Starfsmaður fyrir skátafélagið Garðbúa
Vilt þú taka þátt í frábæru vetrarstarfi fyrir ungmenni?
Starfsmaður Skátafélagsins Garðbúa– hlutastarf
Skátafélagið Garðbúar óskar eftir öflugum einstaklingi í krefjandi og skemmtilegt starf starfsmanns skátafélagsins. Garðbúar eru með fjölbreytt og spennandi starf fyrir börn á aldrinum 8-25 ára.
Helstu verkefni:
- Halda utan um skráningar
- Sjá um tölvupóst og halda utan um samskipti við foreldra
- Vera stuðningur við foringja
- Sjá um þrif einu sinni í viku
- Uppfæra vefsíðu
- Viðvera á fundartímum o.fl.
Hæfniskröfur:
- Vera með bílpróf
- Almenn tölvukunnátta
- Skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Reynsla af stjórnun og mannaforráðum er kostur
- Reynsla af skátastarfi eða öðru æskulýðsstarfi er mikill kostur
Frekari upplýsingar veitir Sædís Ósk, dagskráforingi Garðbúa á saedis@skatarnir.com
Umsóknir skulu berast á gardbuar@gardbuar.com. Umsóknarfrestur er til 6. október 2023.