Effelturninn súrraður á Úlfljótsvatni!
Helgina 25. – 27. apríl síðastliðinn mættu 36 dróttskátar víðsvegar af höfuðborgarsvæðinu á súrr viðburðinn – DS. Súrr-realisma á Úlfljótsvatni. Viðburðurinn var haldinn af Grænjöxlunum, viðburðarsveit sem var að halda sinn annan viðburð. Síðast héldu Grænjaxlarnir 18:23 árið 2023 svo það stefnir í eitthvað spennandi 2027.
Hugmyndin með DS.Súrr-realisma var að þátttakendurnir fengu tækifæri til þess að súrra eitthvað flippað, annað en þeir eru vanir að gera á skátamótum eða fundum, sem þeir gerðu svo sannarlega. Hitt markmiðið okkar var að gista í tjöldum og halda í klassíska tjaldútilegu stemningu. Helgin byrjaði á því að þátttakendurnir skiptu sér í flokka og plönuðu hvað þeir ætluðu að súrra daginn eftir.
Flokkarnir voru
- Alltaf aftur, sem súrruðu stað til að hanga
- Df. Zipz, sem súrruðu aparólu á upphækkuðum palli
- Föðurlandsþjófarnir, sem súrruðu borð með hangandi bekk og netahengirúmi
- Gervi-Frakkar, sem súrruðu Eiffel turninn (e.þ.s. þrífótaþrífóturinn)
- Klifurgengið, sem súrraði brú með neti
- Reynir, sem súrraði stað til að hanga
Laugardagurinn byrjaði á fánaathöfn, morgunleikfimi og fána og svo fór restin af deginum í að súrra. Þess á milli skiptust flokkarnir á að elda fyrir hópinn, sem heppnaðist ljómandi vel. Á laugardagskvöldinu, þegar allar súrr-byggingar voru reistar, var haldin skemmtileg kvöldvaka þar sem allir flokkarnir voru með skemmtiatriði og svo var farið í æsispennandi næturleik – þorpaleikinn. Dagurinn endaði svo á klassísku skátakakó og kexi. Á sunnudeginum fengu þátttakendurnir tækifæri til að sýna hvort öðru trönubyggingarnar sínar áður en tekið var saman og haldið heim á leið.
Vert er að minnast á að mikil áhersla var lögð á öryggi og flokkarnir sem voru að súrra hátt uppi voru vel tryggðir í beltum og hjálmar hafðir við alltaf þegar eitthvað átti á hættu á að detta niður á fólk. Einnig var lagt upp með að skera ekki á nein bönd, #Náttturuvinur, en til að gera það þarf að brenna endana strax og böndin eru skorin og setja smá vinnu í að leysa hnútana á sunnudeginum.
Það sem stóð upp úr á viðburðinum var að sjá hugmyndir flokkana verða að veruleika; að sjá samvinnuna, þrautsegjuna og metnaðinn sem þurfti til að fá allar trönubyggingarnar til að rísa. Þeir gáfust ekki upp, þó svo að súrrið hafi verið erfitt. Þá fundu þeir nýjar leiðir og héldu áfram að reyna. #PGM! (Plana, gera og meta).
Frétt skrifuð af Grænjöxlum.