Fjarfundur -Opinn kynningarfundur fyrir Alheimsmót 2027

Fararstjórar íslenska fararhópsins á Alheimsmót skáta 2027 bjóða öllum áhugasömum skátum og aðstandendum á opinn fjarfund á Teams, miðvikudaginn 7. janúar klukkan 20:00.
Hér er hægt að finna slóð á fjarfundinn: SLÓÐ Á FJARFUND
Þessi opni kynningarfundur er tilvalinn fyrir þá skáta og aðstandendur sem misstu af kynningarfundi hjá sínu skátafélagi og er opni kynningarfundurinn opinn öllum þvert á skátafélög.
Á fundinum verður farið yfir:
  • Hvað er Alheimsmót skáta
  • Hvar og hvenær verður mótið
  • Hvernig lítur mótssvæðið út
  • Fyrir hverja er mótið
  • Skráningarferlið og hæfnikröfur
  • Þátttökuverð
Hægt er að skoða nánari upplýsingar um Alheimsmót skáta á heimasvæði fararhópsins hér.
Ef það eru einhverjar spurningar þá er hægt að senda þær á fararstjórana í gegnum netfangið þeirra Jambo2027@skatarnir.is

BANDALAG ÍSLENSKRA SKÁTA


Hraunbær 123,110 Reykjavík (sjá á korti)Sími: 550 9800Netfang: skatarnir@skatarnir.is 

OPNUNARTÍMI SKRIFSTOFU

Mánudaga – fimmtudaga: 09:00 – 16:00Föstudaga: 09:00 – 13:00

Privacy Preference Center