Starfsmaður Skátafélagsins Segulls

Seglamerkið

Vilt þú taka þátt í frábæru vetrarstarfi fyrir ungmenni?

Starfsmaður Skátafélagsins Segulls– upp að 50% hlutastarf

Skátafélagið Segull óskar eftir öflugum einstaklingi í krefjandi og skemmtilegt starf starfsmanns skátafélagins. Skátafélagið er staðsett í Tindasel 3 í Breiðholti, Reykjavík og er með fjölbreytt og spennandi starf fyrir börn á aldrinum 5-25 ára.

Helstu verkefni:

  • Halda utan um skráningar
  • Auglýsa og vekja athygli á starfinu
  • Sjá um tölvupóst og halda utan um samskipti við foreldra
  • Vera stuðningur við foringja
  • Sjá um þrif einu sinni í viku

Hæfniskröfur:

  • Vera með bílpróf
  • Almenn tölvukunnátta
  • Skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Reynsla af stjórnun og mannaforráðum er kostur
  • Reynsla af skátastarfi eða öðru æskulýðsstarfi er mikill kostur

 

Frekari upplýsingar veitir stjórn Seguls í netfangi : segull@skatar.is og síma: 895 0319. Umsóknir um starfið berist stjórn Seguls sömuleiðis á netfangið segull@skatar.is