Sumaropnun og skátabúðin flytur tímabundið
Afgreiðslutímar skrifstofu Skátamiðstöðvarinnar munu taka breytingum frá 14. júní og verða eftirfarandi:
Mánudag - Fimmtudag | Föstudag | |
---|---|---|
14. - 28. júní | 09:00 - 16:00 | 09:00 - 13:00 |
1. júlí - 19. júlí | Skert þjónusta | Skert þjónusta |
19. júlí - 26. júlí | Lokað | Lokað |
29. júlí - 12. ágúst | Skert þjónusta | Skert þjónusta |
Frá og með 1. júlí mun hluti af starfsfólki færa starfstöð sína á Úlfljótsvatn vegna Landsmóts og verður því þjónusta Skátamiðstöðvarinnar skert. Hægt verður að hafa samband í tölvupósti eða hringja í 550-9800.
Eftir landsmót taka við sumarleyfi starfsfólks og verður því þjónusta áfram skert fram í miðjan ágúst.
Skátabúðin flytur tímabundið á Úlfljótsvatn vegna Landsmóts skáta. Skátabúðin verður lokuð 1. júlí vegna flutninga. Að öðru leiti verða opnunartímar hennar eftirfarandi:
Skátabúðin | |
---|---|
1.júlí | Lokað |
2. -11. júlí | Opið á Úlfljótsvatni |
12. - 19. júlí | Opið fyrir landsmótsgesti |
20. júlí - 16. ágúst | Lokað en hægt að senda póst |
Á lokunartíma er hægt að senda fyrirspurnir í tölvupósti.