Upplýsingafundur Drekaskátamóts
Upplýsingafundur um Drekaskátamót 2025 verður haldinn þriðjudaginn 20. maí kl. 17:30 í Skátamiðstöðinni, Hraunbæ 123. Fundurinn er fyrir drekaskátaforingja, fararstjóra og stjórn skátafélaga.
Fulltrúar mótstjórnar mun kynna umgjörð mótsins, dagskrána ásamt því að svara öllum þeim spurningum, sem þið kunnið að hafa, eftir bestu getu.
Að sjálfsögðu verðu hægt að taka þátt í gegnum fjarfundarbúnað en við hvetjum þau sem geta að mæta í persónu. Hér er tengill fyrir fjarfund á Teams.
Rekka- og róverskátamót
Rekka- og róverskáta mót verður haldið 14. - 20. júlí 2025.
NÁTTÚRULEGA VATNALEIÐIN
Rekka-og róverskátamót 2025 verður haldið vikuna 14.-20. júlí á Snæfellsnesi. Líkt og síðustu skipti sem mótið var haldið skiptist það í tvo mótshluta: gönguhluta og tjaldbúðarhluta.
Gönguhluti mótsins nær frá mánudeginum 14. júlí til fimmtudagsins 17. júlí en þá tekur við tjaldbúðarhluti mótsins fram á sunnudaginn 20. júlí.
Staðsetning
Í gönguhluta mótsins verður tekist á við Vatnaleiðina. Gengið verður frá Bifröst að Hlíðarvatni í þremur leggjum, Bifröst - Langavatn - Hítarvatn - Hlíðarvatn.
Tjaldbúðarhluti mótsins fer fram við Hallkelsstaðahlíð við Hlíðarvatn.
Verð
Mótsgjaldið skiptist í tvennt, eitt gjald fyrir gönguhlutann og eitt gjald fyrir tjaldbúðarhlutann.
Verðið fyrir gönguhlutann er 25.000 kr (innifalið er m.a. trúss, gistinátta- og aðstöðugjald á leiðinni)
Verðið fyrir tjaldbúðarhlutann er 30.000 kr (innifalið er gistináttagjald og matur í tjaldbúð)
ATH matur er EKKI innifalinn í gönguhluta mótsins.
Dagskrá
Dagskrá verður með svipuðu sniði og áður, mæting á mánudegi á upphafsstað, þrír göngudagar þriðjudagur-fimmtudags þar sem gengið verður Vatnaleiðina og tjaldbúð frá fimmtudegi til sunnudags þar sem unnin verður tjaldbúðarvinna, samfélagsverkefni og ýmis dagskrá í nágrenni Hlíðavatns. Nánari upplýsingar um dagskrána munu berast síðar.
Matur
Matur er innifalinn í tjaldbúðarhluta mótsins. Þátttakendum verður skipt í flokka sem munu skiptast á að elda fyrir þátttakendur mótsins. Áhöld og búnaður til eldunar verða á staðnum en þátttakendur skulu koma sjálf með matarsett. ATH matur er EKKI innifalinn í gönguhluta mótsins.
Undirbúningur fyrir mótið
Boðið verður upp á undirbúningsgöngur fyrir mótið. Skátar á þátttöku aldri eru hvött til að nýta tímann fram að móti til að fara í gönguferðir og fjallgöngur ásamt því að rifja upp kortalestur og notkun áttavita í rötun.
Sjálfboðaliðar
Þau sem eru áhugasöm um að vera sjálfboðaliðar eru beðin um að hafa samband við mótsstjórn. Sjálfboðaliðar gætu þurft að greiða gjald fyrir þátttöku sem verður auglýst síðar. Sjálfboðaliðar þurfa að vera eldri en þátttakendur á mótinu, þ.e. einungis eldri skátar geta verið sjálfboðaliðar. Allir sjálfboðaliðar þurf að hafa skrifað undir Sakaskrárheimild og Sæmdarheit sem má nálgast hér.
Ef spurningar vakna má senda þær beint á mótsstjórn hér.
Drekaskátamót 2025
Drekaskátamót 2025 verður haldið helgina 13. - 15. júní 2025, en líkt og síðustu tvö ár verður mótið yfir heila helgi. Skátarnir gista því tvær nætur frá föstudegi fram á sunnudag.
Fyrir þátttakendur
Verð
Mótsgjaldið er 11.000 kr. Innifalið í því er tjaldsvæðið (félögin koma sjálf með tjöld), kvöldmatur og kvöldkaffi bæði föstudag og laugardag ásamt allri dagskrá.
Athygli er vakin á að skátafélögin sjálf bæta oft sameiginlegum kostnaði ofan mótsgjaldið sem þau rukka beint til sín. Þá er yfirleitt verið að greiða fyrir t.d. ferðakostnaði á mótsvæðið, sameiginlegum mat, sameiginlegum sveitareinkennum eða auka búnaði sem félagið þarf það bæta við.
Skráning
Skráning á mótið fer fram inn á skraning.skatarnir.is en hún opnar 22. febrúar.
En við skráningu er mikilvægt er að velja rétt skátafélag svo skátafélögin sjái skráningu sína skáta.
Vakin er athygli á því að stundum vilja sum félög halda sjálf utan um alla skráningu og rukkað fyrir bæði mótsgjald og sameiginlegan kostnaði hjá sér og því mikilvægt að fylgjast með hjá sínu skátafélagi hvernig þau vilja halda utan um skráningar.
Dagskrá og undirbúningur
Dagskrá verður með svipuðu sniði og hefur tíðkast en nánari upplýsingar um ítarlega dagskrá munu berast til skátafélaganna í upplýsingabréfum mótstjórnar.
Fyrir skátafélögin
Skátafélögin eru beðin um að senda upplýsingar um fararstjóra og foringja á Skátamiðstöðina svo hægt sé að bæta þeim inn á skráningasíðunni sem fyrst svo fararstjórarnir geti fylgst með skráningum sinna skáta.
Félögin fá einn frían foringja fyrir hverja tíu skáta sem eru skráð á félagið.
Fyrir frekari upplýsingar er hægt að hafa samband við drekaskátamótstjórnina á netfanginu : drekaskatamotstjorn@skatarnir.is
Fararstjórafundur verður í Skátamiðstöðinni 20. maí, klukkan 17:30. Hægt er að tengjast fjarfundi hér.
Upplýsingabréf mótstjórnar
- Almennar upplýsingar
- Dagskrá mótsins
- Verð og hagnýtar upplýsingar
- Sniðmát að upplýsingabréfi til forsjáraðila
- Upplýsingar um mætingu á mótsvæðið og fararstjórafundur
Fyrir sjálfboðaliða
Sér skráning fyrir sjálfboðalið er inn á Abler síðu Skátamóta. Við vekjum athygli að sjálfboðaliðaskráningin er tvískipt eftir aldri, svo passið að skrá ykkur í réttan aldursflokk.
Sjálfboðaliðar geta verið á rekkaskátaaldri eða eldri en öll sem eru yfir átján ára verða að skrifa undir sakavottorðsheimild hjá BÍS.
Einnig viljum við biðja þau sem skrá sig að svara spurningum hér á þessu formi sem hjálpa mótsstjórn að hafa betri yfirsýn yfir upplýsingar og áhugasvið starfsmanna:
Starfsfólk á drekaskátamóti tekur þátt í uppsetningu og frágangi mótsins, keyrir dagskrá undir leiðsögn mótsstjórnar og sinnir öðrum tilfallandi verkefnum. Auk þess er mótið fullt af fjöri og góðri stemningu, þar sem gefst tækifæri til að kynnast nýju fólki og njóta samveru í skemmtilegu umhverfi.
Dróttskátamót 2025
Skátaþing í apríl 2024 samþykkti að haldin yrðu aldursbilamót sumarið 2025. Aldursbilamótin eru skátamót fyrir hvert aldursbil á þátttakanda aldri að fyrirmynd þeirra móta sem haldin voru árin 2018 og 2022.
Dróttskátamótið verður haldið dagana 2. - 6. júlí 2025 í Viðey, Skátafélagið Landnemar eru gestgjafar mótsins.
Verð
Mótsgjaldið er 50.000 kr. Innifalið í því er tjaldsvæðið (félögin koma sjálf með tjöld), matur á meðan mótinu stendur ásamt allri dagskrá.
Athygli er vakin á að skátafélögin bæta sjálf oft sameiginlegum kostnaði ofan mótsgjaldið sem þau rukka beint til sín. Þá er yfirleitt verið að greiða fyrir t.d. ferðakostnað á mótsvæðið, sameiginleg sveitareinkenni eða auka búnað sem félagið þarf að bæta við.
Skráning
Athugið að velja rétt skátafélag við skráningu, skráning fer fram á skraning.skatarnir.is og lýkur henni 1. júní 2025
Verð fyrir skátaforingja á mótið er 17.400 kr.
Upplýsingabréf