Drekaskátar, gróðursetning, tré

Aðalfundur Skógarskáta 2025

Aðalfundur félags skógarskáta Úlfljótsvatni

Verður haldinn í húsakynnum BÍS Hraunbæ 123 í Reykjavík miðvikudaginn 21. maí 2025 kl. 20:00

 

Dagskrá

Fundarsetning, kjör fundarstjóra og fundarritara.

  1. Lesin fundargerð síðasta aðalfundar.
  2. Skýrsla stjórnar og umræður um hana.
  3. Ársreikningar lagðir fram til umræðu og samþykktar.
  4. Lagabreytingar.
  5. Kosning formanns. Kosning annarra stjórnarmanna; ritara og gjaldkera
  6. Kosning skoðunarmanns/endurskoðanda og varamanns hans.
  7. Ákvörðun félagsgjalda.
  8. Önnur mál.
  • Veitingar að venju í boði félagsins
  • Ungmennaráð koma með kynningu á verkefninu sínu Tré og tjútt sem þau munu vinna í samstarfi við Skógræktarfélag Reykjavíkur.
  • Elisabeth hjá Skógræktarfélagi Úlfljótsvatns kíkir í einnig í heimsókn

 

„Skógarskátar hafa starfað að skógrækt við Úlfljótsvatn allt frá 1987 og lagt þar með vel til „undralands skátanna“.

Vonumst eftir góðri mætingu.

Með skógarkveðju,

Ragnheiður, Brynjar og Valgerður