Verkefni 12 – Tilraunir með sápu
Það er hægt að leika sér endalaust með sápu. Hér koma nokkrar hugmyndir að tilraunum sem hægt er að gera með sápustykkjum! Mikilvægt er að foreldrar/forráðamenn fylgi börnunum sínum vel í þessum tilraunum.
Sápuský
Fyrsta tilraunin er að sjá hvað gerist þegar þú setur sápu í örbylgjuofn. Fylgdu leiðbeiningunum vel og fylgstu með hvað gerist. Verður þín sápa að sápuskýi?
Það sem þú þarft:
- Disk
- Sápustykki
- Örbylgjuofn
Aðferð:
- Sápustykkið tekið úr umbúðum og sett á disk
- Diskurinn er settur í örbylgjuofn
- Settu tímann á 80-90 sekúndur, fylgstu vel með
Sápufroða
Önnur tilraunin snýst um að búa til froðu úr sápunni. Við mælum með að taka froðuna með í baðið eða út að leika! Þú getur skipt froðunni upp í nokkrar skálar og litar þær allar með sitthvorum litnum!
Það sem þú þarft:
- Matskeiðar
- Desilítramál
- Blandara eða hrærivél
- Uppþvottalög
- Maíssterkju
- Matarliti
Aðferð:
- 0,75 dl vatn
- 2 msk uppþvottalögur
- 2 msk maíssterkja
- Matarlitur (ég var með grænan uppþvottalög sem blandaðist síðan við litina)
- Allt sett í blandara og blandað saman
- Þegar ágætis froða er komin þá er henni hellt í baðið, balann eða vaskinn
- Litunum blandað við og þá er ekkert eftir nema leika sér með froðuna
Tunglsandur
Næsta tilraun er að búa til leir eða tungsland (moon sand fyrir þau sem þekkja það) með sápu sem hægt er að nýta til handþvottar eftir tilraunina.
Það sem þú þarft:
- Skál
- Skeið til að hræra
- Maíssterkju
- Kókosolíu
- Sturtusápa (body wash) (handsápa var notuð í sýnimyndum)
- Matarlitur (getur splittað deiginu og sett nokkra liti, mæli með að vera í hönskum)
- Ilmolía (valkvætt, ekki nauðsynlegt)
Aðferð:
- 2,5 dl maíssterkja
- 1,25 dl sturtusápa
- 1 msk kókosolía
- Dropar af ilmolíu (þarf ekki)
- Öllu blandað vel saman
- Matarlitum bætt við ef þið viljið
- Leika sér með áferðina og litina
- Gaman að nýta þetta í bað eða sturtu
Óvæntur glaðningur inn í sápunni
Það er líka hægt að búa til óvæntan glaðning fyrir fjölskyldu og/eða vini 🙂 Búðu til sápubolta og feldu óvænta glaðninginn (lítið leikfang, skopparabolta…) inn í boltanum.
Það sem þú þarft:
- Sápustykki
- Lítið leikfang
- Rifjárn
- Skál
- Örlítið af vatni, gott að hafa það í spreybrúsa
Aðferð:
- Notaðu rifjárnið til að skræla sápuna í spænir
- Taktu síðan smá sápu í hendina og leikfangið
- Sprautaðu nokkrum dropum af vatni á sápuna og byrjaðu að móta
- Bættu síðan við sápu og vatni eftir þörfum
- Gott að setja meira vatn en lítið svo hún haldist vel saman, líka hægt að bæta við kókosolíu.
- Hægt að setja í ísskápinn í smá stund til að hún festist betur saman
- Leika sér með sápuna í baði eða gefja einhverjum hana
Fleiri Stuðkví verkefni:
04/05/2020
Lokafærslan: Happdrætti og merki
Happdrætti og merki Við viljum byrja á því að þakka öllum fyrir frábæra þátttöku! Við sendum sérstakar…
30/04/2020
Verkefni 46 – Útieldun
Verkefni 46 – Útieldun Ertu búin að ákveða hvað á að vera í matinn í dag? En ertu búin að ákveða hvar…
29/04/2020
Verkefni 45 – Moltutunna
Verkefni 45 – Moltutunna Eitt af helstu markmiðum okkar í tengslum við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna…
28/04/2020
Verkefni 44 – Vinabönd
Verkefni 44 – Vinabönd Heimsmarkmið númer 17 er samvinna um heimsmarkmiðin þar sem mikilvægt er að…
27/04/2020
Verkefni 43 – Hunangsflugur
Verkefni 43 – Hunangsflugur Hvað hefur þú séð margar hunangsflugur í sumar? Það hafa tvær risa stórar…
26/04/2020
Verkefni 42 – Heimsmarkmiðin heim
Verkefni 42 – Heimsmarkmiðin heima Í dag er markmiðið að vita meira um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna…
25/04/2020
Verkefni 41 – Dagur umhverfisins
Verkefni 41 – Dagur umhverfisins Stóri plokkdagurinn Í dag blæs Félagsskapurinn Plokk á Íslandi til…
24/04/2020
Verkefni 40 – Ræktaðu þitt eigið grænmeti
Verkefni 40 – Ræktaðu þitt eigið grænmeti Í dag ætlum við að setja upp aðstöðu til þess að rækta okkar…
23/04/2020
Verkefni 39 – Heimagerður ís í poka
Verkefni 39 – Heimagerður ís í poka Gleðileg sumar! Nú er sumarið, sem flestir eru búin að bíða spennt…