Vinnuhelgi á Úlfljótsvatni – helgi 2
Útilífsmiðstöð skáta Úlfljótsvatni Útilífsmiðstöð skáta á Úlfljótsvatni, Grafningsvegur efri, Selfoss, IcelandUndirbúningur fyrir sumarið á Úlfljótsvatni er í fullum gangi og leitum við nú að sjálfboðaliðum sem eru tilbúnir að koma og rétt hjálparhönd á vinnuhelgum hjá okkur.
Ef þú hefur áhuga getur þú skráð þig á Sportabler til 18. apríl.
Sumardagurinn fyrsti
Sumardagurinn fyrsti 2024 er haldinn hátíðlegur fimmtudaginn 25. apríl um land allt og hafa skátar skipulagt og standa að glæsilegum og stórskemmtilegum hátíðarhöldum fyrir börn, ungmenni og fjölskyldur þeirra. Í Reykjavík Skátasamband Reykjavíkur, Skátafélögin Garðbúar í Fossvogi, Landnemar í […]
Norðurlandaþing í Færeyjum 2024
Færeyjar , Faroe IslandsSkráningafresti lokið
Norðurlandaþingið er hluti af samstarfsvettvangi skátasamtaka á Norðurlöndunum. Markmið samstarfsins er að skapa tækifæri, miðla reynslu og deila menningu á milli landanna. Einnig að geta átt samræður og samstarf um önnur alþjóðleg málefni s.s. þau sem varða WOSM og WAGGGS heimssamtökin. Hægt er að lesa meira hér: https://skatarnir.is/nsk/
Vormót Hraunbúa 2024
Skráningafrestur til 26. apríl
Vormót Hraunbúa 2024 verður haldið Hvítasunnuhelgina 17.- 20. maí. Nánari upplýsingar um staðsetningu, verð og dagskrá koma von bráðar en skráningin mun fara fram á Abler síðu Hraunbúa : https://www.sportabler.com/shop/hraunbuar
Skyndihjálparnámskeið – dagur 1
Skátamiðstöðin Hraunbær 123, Reykjavík, Reykjavík, IcelandSkráningafrestur til 20. maí
Skyndihjálparnámskeið í umsjón hinnar þaulreyndu Laufeyjar Elísabetar Gissurardóttur sem hefur kennt skyndihjálp í þrjá áratugi, námskeiðið er yfir tvo daga og samanstendur af 12 kennslustundum um ólík atriði í skyndihjálp. Í lok námskeiðs fá þau sem ljúka því skyndihjálparskírteini sem nálgast má rafrænt á vef rauða krossins. Þau sem hafa áður sótt námskeiðið og sækjast eingöngu eftir upprifjun mæta aðeins fyrri daginn og fá þannig skyndihjálparskírteini sín endurnýjuð.
Skyndihjálparnámskeið – dagur 2
Skátamiðstöðin Hraunbær 123, Reykjavík, Reykjavík, IcelandSkráningafrestur til 20. maí
Skyndihjálparnámskeið í umsjón hinnar þaulreyndu Laufeyjar Elísabetar Gissurardóttur sem hefur kennt skyndihjálp í þrjá áratugi, námskeiðið er yfir tvo daga og samanstendur af 12 kennslustundum um ólík atriði í skyndihjálp. Í lok námskeiðs fá þau sem ljúka því skyndihjálparskírteini sem nálgast má rafrænt á vef rauða krossins. Þau sem hafa áður sótt námskeiðið og sækjast eingöngu eftir upprifjun mæta aðeins fyrri daginn og fá þannig skyndihjálparskírteini sín endurnýjuð.
Drekaskátamót 2024
Útilífsmiðstöð skáta Úlfljótsvatni Útilífsmiðstöð skáta á Úlfljótsvatni, Grafningsvegur efri, Selfoss, IcelandSkráningafrestur til 1. maí
Drekaskátamót 2024 verður haldið helgina 31. maí - 2. Júní 2024, en líkt og síðustu tvö ár verður mótið yfir heila helgi. Skátarnir gista því tvær nætur frá föstudegi fram á sunnudag.
Gilwell 2024 – 2. hluti
Útilífsmiðstöð skáta Úlfljótsvatni Útilífsmiðstöð skáta á Úlfljótsvatni, Grafningsvegur efri, Selfoss, IcelandAnnar hluti Gilwell verður haldinn í tjaldbúð á Úlfljótsvatni dagana 5.-9. júní! Gilwell er tilvalið fyrir skáta, 20 ára og eldri, að upplifa 10 daga skátaævintýri sem inniheldur leiðtogaþjálfun og uppbyggingu einstaklingsins. Á Gilwell fá þátttakendur að efla og öðlast nýja […]
Landsmót 2024
Útilífsmiðstöð skáta Úlfljótsvatni Útilífsmiðstöð skáta á Úlfljótsvatni, Grafningsvegur efri, Selfoss, IcelandLandsmót skáta snýr aftur Eftir nokkur ár er loksins komið að því að við sameinumst aftur á skátamóti, hittum vini og fjölskyldu og eignumst nýja skátavini á Landsmóti skáta á Úlfljótsvatni vikuna 12.-19. júlí 2024. Hægt er að sjá frekari […]
Roverway 2024
Stavanger , Norway Skráningafresti lokið
Roverway er einn af vinsælustu viðburðum fyrir rekka- og róverskáta og taka um 5000 þátttakendur þátt hverju sinni. Þetta er tilvalið tækifæri til að eignast nýja skátavini eða jafnvel endurnýja kynnin við skáta frá Jamboree eða öðrum alþjóðlegum mótum. Roverway verður haldið í Stavanger, Noregi, dagana 22. júlí – 1. ágúst 2024.