Hleð Viðburðir

Roverway 2024

Um viðburðinn:

Roverway er einn af vinsælustu viðburðum fyrir rekka- og róverskáta og taka um 5000 þátttakendur þátt hverju sinni. Þetta er tilvalið tækifæri til að eignast nýja skátavini eða jafnvel endurnýja kynnin við skáta frá Jamboree eða öðrum alþjóðlegum mótum. Roverway verður haldið í Stavanger, Noregi, dagana 22. júlí – 1. ágúst 2024.

Roverway er skipt í tvo hluta:

  • Fyrri hluta mótsins fá þátttakendur val um mismunandi gönguleiðir í Noregi sem þau fara með flokknum sínum og fá þar tækifæri á að kynnast norskri menningu og náttúru.
  • Seinni hluta mótsins sameinast svo flokkarnir nálægt Stavanger og taka þar saman þátt í tjaldbúðarmóti.

 

Roverway er fyrir skáta fædd á tímabilinu 1. ágúst 2001 – 22. júlí 2008.

Þau sem eru fædd fyrir 1. ágúst 2001 geta farið sem IST á mótið.

Kostnaður fyrir ferðina:

  • 310.000 fyrir þátttakendur á mótið. Innifalið er mótsgjald, flug, matur og stopp í Danmörku eftir mótið. ófyrirséður kostnaður og kostnaður vegna starfmanns.
  • 260.000 fyrir IST. Innifalið er mótsgjald, flug, matur og stopp í Danmörku eftir mótið, ófyrirséður kostnaður og kostnaður vegna starfsmanns.
  • 110.000 fyrir IST bara mótsgjald, ófyrirséður kostnaður og kostnaður vegna starfsmanns. ATH hér þarf IST liði að borga sjálft flug og koma sér sjálft til og frá mótsstað.

Íslenski fararhópurinn áætlar brottför 20. júlí og heimkomu 4. ágúst. Staðfestar dagsetningar koma í haust þegar hægt verður að staðfesta flug.

Frekari upplýsingar um mótið veita Valdís og Þóra Lóa en einnig er hægt að fylgjast með inná heimasíðu mótsins, á Instagram eða TikTok.

Kynning um Roverway á pdf. formi 

 

Staðsetning viðburðar á korti

Klst

Min

Sek

Lykilupplýsingar

Byrjar:
20. júlí
Endar:
4. ágúst
Aldurshópar:
Rekkaskátar, Róverskátar

Skipuleggjandi

Fararstjórn Roverway 2024

Staðsetning

Stavanger
Norway + Google Map