri mótsins, fór yfir öryggismál í tjaldbúð og helstu atriði sem þarf að hafa í huga til að tryggja öryggi þátttakenda. Katrín Kemp kynnti viðbragðsáætlun mótsins og samstarfið við æskulýðsvettvanginn. Jóhann Malmquist dagskrárstjóri og Halldóra Hinriksdóttir fóru yfir skipulag dagskrár, skráningu í dagskrárliði og fyrirkomulag opnu dagskrárinnar.  Í lok námskeiðsins sköpuðust góðar umræður þar sem meðal annars var rætt um fyrirkomulag í fjölskyldubúðum og matinn. Að lokum voru grunnupptökur af tveimur nýjum mótslögum spiluð. Þar með lauk vel heppnuðu og uppbyggilegu námskeiði. Stefnt er á að hitta fararstjórnahópinn aftur þegar nær dregur móti á fjarfundi.
February 26, 2026
Helgina 6.-8. febrúar útskrifuðust 9 skátar úr Gilwell leiðtogaþjálfuninni og fengu einkennin sín afhent við hátíðlega stund í Gilwell skálanum. Skátarnir eru á aldrinum 22-46 ára og koma úr 3 félögum en að þessu sinni var stór hópur frá skátafélaginu Hraunbúum að útskrifast. Hópnum var skipt í flokka í upphafi þjálfunarinnar sem héldust út alla þjálfunina og hjálpuðust að við að leysa hin ýmsu verkefni sem á vegi þeirra varð. Gilwell leiðtogaþjálfunin er fyrir fullorðna skáta sem vilja efla sig sjálf sem leiðtoga og halda áfram að leiða skátastarf í landinu. Hópurinn hefur lokið 10 daga leiðtogaþjálfun, sem er skipt í 3 hluta, og unnið að metnaðarfullu lokaverkefni. Fyrsti hluti ævintýrisins var í júní þegar tjaldbúð var reist á Úlfljótsvatni í 5 daga, næst hittist hópurinn yfir helgi í nóvember og var svo síðasti hlutinn haldinn í upphafi febrúar. Hápunktur helgarinnar var þegar skátarnir kynntu lokaverkefnin sín fyrir hópnum en þau hafa unnið að þeim allt frá fyrsta hluta í júní. Um helgina var einnig hópur af skátum sem taka þátt í framhalds Gilwell leiðtogaþjálfuninni til að fá þriðju eða fjórðu perluna sína. Framhalds Gilwell hópurinn var á annari helgi í sinni þjálfun en gert er ráð fyrir lengra ferli fyrir þau þar sem verkefnin þeirra eru stærri og þurfa að ná til skátahreyfingarinnar allrar. Stefnt er að útskrift framhalds Gilwell hópsins á komandi ári og hlökkum við til að fylgjast með þeim klára sína vegferð. Til hamingju með áfangann öll! 
February 26, 2026
Afmælisþing
February 20, 2026
Aðalfundur Útilífsmiðistöðvar skáta á Úlfljótsvatni (ÚSÚ) verður haldinn miðvikudaginn 18. mars 2026 kl. 20:00 í sal Skátamiðstöðvarinnar, Hraunbæ 123. Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf. 1. Kosning fundarstjóra og fundarritara 2. Skýrsla stjórnar lögð fram 3. Reikningar lagðir fram til samþykktar 4. Lagabreytingar 5. Samþykktir Úlfljótsvatns  6. Önnur mál Hér er hlekkur á fjarfund.
February 13, 2026
Helgina 23.-25. janúar var haldið tíunda Vetrarmót Reykjavíkurskáta í Útilífsmiðstöð skáta á Úlfljótsvatni. Þema mótsins var Ólympíuleikarnir og snerist helgin að miklu leiti um keppnir í allskyns skátaþrautum. Mótið var skipulagt og haldið í sameiningu Reykjavíkurfélaganna og voru þau sex skátafélög sem sendu fulltrúa í ár frá Árbúum, Garðbúum, Landnemum, Skjöldungum, Vogabúum og Ægisbúum. 130 Skátar tóku þátt í helginni og voru um 30 af þeim sjálfboðaliðar sem gerðu helgina ævintýralega. Þátttakendur sem tóku þátt í mótinu voru á aldursbilunum fálkaskátar, dróttskátar og rekkaskátar. Skátarnir mættu hressir á föstudagskvöldi og skelltu sér beint í það að koma sér fyrir í herbergjum og tjöldum. Merkilegt var þó að í JB þar sátu nokkur tóm herbergi því um 30 skátar gistu úti í tjaldi og aldrei hafa jafn margir gist úti á vetrarmóti. Veður aðstæður voru mjög góðar fyrir tjöldun með engum snjó og kringum frostmark alla helgina. Haukur Landnemi hannaði nýtt merki sem gefið var fyrir alla þá sem gistu úti á mótnu. Merkið heldur áfram næstu ár og er um að gera fyrir alla skáta að reyna á tjaldgistingu á komandi vetrarmótum. Á setningu mótsins kom Jón Andri hlaupandi með kyndla til þess að kveikja á Ólympíska eldinum. Guðjón Orri og Kjartan Árbúar tóku að sér vekja tjaldsvæðið með pott, sleif og sírenum á laugardagsmorgni. Fálkaskátar mættu á svæðið í dagsferð á laugardagi og fóru beint í klassíska Víkingaleika, eftir hádegi tóku þau göngu upp að krossi og byrjaði svo liða keppni þar sem þau kepptu í klifri, bogfimi og skátadulmáli. Þau tóku þátt í dagskrá fram að kvöldvöku þar sem sigurvegarar voru tilkynntir. Dróttskátar tóku þátt í liðakeppni þar sem keppt var í hraða og hæfnisþrautum allan daginn. Dagskráin innihélt meðal annars klifur, bogfimi, að súrra, drumba drátt og hvaða flokkur er fljótastur að kveikja bál. Allir flokkarnir stóðu sig með prýði og geta skátafélögin verið stolt af sínum skátum á Ólympíuleikum vetrarmóts. Rekkaskátar tóku þátt í liðakeppni skipulögð af Daníel Þresti, Árbúa sem gaf hverjum flokki gott frelsi til þess að njóta og gera allt sem þeim langaði til. Dagskráin innihélt blað með fullt af áskorunum meðal annars göngu í kringum Úlfljótsvatn, gista upp á fjalli og elda kjötsúpu á opnum eldi. Rekkaskátarnir nutu þess mjög vel og kláruðu margar af erfiðustu þrautunum með sóma. Þórir Snær stýrði kvöldvöku sem haldin var í lautinni við KSÚ með opnum varðeldi. Fullt af skemmtilegum skemmtiatriðum frá öllum aldursbilum voru tekinn. Túri gerði sína vinsælu kökur, snúða og kakó sem kláruðust alveg. Um kvöldið tók við kvöldleikur sem Laura skipulagði og stýrði. Leikurinn bætti töfrum inn í Ólympíuleikana þar sem krakkarnir gerðu þrautir til þess að fá til baka kunnáttu sína í því að kveikja eld eftir að töframaður bæði stal eldinum og lét okkur öll gleyma hvernig maður á að kveikja eld. Kvöldmaturinn á laugardagskvöldi var í raun hátíðarkvöldverður þar sem Túri eldaði hamborgarhrygg sem var í uppáhaldi hjá öllum. Á sunnudeginum var vaknað og pakkað öllu í tæka tíð fyrir stórskemmtilega flaggaðu trönufánann (capture the flag með trönum) skipulagt og stýrt af Rafnari og Aroni sem sló svo sannarlega í gegn. Aldís og Samúel eldhús snillingar skelltu í svakalegt pylsupartý með tónlist og dansi. Eftir pylsur tók við skemmtilegur bolta leikur sem Rafnar stýrði og kallar Ultimate brennó. Sá leikur var svo skemmtilegur að erfitt var að stoppa þann leik fyrir slit. Jón Andri vildi ekki einu sinni hætta. Á slitum var tilkynnt sigurvegara dróttskáta og rekkaskáta keppnanna svo fengu allir þátttakendur mótsmerkið sem Haukur Landnemi hannaði. Þeir sem gistu í tjaldi fengu afhent sitt nýja merki. Hvert félag fékk svo þátttöku viðurkenningu sem fararstjórar tóku við. Helgin gekk stórkostlega og fá allir sjálfboðaliðar stórt hrós frá mótstýru sem hefði ekki geta þetta án þeirra. Stórt hrós á Daða Má sem tók glæsilegar myndir. Stórt hrós á Jón Andra sem hljóp um alla helgina að græja allt sem græja þurfti. 

Share this article