Kynningafundur - Landsmót skáta 2026

Landsmót skáta verður haldið að Hömrum 20 - 26. júlí 2026.

Við viljum fá þig með í ævintýrið! Komdu á kynningarfund í grænu hlöðunni á Hömrum, þar sem við deilum fyrstu upplýsingum um mótið og hvernig þú getur tekið þátt.

 

Vertu með og taktu þátt í að skapa ógleymanlegt skátamót.

Öll áhugasöm velkomin - skátar, foreldrar og önnur sem vilja vera með í þessu einstaka tækifæri.

 

Boðið verður upp á léttar veitingar, hlökkum til að sjá þig!