Hleð Viðburðir

Ds. Ramus – sumarskátastarf fyrir dróttskáta

Um viðburðinn:

Ungmennaráð BÍS mun halda áfram með skátasveitina DS. Ramus í sumar!

Skátafundirnir verða á höfuðborgarsvæðinu og er öllum dróttskátum velkomið að taka þátt. Krakkar sem ekki hafa verið í skátunum eru einnig velkomin að koma og vera með í sumar.

Hvar og hvenær

Skátafundir munu fara fram víðsvegar um höfuðborgarsvæðið milli 17:30 og 19:30 á þriðjudögum og fimmtudögum frá og með 19. júní til 7. ágúst.

Hvað

Starfið byggist að mestu á flokkastarfi og gefst skátunum færi á að skapa sín eigin sumarævintýr með öðrum jafningjum á ýmsum útivistarsvæðum á höfuðborgarsvæðinu og þar í kring. Þeir skátar sem ekki skrá sig með flokk munu fá aðstoð við að finna flokk sem hentar þeim.

Fyrstu fundir

Fyrstu fundir munu fara fram á Klambratúni en mæting er við Kjarvalstaði klukkan 17:30 á fyrsta fundinn þann 29. júní.

Skráning

Til að taka þátt þarf að skrá sig inn á skraning.skatarnir.is og kostar 3000 kr fyrir hvern skáta að taka þátt í allt sumar. Ef skátinn hættir við er ekki endurgreitt staðfestingargjaldið sem er 10% af heildarverðinu.

Þátttakendur sem vegna ferðalaga eða annars komast ekki á alla fundi, eru engu að síður hvött til að taka þátt.

Mikilvægt er síðan að fylgjast vel með upplýsingum á Sportabler. Einnig þarf að láta vita fyrir hvern fund hvort skáti mætir eða ekki. Ef lágmarksmæting (4 skátar) næst ekki á fund fyrir hádegi sama dag fellur fundurinn þann daginn niður.

Áhugasamir foringjar

Hér er hlekkur á foringjaskráningu fyrir áhugasama foringja.

 

Skátakveðjur og hlökkum til að sjá sem flesta í sumar,
Ungmennaráð BÍS

Staðsetning viðburðar á korti

Klst

Min

Sek

Lykilupplýsingar

Dagsetning:
19. júní
Tími
17:30 - 19:30
Kostnaður:
3000kr
Aldurshópar:
Dróttskátar

Skipuleggjandi

Ungmennaráð BÍS
Netfang:
ungmennarad@skatarnir.is
Vefsíða:
View Skipuleggjandi Website

Staðsetning

Klambratún
Klambratún
Reykjavík, 105 Iceland
+ Google Map

BANDALAG ÍSLENSKRA SKÁTA


Hraunbær 123,110 Reykjavík (sjá á korti)Sími: 550 9800Netfang: skatarnir@skatarnir.is 

OPNUNARTÍMI SKRIFSTOFU

Mánudaga – fimmtudaga: 09:00 – 16:00Föstudaga: 09:00 – 13:00

SAMFÉLAGSMIÐLAR


 

Privacy Preference Center