Hleð Viðburðir

Útilífsnámskeið 2025

Um viðburðinn:

Skíðasamband skáta stendur fyrir útilífsnámskeiði í Eyjafirði helgina 28. febrúar – 2.mars 2025.

Námskeiðið er ætlað 14 ára og eldri. 

Þátttakendur fræðast um ýmis atriði tengd vetrar útivist, svo sem klæðnað, búnað, mataræði, skyndihjálp, skíðabúnaði og margt fleira. 

Námskeiðið er að mestu leyti verklegt og fer fram að stórum hluta úti.

KYNNINGARFUNDUR

Kynningarfundur fyrir þátttakendur verður mánudaginn 17. febrúar klukkan 20:00 í Hyrnu. Boðið verður upp á streymi. Þá fá þátttakendur útbúnaðarlista og nánari upplýsingar um tilhögun námskeiðisins.

SKRÁNING

Skráningu lýkur 24. febrúar og fer hún fram inn á Sportabler aðgangi Klakks, hér. Þátttökukostnaður er 17.000 kr. og innifalið í gjaldi er gisting, matur og námskeiðisgögn. Hámarks þátttakendafjöldi er 25 skátar. 

Ath. Mikilvægt er að taka fram að þátttakendur undir lögaldri verða að vera með ábyrgðaraðila/foringja með sér. 

RÚTA

Boðið verður upp á rútu á viðburðinn með þeim fyrirvara að nægur þátttakendafjöldi náist á viðburðinn.

Rútan fer frá Skátamiðstöðinni, Hraunbæ 123, föstudaginn 28. febrúar klukkan 12:00 og er reiknað með mæting á Akureyri um 17:30.
Rútan leggur af stað frá Akureyri, sunnudaginn 11. febrúar, klukkan 15:00 og við reiknum með heimkomu klukkan 20:30 í Skátamiðstöðina.

Vert er að taka fram að ábyrgðaraðili þarf að fylgja þátttakendum undir lögaldri

Verð fyrir rútuna er 9.000 kr. og mun BÍS halda utan um skráninguna í rútuna. Stofnuð verður sér þjónustu fyrir rútuna inn á BÍS Abler sem skráðum þátttakendum verður bætt við. Þar geta þau staðfest rútuna eða afþakkað hana.

GISTING

Fyrri nóttina verður gist í skátaskálanum Valhöll. Gistirýmið þar er sameiginlegur salur þar sem þátttakendur og ábyrgðaraðilar sofa, reynt verður eftir fremsta megni að skipta þátttakendum eftir aldri og kyni.

Seinni nóttina verður gist í tjöldum, ef aðstæður og veður leyfir.

Nánari upplýsingar á tumisnaer@gmail.com eða jokkna@gmail.com 

 

Staðsetning viðburðar á korti

Klst

Min

Sek

Lykilupplýsingar

Byrjar:
28. febrúar
Endar:
2. mars
Kostnaður:
17000kr.
Aldurshópar:
Dróttskátar, Rekkaskátar, Róverskátar

Skipuleggjandi

Skíðasamband Skáta

Staðsetning

Eyjafjörður
Akureyri, Iceland + Google Map

BANDALAG ÍSLENSKRA SKÁTA


Hraunbær 123,110 Reykjavík (sjá á korti)Sími: 550 9800Netfang: skatarnir@skatarnir.is 

OPNUNARTÍMI SKRIFSTOFU

Mánudaga – fimmtudaga: 09:00 – 16:00Föstudaga: 09:00 – 13:00

SAMFÉLAGSMIÐLAR


 

Privacy Preference Center