1. Viðburðir
  2. Rekkaskátar

Views Navigation

Viðburður Views Navigation

Today

Foringjanámskeið 2024

Lækjabotnar Lækjarbotnaland 33, Kópavogur

Skráningarfrestur rennur út 1. september
Námskeiðið er ætlað starfandi skátaforingjum 16 ára og eldri og er ætlast til þess að foringjar sæki námskeiðið á fyrsta starfsári sínu.
Námskeiðið er sameiginlegt fyrir sveitar- og aðstoðarsveitarforingja.

21000kr

Ungt fólk og lýðræði 2024

Reykir Reykir, Hrútafirði, Iceland

Skráningarfrestur er 11. september
Ungmennaráð UMFÍ stendur fyrir ungmennaráðstefnunni Ungt fólk og lýðræði dagana 20. - 22. september á Reykjum í Hrútafirði.
Yfirskrift ráðstefnunnar er: UNGT FÓLK OG LÝÐHEILSA

15000kr

Forsetamerkisráðgjöf

Skátamiðstöðin Hraunbær 123, Reykjavík, Reykjavík, Iceland

Starfsráð býður rekkaskátum sem vinna að forsetamerkinu í forsetamerkisráðgjöf í Skátamiðstöðinni sunnudaginn 29. september kl 19:00. Hvort sem þú ert komin langt eða stutt í vegferðinni getur þú mætt, fengið hugmyndir og góð ráð.   Skila skal inn umsóknum 3. […]

Hringborð skátaforingja

Skátamiðstöðin Hraunbær 123, Reykjavík, Reykjavík, Iceland

Hringborðin eru vettvangur fyrir sjálfboðaliða um land allt í samskonar hlutverkum að kynnast innbyrðis, ræða sín á milli þær áskoranir sem þau mæta í sínu starfi og deila á milli sín lausnum og góðum aðferðum. Hringborðið er fyrir öll aldursbilin: […]

Frítt

Ung i Norden

Finnland

Skráningarfrestur er til 20. Ágúst
Ung i Norden er spennandi viðburður, haldinn Í Helsinki í Finnlandi helgina 11. til 13. október 2024. Viðburðurinn er  fyrir unga skáta frá Danmörku, Finnlandi, Færeyjum, Íslandi, Noregi og Svíþjóð. Þema viðburðarins er “Friður”. Yfir helgina fá þátttakendur tækifæri til að læra um og ræða frið í skátasamhenginu, í nærumhverfinu og fjær. Þátttakendur munu einnig eignast nýja vini alls staðar frá norðurlöndunum, hversu frábært er það!

200Evrur

Merkjamót Ungmennaráðs

Skátamiðstöðin Hraunbær 123, Reykjavík, Reykjavík, Iceland

Ungmennaráð kynnir Merkjamót, fyrsta viðburð sem þau hafa haldið af þessu tagi.

4000kr

Hringborð stjórnarmeðlima

Skátamiðstöðin Hraunbær 123, Reykjavík, Reykjavík, Iceland

Hringborðin eru vettvangur fyrir sjálfboðaliða um land allt í samskonar hlutverkum að kynnast innbyrðis, ræða sín á milli þær áskoranir sem þau mæta í sínu starfi og deila á milli sín lausnum og góðum aðferðum. Hringborðið er fyrir alla stjórnarmeðlimi: […]

Frítt

JOTA/JOTI 2024

Alheimsmót skáta í loftinu og á internetinu, eða JOTA-JOTI eins og það er skammstafað á ensku, er skátamót þar sem skátar frá öllum heimshornum fá tækifæri til að hittast á skátamóti þó þau séu stödd á mismunandi stöðum í heiminum. […]

Afmæli skátastarfs á Íslandi

Skátarnir á Íslandi fagna 112 ára afmæli þann 2. nóvember, en þann dag árið 1912 var fyrsta skátafélagið stofnað, Skátafélag Reykjavíkur ,,Í Fjósinu“ bak við Menntaskólann í Reykjavík.

Samskipti og siðareglur – Námskeiðaáætlun ÆV

KFUM og KFUK Holtavegur 28, Reykjavík, Iceland

Siðareglur eru mikilvægur hlekkur í því að standa vörð um hagsmuni barna og ungmenna sem taka þátt í íþrótta- og æskulýðsstarfi og til að tryggja öryggi þeirra, sem og starfsfólks og sjálfboðaliða í starfinu. Æskulýðsvettvangurinn og þau félagasamtök sem saman […]

Frítt