Hleð Viðburðir

Upphaf – Vetraráskorun CREAN 2025

Um viðburðinn:

Vetraráskorunin CREAN hefst með fræðslukvöldi 29. ágúst þar sem farið er yfir vegferðina sem liggur framundan, áskorunina, leiðarbókina og markmiðin.

Þetta kvöld er einungis fyrir þau sem eru skráð í áskorunina.

Um vetraráskorun Crean:

Verkefnið er samstarfsverkefni BÍS og Scouting Ireland. Crean vetraráskorun hefur verið haldin síðustu þrettán ár og stendur yfir sjö mánaða tímabili sem lýkur í viku löngum leiðangri um Hellisheiði. Verkefnið hefur verið vel sótt og frá Írlandi koma allt að 30 skátar sem hafa farið í gegnum langt umsóknar- mats- og undirbúningsferli og er BÍS með 16 pláss fyrir þátttakendur frá Íslandi.

Markmið verkefnisins

Markmið verkefnisins er að þátttakendur öðlist færni í útivist í mismunandi aðstæðum ásamt sjálfbærni í vetrarferðum á fjöllu. Skátarnir læra undirstöðuatriði fjallaferða og vetrarferðamennsku. Meðal annars skyndihjálp á fjöllum, gönguferðir að vetri, rötun og kortalestur, að nota GPS, næringarfræði ferðamannsins, skálahegðun og ferðareglur í hópferðum, veðurfræði á fjöllum, og ýmislegt annað. Verkefnið skiptist í þrennt;  fjórar undirbúnings ferðir, persónuleg verkefni unnin í frítíma og ferðinn í febrúar.

Fyrir hverja

Takmarkað pláss er fyrir þátttakendur og mun elsta árið í dróttskátum fá forgang en umsóknir og umsagnir ráða úrslitum um hver verða tekin inn. Því er mikilvægt að vanda til verka við umsóknina. Ætlast er til þess að þátttakendur taki þátt í undirbúningsútilegunum og vinni að sínum settum markmiðum í leiðarbók fram að febrúarferðinni. Verkefnin eru á sviði vetrarferðamennsku, sjálfskoðunar, markmiðasetninga og samfélagsvinnu. Vinna þarf öll verkefnin á tilsettum tíma til að geta haldið áfram í áskoruninni. Skipuleggjendur áskila sér rétt til að enda þátttöku ef að þátttakendur standa ekki skil á verkefnum eða sýna að þau hafa ekki getu eða vilja til að ljúka verkefninu.

Hvenær

Crean vetraráskorunin sjálf á sér ávallt stað í febrúar en undirbúningshelgarnar dreifast um mánuðina á undan. Nákvæm dagsetning fer yfirleitt eftir hvenær hagstætt sé fyrir Írana að koma til landsins ásamt skólafríium.

Árið 2024-2025 gilda eftirfarandi dagsetningar og skiptust verkefnin í eina kvöldstund, fjórar undirbúningsútilegur og einn leiðangur um Hellisheiði.

Útilega 1
  • Fræðslukvöld: 29. ágúst, fimmtudagur í Reykjavík
  • 1. Útilega: 31. ágúst – 1. september
Útilega 2
  • Undirbúningskvöld: 3. október
  • 2. Útilega:  4. – 6. október
Útilega 3
  • Undirbúningskvöld: 19. nóvember
  • 3. Útilega: 22. – 24. nóvember
Útilega 4
  • Undirbúningskvöld: 16. janúar
  • 4. Útilega: 17-19. janúar
CREAN áskorunin
  • Undirbúningskvöld: 11. febrúar
  • CREAN áskorunin: 14. – 22. febrúar

Kostnaður

Kostnaður við Vetraráskorun Crean er  breytilegur hverju sinni og verður verðið fyrir CREAN 2025 auglýst á næstunni.

Innifalið í því er dagskrá, gisting og flutningur af heiðinni í febrúar. Þátttakendur þurfa sjálf að koma með annan mat fyrir undirbúningsferðirnar og koma sér á staðsetningar ferða og heim aftur. Þátttakendur þurfa að hafa allan helsta persónulegan búnað til vetrarferð s.s. góðan skjólfatnað, svefnpoka sem þolir vetrarveður, bakpoka og gönguskó. Ekki er nauðsynlegt að eiga klifurbúnað, ísaxir, brodda, skíði eða tjöld. Ef þátttakandi á ekki réttan búnað, er gott að athuga hvort hægt sé að fá lánaðan búnað hjá ættingjum, vinum eða jafnvel skátafélagi.

Staðsetning viðburðar á korti

Klst

Min

Sek

Lykilupplýsingar

Byrjar:
29. ágúst @ 19:00
Endar:
6. september @ 20:00
Kostnaður:
Frítt
Aldurshópar:
Dróttskátar

Skipuleggjandi

Bandalag íslenskra skáta
Sími:
550-9800
Netfang:
skatarnir@skatarnir.is
Vefsíða:
View Skipuleggjandi Website

Staðsetning

Skátamiðstöðin
Hraunbær 123
Reykjavík, Reykjavík 110 Iceland
+ Google Map
Sími:
5509800
Vefsíða:
View Staðsetning Website