Skátaþing 2022


Fundargerð Skátaþings 2022

Hægt er að sækja fundargerð Skátaþings 2022 á pdf formi með því að smella hér.

Hér neðar á síðunni má einnig finna ýmsar fróðlegar upplýsingar um Skátaþingið s.s. allar tillögur sem afgreiddar voru á þinginu, niðurstöður kosninga, upplýsingar um atkvæðadreifingu og aldursskiptingu þingfulltrúa með atkvæðisrétt.

Athygli er vakin á því að þar sem vísun í gildandi lög, reglugerðir og stefnur BÍS leiðir alltaf á útgáfu sem er í gildi þegar þau plögg eru skoðuð en ekki eins og þau voru þegar þingið fór fram.


Upptaka skátaþings 2022

Upptaka frá föstudeginum 1. apríl

Upptaka frá aðalfundarhluta laugardags 2. apríl

Vinnusmiðjur og umræðuhópar fóru fram á síðarai hluta laugardagsins 2. apríl og allan sunnudaginn 3. apríl en því var ekki streymt.


Dagsetning Skátaþings 2022

Skátaþing var haldið dagana 1. – 3. apríl 2022, þingið fór fram á Bifröst. Skátaþing var sett á föstudegi kl. 18:00 og var þinginu slitið á sunnudegi kl. 15:00.


Mikilvægar dagsetningar fram að Skátaþingi

1. mars kl. 00:01 – Fresti skátafélaga til að skila gögnum skv. 10. grein laga BÍS til Skátamiðstöðvar lýkur
4. mars kl. 18:00
– Fresti til að skila tillögum að lagabreytingum til stjórnar BÍS lýkur.
11. mars kl. 18:00 – Fresti til að tilkynna framboð til uppstillingarnefndar lýkur.
11. mars kl. 18:00 – Fresti til að skila beiðnum um upptöku mála á Skátaþingi til stjórnar BÍS lýkur.
15. mars kl. 18:00 – Fresti uppstillinganefndar til að ljúka störfum lýkur.
18. mars kl. 18:00 – Fresti stjórnar BÍS til að senda félagsforingjum þinggögn, framboðslista og drög að dagskrá Skátaþings lýkur.
25. mars kl. 18:00 – Fresti til að skila athugasemdum um útsend gögn til Skátamiðstöðvarinnar lýkur.
25. mars kl. 18:00  – Skráning á Skátaþing lýkur
1. apríl kl. 18:00 – Skátaþing er sett, skátafélög skulu skila inn kjörbréfum.


Þinggögn

Fundarboð og dagskrá Skátaþings 2022:

Fundarboð Skátaþings 2022
Dagskrá Skátaþings 2022 – Samþykkt samhljóma

Uppgjör ársins 2021:

Ársskýrsla BÍS 2021
Ársreikningar BÍS 2021 – Samþykkt með 92,98% greiddra atkvæða (Greidd atkvæði: Já – 53, Nei – 2, Sátu hjá – 2)

Stefnumál framtíðar:

Tillaga að ársgjaldi til BÍS 2022-2023 – Samþykkt með 84,21% greiddra atkvæða (Greidd atkvæði: Já – 48, Nei – 3, Sátu hjá – 6)
Fjárhagsáætlun BÍS fyrir árin 2022 og 2023 – Samþykkt með 96,15% greiddra atkvæða (Greidd atkvæði: Já – 49, Nei – 5, Sátu hjá – 2)
Starfsáætlun BÍS árin 2022-2026 – Samþykkt með 87,5% greiddra atkvæða (Greidd atkvæði: Já – 53, Nei – 2, Sátu hjá – 2)

Gildandi lög, reglugerðir og stefnur BÍS:

Lög BÍS
Grunngildi BÍS
Stefna BÍS til 2025 – Fyrirmynd til framtíðar

Reglugerð BÍS um einkennismerki skáta
Reglugerð BÍS um heiðursmerki
Reglugerð BÍS um hæfi skátaforingja
Reglugerð BÍS um hæfi leiðbeinenda
Reglugerð BÍS um Landsmót
Reglugerð BÍS um skátamót
Reglugerð BÍS um styrktarsjóð skáta
Reglugerð BÍS um utanferðir skáta

Forvarnarstefna BÍS
Vímuvarnarstefna BÍS
Umhverfisstefna BÍS
Persónuverndarstefna BÍS


Dagskrá

Dagskrá Skátaþings 2022 á pdf formi

Fundarstjórar:

Guðmundur Finnbogason

Fundarritarar:

Elín Esther Magnúsdóttir og Erika Eik Bjarkadóttir

FÖSTUDAGURINN 1. APRÍL

18:00   
1.          Setning Skátaþings 2022
2.         Kosning fundastjóra og fundarritara
3.         Ávörp
4.         Kosning í kjörnefnd og allsherjarnefnd
Styrktarsjóður skáta – Kynning á úthlutunum 2022
Afhending skipunarbréfa
18:50   
Kaffihlé
Starfsgrunnurinn – Kynning
Þjónandi Skátamiðstöð – Kynning
Skátaskólinn – Kynning
Úlfljótsvatn – Kynning
Kynningarcarnival
20:55   
5.         Niðurstaða kjörnefndar kynnt
6.         Tillaga að dagskrá Skátaþings rædd og afgreidd
7.         Kosningar í embætti
8.         Afhending heiðursmerkja
Skátaþingi frestað til 09:00 daginn eftir
22:15  
Dagskrártilboð – Kvölddagskrá

LAUGARDAGURINN 2. APRÍL

07:00    
Dagskrártilboð – Útihlaup, ganga og jóga
08:00  
Morgunmatur opnar
08:45
Mæting
09:00 
9.         Skýrsla stjórnar BÍS – kynning og umræður
10.        Starfsáætlun stjórnar 2022-2026 kynnt, rædd og afgreidd
11.         Ársreikningar BÍS kynntir, ræddir og afgreiddir
12.        Tillaga að ársgjaldi til BÍS 2022-2023 kynnt, rætt og afgreitt
13.        Fjárhagsáætlun BÍS 2022-2023 kynnt, rædd og afgreidd
10:30
Kaffihlé
14.        Lagabreytingatillögur
12:15
Hádegishlé
13:00
15.        Jafnréttisstefna BÍS kynnt, rædd og afgreidd
16.        Önnur mál
Stjórnarskipti
13:50 
17.        Aðalfundarstörfum lýkur
14:00
Kynning á smiðjum og umræðuhópum
Smiðjur og umræðuhópar – Umferð 1
Skipti, kex og kaffiáfylling
15:05
Smiðjur og umræðuhópar – Umferð 2
15:55
Skátaþingi frestað til 09:45 daginn eftir
16:00
Dagskrártilboð – Síðdegisdagskrá
19:30   
Hátíðarkvöldverður – val

SUNNUDAGURINN 3. APRÍL

09:45 
Kynningar á smiðjum og umræðuhópum í fyrra holli
10:00  
Smiðjur og umræðuhópar fyrra holl – Umferð 1
Skipti, kex og kaffiáfylling
11:05 
Smiðjur og umræðuhópar fyrra holl – Umferð 2
Hádegismatur
12:35  
Kynningar á smiðjum og umræðuhópum í seinna holli
12:45 
Smiðjur og umræðuhópar seinna holl – Umferð 1
Skipti, kex og kaffiáfylling
13:50  
Smiðjur og umræðuhópar B holl – Umferð 2
Þingslit
15:00 
Brottför


Tillögur til afgreiðslu á Skátaþingi

Tillaga um fjölgun í fastaráðum Flutningsaðili: Stjórn BÍS – Samþykkt með 91,52% greiddra atkvæða (Greidd atkvæði: Já – 54, Nei – 2, Sátu hjá – 3)

Drög að jafnréttisstefnu BÍS Flutningsaðili: Þórhildur Elínardóttir Magnúsardóttir skv. samþykkt Skátaþings 2021 – Samþykkt samhljóða


Kjör á Skátaþingi 2022

Samkvæmt 17. grein laga BÍS fara kosningar fram á sléttu ártali.  Kosið er í öll hlutverk til tveggja ára.

Eftirtalin hlutverk eru laus til kjörs:

Stjórn:
Skátahöfðingi
Gjaldkeri
Fimm meðstjórnendur

Fastaráð
Þrjú sæti í alþjóðaráði
Þrjú sæti í starfsráði
Þrjú sæti í stjórn Skátaskólans
Þrjú sæti í ungmennaráði

Önnur hlutverk:
Fimm sæti í uppstillingarnefnd
Þrír félagslegir skoðunarmenn reikninga
Löggiltur endurskoðandi

Til þess að sjá nánari upplýsingar um ráðin og hlutverk,  Sjá tilkynningu frá uppstillinganefnd vegna Skátaþings 2022.

Tilkynningar um framboð skulu berast skriflega eða í tölvupósti til uppstillingarnefndar eigi síðar en 4. mars kl. 18:00, netfang uppstillingarnefndar er uppstillingarnefnd@skatarnir.is.

Uppstillingarnefnd skipa:
Berglind Lilja Björnsdóttir
Birgir Ómarsson
Katrín Kemp Stefánsdóttir
Sigurður Viktor Úlfarsson
Sædís Ósk Helgadóttir


Kynning frambjóðenda

Hér mun birtast kynning á frambjóðendum eftir að uppstillingarnefnd lýkur störfum. Það verður ekki síðar en 15. mars klukkan 18:00.

Skátahöfðingi til tveggja ára

Harpa Ósk Valgeirsdóttir – Skátafélaginu Ægisbúum

Gjaldkeri til tveggja ára

Sævar Skaptason – Skátafélaginu Kópum

Fimm meðstjórnendur til tveggja ára

Guðrún Stefánsdóttir – Skátafélaginu Hraunbúum
Huldar Hlynsson – Skátafélaginu Vífli
Jón Halldór Jónasson – Skátafélaginu Kópum
Unnur Líf Kvaran – Skátafélaginu Skjöldungum & Fossbúum
Þórhallur Helgason – Skátafélaginu Segli

Þrír meðlimir í alþjóðaráð til tveggja ára

Agnes Lóa Gunnarsdóttir – Skátafélaginu Segli
Daði Björnsson – Skátafélaginu Skjöldungum
Daði Már Gunnarsson – Skátafélaginu Árbúum

Þrír meðlimir í starfsráð til tveggja ára

Jóhanna Björg Másdóttir – Skátafélaginu Kópum
Sigurður Viktor Úlfarsson – Skátafélaginu Landnemum
Védís Helgadóttir – Skátafélaginu Landnemum

Þrír meðlimir í stjórn Skátaskólans til tveggja ára

Björk Norðdahl – Skátafélaginu Kópum
Dagbjört Brynjarsdóttir – Skátafélaginu Mosverjum
Ísak Árni Eiríksson Hjartar – Skátafélaginu Mosverjum
Kristín Hrönn Þráinsdóttir – Skátafélaginu Kópum
Ath! Tillögu stjórnar BÍS um fjölgun í fastaráðum

Þrír meðlimir í útilífsráði til tveggja ára

Hjálmar Snorri Jónsson – Skátafélaginu Kópum
Jakob Frímann Þorsteinsson – Skátafélaginu Garðbúum
Sif Pétursdóttir – Skátafélaginu Skjöldungum
Ævar Aðalsteinsson – Skátafélaginu Mosverjum
Ath! Tillögu stjórnar BÍS um fjölgun í fastaráðum

Fimm meðlimir í uppstillingarnefnd

Berglind Lilja Björnsdóttir – Skátafélaginu Segli
Hafdís Bára Kristmundsdóttir – Skátafélaginu Vífli
Jón Ingvar Bragason – Skátafélaginu Kópum
Reynir Tómas Reynisson – Skátafélaginu Garðbúum
Sædís Ósk Helgadóttir – Skátafélaginu Garðbúum

Þrír félagslegir skoðunarmenn til tveggja ára

Guðmundur Þór Pétursson – Skátafélaginu Skjöldungum
Jón Þór Gunnarsson – Skátafélaginu Hraunbúum
Kristín Birna Angantýrsdóttir – Skátafélaginu Kópum

Löggiltur endurskoðandi

Endurskoðun fer fram hjá PWC


Lagabreytingatillögur

Hér munu birtast lagabreytingatillögur sem bárust stjórn BÍS fyrir 4. mars 2022 jafnóðum og þær berast. Allar skulu þær birtar eigi síðar en 18. mars kl. 18:00.

Lagabreytingatillaga – 2. grein, um styrkingu forvarna og viðbragðsferla ÆV í lögum BÍS Flutningsaðilar: Stjórn BÍS auk hóps félagsforingja – Samþykkt með 98,3% greiddra atkvæða (Greidd atkvæði: Já – 58, Nei – 1, Sátu hjá – 0)

Lagabreytingartillaga – 9. & 20. grein, um stjórnir skátafélaga og félagaþrennuna  Flutningsaðili: Stjórn BÍS – Samþykkt með 72,41% greiddra atkvæða (Greidd atkvæði: Já – 42, Nei – 14, Sátu hjá – 2)

Lagabreytingartillaga – 10. grein, um skil á gjöldum og gögnum fyrir Skátaþing Flutningsaðili: Stjórn BÍS – Samþykkt með 94,92% greiddra atkvæða (Greidd atkvæði: Já – 56, Nei – 3, Sátu hjá – 0)

Lagabreytingartillaga – 14. grein, um aðkomu fullorðinna að skátastarfi Flutningsaðili: Stjórn BÍS – Samþykkt með 96,67% greiddra atkvæða (Greidd atkvæði: Já – 58, Nei – 1, Sátu hjá – 1)

Breytingartillaga á lagabreytingartillögu Þórhildar á 19. grein. Flutningsaðili: Stjórn BÍS – Samþykkt með 96,43% greiddra atkvæða (Greidd atkvæði: Já – 54, Nei – 1, Sátu hjá – 1)
Lagabreytingartillaga – 19. grein, um lagfæringar á lögum um uppstillingarnefnd Flutningsaðili: Stjórn BÍS – Kom ekki til afgreiðslu þar sem breytingartillaga sem gekk lengra var samþykkt.

Lagabreytingartillaga – 19. grein, um störf uppstillingarnefndar Flutningsaðili: Þórhildur Elínardóttir Magnúsdóttir – Kom ekki til afgreiðslu þar sem breytingartillaga sem gekk lengra var samþykkt.

Lagbreytingartillaga – 20. grein, um að binda atkvæði á Skátaþingi ungmennum Flutningsaðili: Þórhildur Elínardóttir Magnúsdóttir – Felld, jafn mörg greiddu með og á móti (Greidd atkvæði: Já – 29, Nei – 29, Sátu hjá – 2)

Lagabreytingartillaga – 20. grein, um aldurstakmörk atkvæðisbærra fulltrúa á Skátaþingi Flutningsaðili: Þórhildur Elínardóttir Magnúsdóttir – Felld, náði eingöngu samþykkt 53,33% greiddra atkvæða (Greidd atkvæði: Já – 32, Nei – 23, Sátu hjá – 5)

Breytingartillaga á lagabreytingartillögu Þórhildar á 22.greinFlutningsaðili: Stjórn BÍS – Samþykkt með 89,83% greiddra atkvæða (Greidd atkvæði: Já – 53, Nei – 1, Sátu hjá – 5)

Lagabreytingartillaga – 22. grein, um fundi stjórnar Flutningsaðili: Þórhildur Elínardóttir Magnúsdóttir – Kom ekki til afgreiðslu þar sem breytingartillaga sem gekk lengra var samþykkt.


Afgreitt á Ungmennaþingi 2022

Eftirfarandi gögn eru til að upplýsa Skátaþing um mál sem afgreidd voru á Ungmennaþingi en eru þó ekki til afgreiðslu á Skátaþingi 2022.

Kjör á ungmennaþingi

Í samræmi við 16. grein laga BÍS voru eftirtaldir aðilar kjörnir á Ungmennaþingi 4.-6. febrúar 2022 í eftirtalin hlutverk:

Þrjú sæti í ungmennaráði:

Davíð Þrastarson – Skátafélaginu Garðbúum
Hersteinn Skúli Gunnarsson – Skátafélaginu Kópum
Högni Gylfason – Skátafélaginu Kópum

Áheyrnarfulltrúi ungmenna í stjórn BÍS:

Davíð Þrastarson – Skátafélaginu Garðbúum

Þingsályktunartillögur samþykktar á Ungmennaþingi:

Tillaga að nýrri reglugerð um skátabúninginn – Tekið áfram af stjórn BÍS

Áskorun um viðburðarhald á vegum BÍS – Tekið áfram af stjórn BÍS


Tölfræði um kjörmenn

Mögulegur hámarksfjöldi atkvæða

Fjöldi starfandi skátafélaga með A aðild voru 24 og fjöldi starfandi skátafélaga með B aðild voru 2 þegar Skátaþing 2020 fór fram. Því hefði mögulegur hámarksfjöldi atkvæða getað verið 98.

Atkvæði eftir félögum

Árbúar 4
Fossbúar 4
Garðbúar 4
Heiðabúar 4
Hraunbúar 4
Klakkur 4
Kópar 4
Landnemar 4
Mosverjar 4
Segull 4
Skjöldungar 4
Svanir 4
Vífill 4
Vogabúar 3
Ægisbúar 4
Radíóskátar 1
Samtals: 60

Skiluðu ekki kjörbréfi

Skátafélag Akranes
Skátafélag Borgarness
Skátafélagið Eilífsbúar
Skátafélagið Einherjar/Valkyrjan
Skátafélagið Faxi
Skátafélagið Hafernir
Skátafélagið Örninn
Skátafélagið Stígandi
Skátafélagið Strókur
Skátafélagið Sólheimar

Um ungmennaþátttöku meðal kjörmanna

Kjörmenn á þátttökualdri (Róverskátar eða yngri) voru 27 af 60 aðalfulltrúum og 9 af 16 varamönnum.

Skátafélag Aðalfulltrúar á
þátttökualdri
Aðalfulltrúar yfir
þátttökualdri
Varafulltrúar á
þátttökualdri
Varafulltrúar yfir
þátttökualdri
Ægisbúar 0 4 0 0
Árbúar 3 1 0 0
Fossbúar 1 3 3 0
Garðbúar 3 1 0 3
Heiðabúar 1 3 0 0
Hraunbúar 1 3 1 0
Klakkur 0 4 0 0
Kópar 3 1 1 0
Landnemar 3 1 0 0
Mosverjar 2 2 2 2
Radíóskátar 0 1 0 0
Segull 1 3 0 1
Skjöldungar 3 1 1 1
Svanir 4 0 0 0
Vífill 2 2 1 0
Vogabúar 0 3 0 0
Alls 27 33 9 7



Takmarkanir og verkefni vegna COVID-19

Upplýsingar um skátastarf í ljósi faraldurs

Hér má finna upplýsingar um hvernig best er að bregðast við samkomutakmörkunum og reglugerðum í skátastarfi, og verkefni fyrir skátasveitir sem vilja halda uppi fjarstarfi, bæði í formi heimaverkefna, og fjarfunda.

Tilmæli um takmarkanir

Hér má finna tilmæli varðandi nýustu reglugerðir og samkomutakmarkanir vegna COVID-19

Verkefni í fjarfundi

Hér má finna ýmis verkefni fyrir þá sem vilja halda áfram skátastarfi í formi heimaverkefna og fjarfunda

Tvær nýjar reglugerðir vegna yfirstandandi heimsfaraldurs taka gildi 13. janúar, önnur um takmörkun á samkomum og hin um takmörkun á skólastarfi sem tekur m.a. til æskulýðs og tómstundastarfs þ.m.t. skátastarfs. Samkvæmt því getur félagsstarf skáta á grunnskólaaldri hafist aftur með nokkrum takmörkunum þó, félagsstarf rekkaskáta þarf áfram að fylgja almennum samkomutakmörkunum. Fjölskylduskátastarf getur farið fram ef fjöldi fullorðinna er undir 20 og þau fylgja reglum um almennar samkomutakmarkanir, leikskólabörn eru undanskilin nálægðar- og grímuskyldu.

 

Stjórnir skátafélaga eru samt hvattar til að taka mið af ástandi í þeirra nærsamfélagi og leita líka leiðbeininga frá sínum sveitarfélögum og hverfastjórnum ef þau vita að aðrar æskulýðsstofnanir í kringum þær hafa lokað vegna smita.

Dreka- fálka- og dróttskátar (7 – 15 ára)

Þátttakendur:

  • Drekaskátar, Fálkaskátar og Dróttskátar mega vera 50 saman á skátafundi
  • Blöndun er leyfileg á milli hópa.

Staðsetning skátafunda:

  • Mælst til að vera utandyra. Ef stór hluti er í sóttkví og/eða einangrun er mælst til að hafa fundinn á rafrænum vettvangi til að auka aðgengileika.
  • Fari starf fram innanhúss skal gæta góðra þrifa á almennum snertiflötum og loftræsta rými.
  • Áfram skal gæta persónubundinna smitvarna og bjóða góða aðstöðu til handþvotts og hafa spritt aðgengilegt þátttakendum og skátaforingjum.
  • Ráðstafanir skulu gerðar til að sótthreinsa rými eftir hvern dag og á milli hópa í sama rými.

Skátaforingjar:

  • Reyna skal að halda fjölda skátaforingja í lágmarki þó ávallt vera nægur til að anna ungmennunum og gæta öryggis, samkvæmt reglugerð má fjöldi skátaforingja að hámarki vera 20.
  • Skátaforingjar skulu gæta 2 metra nálægðartakmörkunar á milli hvors annars og milli sín og barnanna eins og kostur er.
  • Skátaforingjar skulu bera andlitsgrímur þegar ekki er unnt að gæta fjarlægðartakmarkanna og er mælst til þess að þær séu bornar öllum stundum í starfi.

Starfsfólk:

Séu starfsmenn í skátafélögum gilda sömu reglur um þau og skátaforingja.

Forráðamenn, aðstandendur og aðrir aðilar:

Ekki er sérstaklega talað um forráðafólk og aðstandendur þátttakenda í reglugerð en mælst er til þess að þau ásamt öðrum sem ekki tilheyra félagsstarfi hverrar skátasveitar skulu lágmarka viðveru í skátaheimili þegar skátafundir eru haldnir. Þau skulu bera grímu öllum stundum ef þau þurfa að mæta í persónu þar sem skátasveitin er að störfum og gæta nálægðartakmarkana gagnvart þátttakendum, skátaforingjum og öðrum.

Rekka-, róver- og eldri skátar (16 ára og eldri)

Vilji skátar á þessum aldursbilum koma saman er þeim ráðlagt að færa allt það starf utandyra, vera aldrei fleiri en 20, gæta nándartakmarkana og bera grímur sé ekki hægt að tryggja þær. Áfram er mælst til að allar samkomur sem snúa að skipulagi félagsins s.s. foringjaráðsfundir, stjórnarfundir, baklandsfundir og samanbærilegt sé framkvæmt rafrænt.

Ferðir og útilegur á öllum aldursstigum

Mælst er til þess að fara eingöngu í dagsferðir. Að svo stöddu er augljóslega meiri smithætta að fara og dvelja til lengri tíma saman í stórum hópi og erfitt að tryggja að sóttvarnartakmörkum sé fylgt í einu og öllu meðan á dvöl stendur.

Verkefni

Skemmtilegar hugmyndir að verkefnum á tímum samkomutakmarkana

Hér má finna tillögur að verkefnum sem hægt er að vinna að í í fjarfundum í ljósi samkomutakmarkana. Verkefnaflokkunum er skipt í tvo flokka, annarsvegar fjarfundar verkefni, sem er skipulagt fyrir foringja og skáta að vinna saman yfir í fjarfund á miðil eins og zoom eða teams, og hinsvegar eru heima verkefni, sem eru skipulögð fyrir foringja til að senda á skáta til að vinna sem einstaklingar eða litlit hópar.

Erindrekar vinna hörðum höndum við að finna og þróa verkefni til að setja hér inn. Ef þú ert með verkefni sem að hefur gengið vel í þínu starfi og vilt deila með öðrum sveitum er hægt að senda erindi á erindrekar@skatarnir.is.


Verkefni fyrir fjarfundi

Eftirfarandi verkefni eru skipulögð fyrir skátasveitir sem vilja halda netfundi á meðan samkomutakmarkanir koma í veg fyrir að við getum haldið fundi í persónu. Gott er að halda fundi á miðlum eins og Zoom eða Google Meet. Mikilvægt er að huga að jákvæðum samskiptum og netöryggi þegar kemur að netverkefnum.

Nothing found.


Heima verkefni

Nothing found.

Stuðkví verkefni frá 2021

Verkefni sem unnin voru fyrir STUÐKVÍ verkefnið sem fór fram 2021.

Nothing found.


Skráning á skátaþing 2021

Skráning á rafrænt skátaþing 2021


Skátaþing 2021

Skátaþing 2021

Skátaþing 2021

Fundargerð Skátaþing 2021

Hægt er að sækja fundargerð Skátaþings 2021 á pdf formi með því að smella hér.

Hér neðar á síðunni má einnig finna ýmsar fróðlegar upplýsingar um Skátaþingið s.s. allar tillögur sem afgreiddar voru á þinginu, niðurstöður kosninga, upplýsingar um atkvæðadreifingu og aldursskiptingu þingfulltrúa með atkvæðisrétt.

Athygli er vakin á því að þar sem vísun í gildandi lög, reglugerðir og stefnur BÍS leiðir alltaf á útgáfu sem er í gildi þegar þau plögg eru skoðuð en ekki eins og þau voru þegar þingið fór fram.


Rafrænt Skátaþing 2021

Skátaþing verður haldið þriðjudaginn 13. apríl með notkun Microsoft Teams og fá allir skráðir fundarmenn tölvupóst með hlekk á fundinn. Smelltu hér til að skrá þig á skátaþingið.

Rafrænt fundarými opnar klukkan 18:30 og er setning þingsins klukkan 19:00.

Smelltu hér til að opna rafrænt fundarrými Skátaþings 2021.


Rafrænt kosningarkerfi

Þau sem hafa atkvæðarétt hafa aðgang að rafrænu kosningarkerfi fyrir Skátaþing 2021.

Smelltu hér til að opna rafræna kosningarkerfið.




Opnar umræður um málefni Skátaþings 2021

Haldnir verða tveir umræðufundir um málefni Skátaþings 2021. Mættu ef þú vilt spjalla um málefni sem tengjast þinginu, heyra skoðanir annarra skáta og hlusta á rök þeirra sem sendu inn tillögur fyrir þingið.

Fundirnir eru kjörinn vettvangur til að ræða lagabreytingatillögur og þingsályktun sem borist hafa þinginu, hvernig skátar geta stuðlað að aukinni ungmennaþátttöku og skoða drög að fjárhags- og starfsáætlun BÍS.

Fundirnir verða haldnir á Zoom og eru linkar á fundina hér fyrir neðan:

8. apríl kl 20:00

11. apríl kl 20:00


Dagskrá þingsins er þannig:

    1. Setning Skátaþings
    2. Kosning fundarstjóra og fundarritara
      Jón Þór Gunnarsson kjörinn fundarstjóri.
      Kolbrún Ósk Pétursdóttir og Védís Helgadóttir kjörnar fundarritarar.
    3. Kosning í kjörnefnd og allsherjanefnd
      Guðjón Hafsteinsson, Inga Auðbjörg K. Straumland og Jón Andri Helgason kjörin í kjörnefnd.
      Auður Eygló Andrésdóttir, Dabjört Vatnsdal Brynjarsdóttir, Inga Úlfsdóttir, Jóhann Malmquist og Pjetur Már Hjaltason kjörin í allsherjarnefnd
    4. Inntaka nýrra skátafélaga
    5. Skýrsla stjórnar fyrir síðasta almanaksár kynnt og rædd
    6. Úthlutun úr styrktarsjóði skáta
      Kópar, styrkur fyrir Skátaskálann Þrist, 200.000
      Rekkaskátar í Garðbúum, Ægisbúum og Skjöldungum, Skátacraft, 50.000
      Klakkur, Vetraráskorun á gönguskíðum, 90.000
    7. Niðurstaða kjörnefndar kynnt
    8. Endurskoðaðir reikningar BÍS fyrir síðasta almanaksár kynntir, ræddir og afgreiddir
    9. Fjárhagsáætlun BÍS fyrir 2 ár, yfirstandandi ár og það næsta, kynnt, rædd og afgreidd
    10. Tillaga að félagsgjaldi skáta til BÍS kynnt, rædd og afgreidd
    11. Starfsáætlun BÍS til fimm ára og langtíma stefnumörkun
    12. Staðfesting á skipan félagsforingjafundar – (Samþykkt, samhljóða)
    13. Ályktanir kynntar, ræddar og afgreiddar
    14. Lagabreytingar kynntar, ræddar og afgreiddar
    15. Kynningar frá skátafélögum
    16. Önnur mál
    17. Þingslit


Mikilvægar dagsetningar fram að Skátaþingi

16. mars kl. 19:00 – Fresti til að skila tillögum að lagabreytingum til stjórnar BÍS lýkur.
23. mars kl. 19:00 – Fresti til að skila beiðnum um upptöku mála á Skátaþingi til stjórnar BÍS lýkur.
30. mars kl. 19:00 – Fresti stjórnar BÍS til að senda félagsforingjum þinggögn, framboðslista og drög að dagskrá Skátaþings lýkur.
6. apríl kl. 19:00 – Fresti til að skila athugasemdum um útsend gögn til Skátamiðstöðvarinnar lýkur.
6. apríl kl. 19:00  – Skráning á Skátaþing lýkur
13. apríl kl. 19:00 – Skátaþing er sett


Tillögur frá skátafélögum, stjórn BÍS, ráðum þess og nefndum

Tillaga um jafnréttis- og mannréttindastefnu BÍS – Samþykkt með 100% greiddra atkvæða (Greidd atkvæði: Já – 49)


Þinggögn

Fundarboð Skátaþings 2021:

Fundarboð – Skátaþing apríl 2021

Uppgjör ársins 2021:

BÍS Ársskýrsla 2020

Ársreikningur BÍS 2020 – Samþykkt með 98% greiddra atkvæða (Greidd atkvæði: Já – 49, Nei – 1, Tóku ekki afstöðu – 0)

Kynningarmyndband um ársreikning BÍS 2020

Kynningarmyndband um ársreikning Skátamóta og ÚSÚ 2020

Stefnumál framtíðar:

Fjárhagsáætlun BÍS 2021-2022 – Samþykkt með 95,74% greiddra atkvæða (Greidd atkvæði: Já – 45, Nei – 0, Tek ekki afstöðu – 2)
Tillaga að ársgjaldi til BÍS 2021-2022 – Samþykkt með 100% greiddra atkvæða (Greidd atkvæði: Já – 48)
Starfsáætlun BÍS 2021-2025
Fyrri kosning – Sviðsmynd 1 kosin fram yfir sviðsmynd 2 með 64% greiddra atkvæða (Greidd atkvæði: Sviðsmynd 1 – 38, Sviðsmynd 2 – 18)
Seinni kosning – Sviðsmynd 1 samþykkt með 93,62% greiddra atkvæða (Greidd atkvæði: Já – 44, Nei – 3, Tek ekki afstöðu – 0)

Kynningarmyndband um starfsáætlun BÍS 2021-2025

Gildandi lög, reglugerðir og stefnur BÍS:

Lög BÍS
Grunngildi BÍS

Reglugerð BÍS um einkennismerki skáta
Reglugerð BÍS um heiðursmerki
Reglugerð BÍS um hæfi skátaforingja
Reglugerð BÍS um hæfi leiðbeinenda
Reglugerð BÍS um Landsmót
Reglugerð BÍS um skátamót
Reglugerð BÍS um styrktarsjóð skáta
Reglugerð BÍS um utanferðir skáta

Forvarnarstefna BÍS
Vímuvarnarstefna BÍS
Umhverfisstefna BÍS


Lagabreytingartillögur

Um auðveldara aðgengi skáta að Skátaþingi, auk embætta og ráða innan BÍS og að Ungmennaþing verði haldið a.m.k. árlega – Flutningsaðili: Þórhildur Elínardóttir Magnúsdóttir

9. grein laga um auðveldara aðgengi ungra skáta að stjórn skátafélags. – Felld með 64% greiddra atkvæða (Greidd atkvæði: Nei – 32, Já – 16 Tek ekki afstöðu – 2)

Ný 16. grein skátalaga um árlegt Ungmennaþing og 21. grein laga um áheyrnarfulltrúa ungmenna. – Samþykkt með 84% greiddra atkvæða (Greidd atkvæði: Já – 42, Nei – 6, Tek ekki afstöðu – 1)

18. grein um auðveldara aðgengi ungmenna að Skátaþingi auk embætta og ráða innan BÍS. – Felld, náði eingöngu samþykkt 60% greiddra atkvæða (Greidd atkvæði: Já – 30, Nei – 18, Tek ekki afstöðu – 2)

18. grein um jafna aldursdreifingu í ráðum, nefndum og stjórnum. – Samþykkt með 86% greiddra atkvæða (Greidd atkvæði: Já – 43, Nei – 7, Tek ekki afstöðu – 0)

19. grein um atkvæði ungmenna á Skátaþingi – Felld með 59,18% greiddra atkvæða (Greidd atkvæði: Nei – 29, Já – 20, Tek ekki afstöðu – 1)

19. grein um atkvæðisrétt ungmenna á Skátaþingi – Felld með 56% greiddra atkvæða (Greidd atkvæði: Nei – 28, Já – 22, Tek ekki afstöðu – 0)

20. grein um þátttöku ungmenna í kjörnefnd og allsherjarnefnd á Skátaþingi – Felld, náði eingöngu samþykkt 52% greiddra atkvæða (Greidd atkvæði: Já – 26, Nei – 24, Tek ekki afstöðu – 0)

20. grein um kjörgengi ungmenna. – Felld, náði eingöngu samþykkt 52% greiddra atkvæða (Greidd atkvæði: Já – 26, Nei – 24, Tek ekki afstöðu – 0)

25. grein um fjölgun í fastaráð – Samþykkt með 77,55% greiddra atkvæða (Greidd atkvæði: Já – 38, Nei – 4, Tek ekki afstöðu – 7)

25. grein um aldurstakmark ungmennafulltrúa í fastaráði BÍS – Felld með 52% greiddra atkvæða (Greidd atkvæði: Nei – 26, Já – 24, Tek ekki afstöðu – 0)

25. grein um aldurstakmark skáta í ungmennaráði – Felld með 55,10% greiddra atkvæða (Greidd atkvæði: Nei – 27, Já – 22, Tek ekki afstöðu – 0)


Tölfræði um kjörmenn á Skátaþingi 2021

Mögulegur hámarksfjöldi atkvæða

Fjöldi starfandi skátafélaga með A aðild voru 24 og fjöldi starfandi skátafélaga með B aðild voru 2 þegar Skátaþing 2020 fór fram. Því hefði mögulegur hámarksfjöldi atkvæða getað verið 98

Atkvæði eftir félögum

Árbúar 4
Eilífsbúar 1
Fossbúar 4
Garðbúar 4
Heiðarbúar 4
Hraunbúar 4
Klakkur 4
Kópar 4
Landnemar 4
Mosverjar 2
Segull 4
Skjöldungar 4
Vífill 4
Vogabúar 4
Ægisbúar 3
Samtals 54

Skiluðu ekki inn kjörbréfi fyrir Skátaþing 2020

Skátafélag Akraness
Skátafélag Borgarness
Skátafélagið Einherjar Valkyrjan
Skátafélagið Faxi
Skátafélagið Hafernir
Skátafélag Sólheima
Skátafélagið Stígandi
Skátafélagið Strókur
Skátafélagið Svanir
Skátafélagið Örninn

Um ungmennaþátttöku meðal kjörmanna

Kjörmenn á þátttökualdri (Róverskátar eða yngri) voru 26 af 52 kjörmönnum og 0 af 5 varamönnum.

Aldursskipting kjör- og varamanna eftir skátafélögum

Skátafélag Kjörmenn á
þátttökualdri
Kjörmenn yfir
þátttökualdri
Varamenn á
þátttökualdri
Varamenn yfir
þátttökualdri
Árbúar 2 2 0 0
Eilífsbúar 0 1 0 0
Fossbúar 2 2 0 0
Garðbúar 2 2 0 0
Heiðarbúar 1 3 0 1
Hraunbúar 4 0 0 0
Klakkur 1 3 0 1
Kópar 3 1 0 0
Landnemar 3 1 0 1
Mosverjar 1 1 0 0
Segull 3 1 0 1
Skjöldungar 2 2 0 0
Vífill 1 3 0 0
Vogabúar 0 4 0 1
Ægisbúar 1 2 0 0
Alls 26 28 0 5



Takmarkanir á skátastarfi vegna COVID-19

TAKMARKANIR Á SKÁTASTARFI VEGNA COVID-19

ALMENNT UM TAKMARKANIR

Samkomutakmarkanir og leiðbeiningar yfirvalda hafa breyst hratt á undanförnu ári. Hér er gerð tilraun til að halda utan um allar þær upplýsingar og reglur sem gilda um skátastarf og hefur BÍS leitað staðfestingar frá yfirvöldum um vafaatriði.

 

Það er mikilvægt að leita leiða til þess að bjóða upp á uppbyggilegt og ævintýralegt skátastarf fyrir alla skáta á þátttakendaaldri, enda ljóst að börn og ungmenni þrá félagsstarf eftir langan aðskilnað. Þó þurfa foringjar ávallt að hafa smitvarnir í fyrirrúmi og taka ábyrgar ákvarðanir sem lágmarka dreifingu smits, en útiloka þó ekki ánægjulega upplifun skátanna. Þannig hvetjur BÍS foringja landsins til að nýta sér heimildir á ábyrgan máta.

HAFIÐ Í HUGA:

  • Hámarksfjöldi á skátafundum eru 50 skátar (20 fullorðnir).**
  • Aðstaðan skal þrifin reglulega og snertifletir sótthreinsaðir milli allra hópa.
  • Sameiginleg áhöld skulu sótthreinsuð a.m.k. tvisvar á dag (t.d. í útilegum).
  • Loftræsting skal vera í lagi og loftað reglulega út yfir daginn.
  • Bjóða skal góða aðstöðu til handþvotts.
  • Spritt skal vera aðgengilegt þátttakendum og skátaforingjum.

YFIRLIT YFIR TAKMARKANIR


ALDURSBIL FUNDIR ÚTILEGUR GRÍMUR NÁND GILDIST.
DREKAR Leyfðir, hámark 50 Leyfðar* Nei Engin Til 28. feb
FÁLKAR Leyfðir, hámark 50 Leyfðar* Nei Engin Til 28. feb
DRÓTTIR Leyfðir, hámark 50 Leyfðar* Nei Engin Til 28. feb
REKKAR Leyfðir, hámark 50 Ekki leyfðar Já, ef ekki er hægt að virða nándarmörk 2 m Til 17. feb
RÓVER+ Leyfðir, hámark 50 Ekki leyfðar Já, ef ekki er hægt að virða nándarmörk 2 m Til 17. feb
FORINGJAR  Leyfðir, hámark 20 Ekki leyfðar   Já, ef ekki er hægt að virða nándarmörk 2 m Til 17. feb

SKÁTAFUNDIR OG ÚTILEGUR


SKÁTAFUNDIR

Sé þess kostur skal skátastarf fara fram utandyra. Fari starf fram innanhúss skal gæta góðra þrifa á almennum snertiflötum og loftræsa rými. Áfram skal gæta persónubundinna smitvarna og bjóða góða aðstöðu til handþvotts og hafa spritt aðgengilegt þátttakendum og skátaforingjum.

Ráðstafanir skulu gerðar til að sótthreinsa rými eftir hvern dag og á milli hópa.

ÚTILEGUR

Samkvæmt svörum frá yfirvöldum við fyrirspurn BÍS eru útilegur ungmenna á grunnskólaaldri heimilar. Það er þó grundvallaratriði að smitvarna sé gætt í hvívetna: Sameiginleg áhöld sótthreinsuð tvisvar á dag, loftað vel út og aðstaða til handþvotta góð (rennandi vatn, sápa og spritt).

 

Ráðlegt er að nýta sér heimildir en sýna þó aðgát, til dæmis með því að lágmarka blöndun hópa og miða við að fararhópur sé sá hópur sem þegar er að hittast í vikulegu fundastarfi (flokkur eða sveit).

ÞÁTTTAKA OG VIÐVERA FULLORÐINNA


SKÁTAFORINGJAR

Skátaforingjar skulu að hámarki vera 20 á skátafundum, þeim ber að gæta 2 metra fjarlægðar frá hvoru öðru og þátttakendum en bera grímu ef ekki er unnt að tryggja nálægðartakmörk. Mælst er til þess að skátaforingjar allra aldursbila beri andlitsgrímur öllum stundum á meðan að skátafundir standa yfir. Ef skátafélög hafa starfsmann gilda sömu reglur um viðkomandi og skátaforingja á skátafundum.

FORRÁÐAMENN OG AÐSTANDENDUR

Forráðamenn og aðstandendur þátttakenda skulu ekki koma inn í skátaheimili eða á skátafundi nema brýna nauðsyn beri til en þá skulu þau vera með andlitsgrímu. Um foreldra og aðstandendur sem leiðbeina á skátafundum gilda að sjálfsögðu sömu reglur og um skátaforingja.

AÐRIR AÐILAR

Öll umferð annarra en skátaforingja og þátttakenda skal bönnuð á svæði skátafélagsins meðan skátafundir standa yfir nema brýna nauðsyn beri til en þá er grímuskylda.


Reglugerðir:

*Skv. Staðfestingu Menntamálaráðuneytisins við erindi BÍS, 20. janúar.

**Skv. Túlkun á ákvæði um íþróttastarf í Reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar, sem staðfest hefur verið af Menntamálaráðuneytinu að skátafundir falli undir sama ákvæði.


Dróttin daðrað við dauðann viðburður

Skráning á Dróttin - daðrað við dauðann. Prufukeyrsla fyrir foringja

Dróttin – daðrað við dauðann

Dróttin – daðrað við dauðann er morðgáta fyrir dróttskáta og eldri.

Fyrsta prufukeyrslan á gátunni verður 17.nóvember og býðst þá drótt-, rekka- og róversveitarforingjum að prófa leikinn. Síðar geta foringjar nálgast leiðbeiningar og efni til að spila leikinn með sveitinni sinni. Leikurinn fer fram með fjarfundarforritinu Discord.

Athugið að þar sem um ákveðin hlutverk er að ræða er mikilvægt að afbóka sig ekki nema með að minnsta kosti 48 tíma fyrirvara.

Skráningafrestur er til og með 15. nóvember og verða frekari upplýsingar sendar út 16. nóvember á alla skráða.

 

Skráning


Skátaþing fjarfundur

Skráningu á Skátaþing er lokið.


Hefjum störf!

VERKFÆRI FYRIR UPPHAF STARFSÁRS


Í UPPHAFI VEGFERÐAR

Á þessu vefsvæði hafa verið tekin saman og gerð aðgengileg allskonar verkfæri sem Skátamiðstöðin telur að komi skátafélögunum að gagni í upphafi starfsárs við skipulag og kynningu starfsársins. Efnið er sett fram í sömu röð og tékkalistinn.

Þú skalt líta skipulega yfir það samansafn sem má finna á þessum vef, lesa yfir þau góðu ráð sem hér eru sett fram og sjá hvaða verkfæri megi nýta þágu þíns skátafélags. Síðan skaltu deila þessu efni með hinum sjálfboðaliðunum og starfsfólki félagsins sem kemur að undirbúningi vetrarstarfsins svo að þið getið skipt með ykkur verkefnunum.

Stjórnendur skátafélaga geta og eru hvött til að leita ráðgjafar og aðstoðar síns erindreka sé þess þörf. Þá má alltaf senda okkur ábendingar um verkfæri sem vantar á eða má bæta á þessu vefsvæði.

 

Mikilvægt er að láta Skátamiðstöðina vita af réttum fundartímum fyrir sveitirnar ásamt því að staðfesta hvaða upplýsingar skátafélagið vill hafa á heimasíðu Skátanna. Hægt er að fylla út þetta form hér til þess að staðfesta réttar upplýsingar um stjórn félagsins, fundartíma og almennar upplýsingar um skátafélagið.


MÁLEFNI SKÁTAFORINGJA Í UPPHAFI STARFSÁRS

GERUM VEL SKILGREIND SAMKOMULÖG

Í upphafi starfsárs eru stjórnir og skátaforingjar hvött til að eiga samtal um gagnkvæmar skyldur og væntingar. Þarna gefst skátaforingjanum tækifæri til að segja frá helstu áskorunum sem þau telja vera í félagsstarfinu, hvaða stuðning þau telja sig þurfa og hvaða verkefnum þau hafa ástríðu fyrir á komandi starfsári. Á sama tíma gefst stjórn tækifæri á að setja skilyrði um viss efnistök í dagskrá, koma á framfæri ósk um mætingu foringja í vissar ferðir, útilegur og/eða skátamót,, setja fram viðmið um mætingu foringja á hina ýmsu fundi vegna foringjastarfi bæði með þátttakendum og foringja-/félagsráði.

Skátafélög eru hvött til þess að nýta sniðmáta að sjálfboðaliðasamkomulagi við skátaforingja til að skilgreina á skipulegan máta gagnkvæmar skyldur og væntinga skátaforingja og skátafélagsins. Þannig er líka tryggt að öll innan félagsins gangi að sömu skilgreiningu um hvað foringjastarfið feli í sér. Hvert skátafélag getur síðan þróað áfram sína útgáfu af samninginum samkvæmt ríkjandi hefðum.

MUNUM EFTIR VIÐEIGANDI PAPPÍRUM

Skátaforingjum ber að veita BÍS heimild til öflunar upplýsinga úr Sakaskrá ríkisins í upphafi starfstímabils. Gott er að skátafélög geymi möppu með frumriti undirritaðra endurnýjanlegra heimilda allra sjálfboðaliða og starfsfólks sem starfa fyrir þau. Þá ber þeim samkvæmt reglugerð að skrifa undir sæmdarheit skátaforingja (áður drengskaparheit) samkvæmt reglugerð BÍS um hæfi skátaforingja.

TRYGGJUM GÓÐA ÞJÁLFUN

Sjálfboðaliðar í innra starfinu eiga að sækja verndum þau á fjögurra ára fresti hið minnsta og ber að þekkja siðareglur og viðbragðsáætlun Æskulýðsvettvangsins. Siðareglur Æskulýðsvettvangsins tóku breytingum í júní 2022, frekari upplýsingar um breytingarnar má nálgast hér.
Þá er fjöldi námskeiða haldin ár hvert fyrir skátaforingja. Skátafélögin eiga innistæðu fyrir námskeiðum og eru hvött til að tryggja að þeirra skátaforingjar sæki sér fræðslu og þjálfun.


FÉLAGSGJÖLD SKÁTAFÉLAGSINS

HVAÐ ER INNIFALIÐ Í GJALDINU?

Skátafélög eru hvött til að skilgreina félagsgjaldið á skipulagðan máta og gæta þess að skátaforingjar, forráðamenn og skátarnir í félaginu séu meðvituð um hvað sé innifalið í þeim. Fólki finnst gott að vita hvað það greiðir fyrir það er líka mikilvægt fyrir okkur að geta svarað því þegar um það er spurt.  Þá er visst aðhald fólgið í því þegar búið er að skilgræna að vissir þættir séu fólgnir í félagsgjaldi t.d. félagseinkenni, ferðir og/eða útilegur.

Félagsgjaldamódelinu er ætlað að hjálpa skátafélögunum að ákveða félagsgjöld en það getur líka nýst til að til að áætla hvernig fyrirfram ákveðnu félagsgjaldi skuli skipta á milli fyrirséðra kostnaðarliða í skátastarfi.

Skátafélög eru hvött til að skilgreina sín félagsgjöld skipulega með félagsgjaldamódelinu og deila afrakstrinum með Skátamiðstöðinni.

GÆTUM MEÐALHÓFS

Það ber að varast að félagsgjöld standa í stað í mörg ár í röð en ríghækki svo loks eitt árið. Þótt góðar ástæður geti verið að baki slíkum hækkunum getur samt verið flókið að útskýra það fyrir foreldrum og umsjónarfólki frístundarstyrkja. Á sama tíma er ekki æskilegt að þurfa að hækka eða lækka verð á hverju ári. Best er hafa stefnu um hvert félagsgjaldið stefni innan nokkurra ára og þynna breytingar í átt að því yfir nokkurra ára skeið.

STENDUR FÉLAGSSTARFIÐ UNDIR SÉR?

Skátafélög eru hvött til að áætla félagsgjöld út frá þeim kostnaði sem þau eiga að þekja. Æskileg fjárhagsstaða skátafélags er þegar félagsgjöld auk opinbers fjárstuðnings stendur undir félagsstarfinu. Þegar svo er ekki og fjöldi þátttakenda þykir sæmilegur gæti þurft að endurskoða hvort félagsgjöld séu of lág.

HVERNIG ER SAMANBURÐUR VIÐ ÖNNUR FÉLÖG?

Það er mikilvægt að skátafélögin þekki verðlagningu á öðru íþrótta- og æskulýðsstarfi á þeirra starfsvæði en svo er líka gott að félagið kynni sér félagsgjöld annarra skátafélaga. Það getur verið áskorun fyrir foringjaráð og/eða stjórnir sem ákveða félagsgjöldin að rýna í pottinn hjá öðrum og geta sér til um hvað kunni að valda verðmuninum. Verja önnur félög meiri fjármunum í dagskrá, ferðir, mannauð, einkenni, aðstöðu eða annað?

Skátafélög eru hvött til að skoða yfirlit um félagsgjöld 2022-2023 og sjá hvar þeirra félagsgjöld standa í samanburði við önnur skátafélög.


STARFSMANNAMÁL Í UPPHAFI STARFSÁRS

AUGLÝSUM STÖRFIN VEL

Skátafélög sem ráða til sín starfsfólk eru hvött til að auglýsa starfið á starfstorgi skáta, hægt er að sjá sniðmát að auglýsingu með að smella hér. Þegar auglýsingar birtast eingöngu á samfélagsmiðlum og í lokuðum hópum getur verið erfitt að finna auglýsinguna aftur og auglýsingin birtist oft ekki í leitarvélum. Með að koma auglýsingunni fyrir á vefsíðu má vísa til slóðarinnar á samfélagsmiðlum, þá er auðveldara að finna auglýsinguna aftur og hún skilar sér í niðurstöðum leitarvéla.

VERUM TIL FYRIRMYNDAR

Mikilvægt er að starfsfólk skátafélaganna hafi góða mynd af starfi sínu og að enginn vafi leiki á um laun, starfstímabil eða skyldur starfsfólks. Skátafélög eru því hvött til að nýta sér sniðmát að ráðningasamning við starfsmann.

MUNUM PAPPÍRA, SIÐAREGLUR OG MEÐMÆLI

Þegar skátafélög ráða starfsfólk eru þau hvött til þess að leita meðmæla jafnvel þegar þau þekkja viðkomandi. Skátafélög skulu kynna viðkomandi fyrir siðareglum og viðbragðsáætlun Æskulýðsvettvangsins og tryggja að viðkomandi sækji Verndum þau hafi það ekki verið gert á síðastliðnum fjórum árum. Athugið að siðareglur Æskulýðsvettvangsins tóku breytingum í júní 2022, frekari upplýsingar um breytingarnar má nálgast hér. Að lokum er lagaleg skylda að fá undirritaða sakavottorðsheimild frá viðkomandi.

GÆTUM GÓÐRAR VERKSTÝRINGAR

Það er vandasamt að sinna yfirmennsku launaðs starfsfólks í sjálfboðaliðastarfi og verkstjórn því ekki jafn tíð og í hefðbundnu starfi.  Æskilegt er að hafa fyrirfram ákveðið samkomulag um verkefnalista yfir árið sem byggir á þeim mánaðarbundnu önnum sem við þekkjum í skátastarfi auk þarfar í hverju skátafélagi.

Skátafélögin eru hvött til að nýta sér sniðmáta að verkefnalista starfsmanns til að týna í sarpinn betri starfslýsingu fyrir sitt skátafélag. Mánaðarlega má skoða á stjórnarfundi með starfsmanni hvort ástæða sé til að bæta einhverju verkefni inn á lista síðasta mánaðar til að starfsmaður geti betur undirbúið sig fyrir verkefnið að ári liðnu.

Einnig er æskilegt að skilgreina verkefni sem megi alltaf grípa til í dauðum stundum s.s. tiltektar verkefni í ákveðnum rýmum, skipulag á dagskrárbúnaði félagsins eða annað.


SKRÁNINGARMÁL

NÝTUM VIRKNINA Í SPORTABLER

Sportabler kerfið hefur ýmsa virkni sem styður mjög vel við þær umbreytingar sem verða í upphafi starfsárs og því hefur Skátamiðstöðin hugsað mjög vel út gott verklag fyrir félögin að fylgja.

Félögin eru hvött til að nýta sér þessar leiðbeiningar til að búa til sem besta upplifun fyrir sig sjálf, sjálfboðaliða sína, starfsfólk sitt, þátttakendur sína og forráðafólk.

Með góðu verklagi sem er samræmt milli ára má líka spara gríðarlega vinnu við viðhald í kerfinu og í eftirfylgni með fjármálum.

FÉLAGSÚTILEGUR Í SPORTABLER

Þegar sett er upp skráning fyrir félagsútilegu í Sportabler mælist Skátamiðstöðin til ákveðins verklags til að kerfið fullnýtist félaginu að vakta hver mæta og hver mæta ekki. Þannig félagið geti tryggt gott aðgengi allra sjálfboðaliða í ólíkum hlutverkum að upplýsingum og dreift vel ábyrgð á að fylgja eftir skráningum við skátana í félaginu.

FYLGJUMST MEÐ FJÁRMÁLUM OG HREINSUM REGLULEGA TIL Í KERFINU

Með tíð og tíma þarf reglulega að fara yfir Sportabler gátt félagsins stjórnenda meginn frá og taka til í þjónustum og fjármálunum. Hægt er að lágmarka þá vinnu og jafnvel útrýma henni alveg með góðu verklagi og skipulegri upplýsingagjöf.

Þó geta hlutir alltaf fallið á milli, að neðan má finna leiðbeiningar til að hjálpa fólki að fylgjast með fjármálunum, fylgja eftir útistandandi kröfum og hreinsa til í Sportabler.


KYNNINGARMÁL Í UPPHAFI STARFSÁRS

BJÓÐUM SKÁTUNUM OKKAR AFTUR!

Áður en ráðist er í nokkur annað kynningarátak eru skátafélög hvött til að bjóða skáta liðins starfsárs aftur til starfa. Hægt er að senda þeim tölvupóst eða birta upplýsingar í foreldrahóp en skátafélög eru hvött til að gera það með persónulegri máta en eingöngu með því að birta upplýsingar á samfélagsmiðli. Skátafélög eru hvött að nýta sniðmáta að upplýsingabréfi til skáta síðasta starfsárs til.

BJÓÐUM ÞÁTTTAKENDUM SUMARSTARFSINS!

Skátafélög sem héldu úti útilífsskóla eða annarskonar sumarnámskeiðum eru hvött til að bjóða þátttakendum slíkra námskeiða til að taka þátt á komandi starfsári. Þessi hópur þekkir þegar félagið, aðstöðuna og jafnvel stóran hluta skátaforingjanna. Þessi hópur þarf oft ögn betri upplýsingar um vetrarstarfið og þá hjálpar að skýra í auðskildu máli frá því skemmtilega sem skátafélagið hyggst gera á komandi starfsári. Skátafélögin eru hvött til að nýta sér sniðmát að upplýsingabréfi til þátttakenda á sumarnámskeiðum til að bjóða þessum hóp í starfið.

KYNNUM OKKUR!

Kynningarstarf er mikilvægur liður í vexti skátafélaga, það er ekki bara mikilvægt til að fá fleiri til þátttöku heldur líka til að meðvitund um skátafélagið sé meiri og svo að fleiri áhugasamir sjálfboðaliðar geti fundið skátafélagið. Ef félagið hefur ekki þegar mótað hugmyndir um hvernig það gæti kynnt starf sitt á komandi starfsári hvetjum við ykkur til að skoða samantekt um sjö góðar hugmyndir að kynningarátökum sem Skátamiðstöðin setti saman byggða á reynslu skátafélaga á síðastliðnum árum.

TILBÚIÐ AUGLÝSINGAREFNI

Skátamiðstöðin hefur útbúið sniðmát í Canva sem skátafélögin geta nýtt í kynningum. Skátafélögin þurfa að skipta sínum upplýsingum út fyrir ímyndaðar upplýsingar skátafélagsins Búbúabúa og eru hvött til að nota myndefni úr eigin starfi.

KYNNINGARPAKKI


NÝ STARFSÁÆTLUN

VIÐBURÐADAGATALIÐ

Áður en starfsárið hefst er gott að setjast niður með félagsráði (foringjar og stjórn) og leggja línurnar fyrir nýju starfsári. Mikilvægt er að vera tímanlega í að ákveða mikilvægar dagsetningar eins og fundartíma, dagsferðir, sveitarútilegur, félagsútilegu, skátamót, hverfishátíðir, jólakvöldvökur og einnig skoða hvenær mikilvæg frí eru í skólum hverfisins. Gott er að renna yfir viðburðadagatal BÍS til þess að skoða hvenær fræðslur og námskeið eru ásamt áhugaverðum viðburðum sem þarf að taka mið af. En neðst á síðunni hér að neðan má líka sækja dagatalið til að flytja það yfir í Google, outlook eða annars konar dagatöl.

SNIÐMÁT FYRIR FÉLÖGIN AÐ FYLLA INN Í

Til að einfalda félögum að gera skipulag ársins sjónrænt fyrir þátttakendur og foringja hefur verið hannað sniðmát fyrir félög að fylla inn í. En í þeim má finna helstu viðburði BÍS á árinu sem eru komnir í viðburðardagatal. En svo getur félagið bætt við sínum fundum, útilegum og öðrum viðburðum á vegum félagsins.

ERLEND SKÁTAMÓT OG VIÐBURÐIR Á DÖFINNI

Skátamót eru ekki bara skemmtilegar upplifanir fyrir skátaforingja og þátttakendur í skátastarfi, heldur geta þau líka þjónað sem frábært verkfæri fyrir skátafélög til að hafa sem markmið í félagsstarfinu, til að skapa eftirvæntingu og halda skátum áhugasömum í starfi. Að neðan má finna yfirlit yfir erlend skátamót á döfinni og eru öll félög hvött til að velja sér mót og byrja að undirbúa fararhóp á það.

Viðburðir HvenærHvarÞátttökualdurUpplýsingasíða
Nordisk Trekløver-Gilwell2024SvíþjóðRóverskátar og eldriSmella hér
Roverway22. júlí -1. ágúst 2024Stavanger, NoregurRekka- & RóverskátarSmella hér
Landsmót skáta á Íslandi12.-19. júlí 2024Úlfljótsvatni á ÍslandiRekkaskátar og yngriSmella hér
Blair Atholl16.-25. júlí 2024Skotlandi14-17 áraSmella hér
Vandelbo Jamboree20.-27. júlí 2024Vendsyssel í DanmörkuÓljóstSmella hér
Essex International Jamboree27. júlí - 3. ágústEssex í Englandi10-17 áraSmella hér
Euro Mini Jamboree28. júlí - 3. ágúst 2024GíbraltarDróttskátarSmella hér
Central European Jamboree2. ágúst - 9. ágúst 2024Slóvakíu14-17 áraSmella hér
WoidLa 245.-15. ágúst 2024AusturríkiÓljóstSmella hér
Landsmót skáta í Ástralíu1.-8. janúar 2025Ástralíu10-17 áraSmella hér
Landsmót skáta í Noregi5.-12. júlí 2025Gjøvik í NoregiFálka-RóverskátarSmella hér
World Scout Moot25. júlí-3. ágúst 2025PortugalRóverskátarSmella hér
Kent International Jamboree2.-9. ágúst 2025Kent County Showground, Detling, Englandi10-17 áraSmella hér
2nd Africa Rover Moot2026Suður-AfríkuRóverskátarSmella hér
Landsmót skáta í Danmörku2026DanmörkuFálka-RóverskátarSmella hér
Alheimsmót skáta2027PóllandiDrótt- og RekkaskátarSmella hér
Landsmót skáta í Finnlandi
2028FinnlandiÓljóstVantar

Starfsárið 2021 - 2022

Click or drag files to this area to upload. You can upload up to 5 files.

Sveitarforingjar

Sveitarforingjar fá fullan aðgang að vefsjá skatar.felog.is og verður boðið í foringjahóp aldurbilsins á Facebook. Nöfn foringja hverrar sveitar verða sett á upplýsingasíðu félagsins á heimasíðu skátanna. Mikilvægt er að fá full nöfn og kennitölur allra aðila.

Drekaskátar

Fálkaskátar

Dróttskátar

Rekkaskátar

Róverskátar

Fundartímar

Vinsamlegast fyllið inn fyrir hvert aldusbil á hvaða dögum fundir eru og klukkan hvað.

Félagsgjöld

Annað skátastarf og bakland

Stjórn skátafélags

Selected Value: 1

Félagsforingi

Starfsmaður skátafélags

Starfmaður fær fullan aðgang að DMS og vefsjá Nóra fyrir félagið. Að auki verður tilgreint netfang starfsmanns bætt á póstlista Skátamiðstöðvarinnar fyrir sendingar sem varða félagið svo vinsamlegast tilgreinið vinnunetfang. Eins óskum við eftir vinnusíma starfmanns. Nafn, vinnunetfang og vinnusími ásamt viðverutíma starfmanns verður sett inn á upplýsingasíðu félagsins á heimasíðu Skátanna.

Samfélagsmiðlar


Flakk og flandur útivistaráskorun

Flakk og flandur

Flakk og flandur

Útivistaráskorun skáta sumarið 2020

Sumarið 2020 verður útivistar- og ferðasumarið mikla! Þar sem ekki er mikið um utanlandsferðir í sumar er kjörið að nýta tækifærið og eyða tíma úti í náttúrunni okkar og prófa nýja hluti. Ungmennaráð Bís setti saman áskorun sem er beint að rekka- og róverskátum en öllum er velkomið að taka þátt. Til að taka þátt þarf að framkvæma áskorun, taka mynd og setja á samfélagsmiðla með myllumerkjunum #flakkogflandur og #skátarnir eða senda myndirnar á netfangið ungmennarad@skatar.is ef þið viljið ekki birta þær á netinu. Áskoranirnar eru miserfiðar og miserfitt að ná fullkláruðu verkefni á mynd en hér ætti að vera eitthvað fyrir alla og við treystum á að allir sýni heiðarleika við að klára einstakar áskoranir og senda þær inn. Allir sem klára a.m.k. fimm áskoranir fá þátttökuverðlaun og þau sem klára þær allar fá sérstaka viðurkenningu.

Síðasti dagurinn til að senda inn myndir er 31. ágúst

Gakktu á 5 fjöll

Það eru ótalmörg fjöll um allt land sem gaman er að klífa. Það er skemmtilegast að fara á fjöll sem þú hefur ekki farið á áður, fara nýja leið upp fjall sem þú þekkir vel eða reyna að bæta tímann þinn frá því þú labbaðir það seinast.

Klifra 

Klifur er að verða sífellt vinsælla með tímanum enda mjög góð og oft spennandi líkamsrækt. Til að klára þessa áskorun þarf að klifra samtals 50 metra og læra að þræða áttuhnút.

Ef þú vilt klifra úti er gott að skoða https://www.klifur.is/ til að finna upplýsingar um klifurleiðir á víð og dreif um Ísland. Ef þú vilt klifra inni getur þú skoðað staði eins og Klifurhúsið, Smiðjuloftið eða Klifurfell.

Plokka rusl

Fylla heilan svartan ruslapoka af rusli úr umhverfinu. Verum dugleg að kíkja í smá göngutúr í hverfinu okkar eða út á landi í sumar og plokka rusl. Þú getur t.d. skellt í eitt tiktok af þér plokka rusl. Ekki gleyma að setja #flakkogflandur og #skátarnir þegar þú birtir myndbandið.

Ferðast samtals 200 km á eigin vegum

Það má hjóla, synda, ganga, hlaupa, róa o.fl. til að ná þessum kílómetrum. Aðalmálið er að það má bara ekki nota tæki knúin af orku annarri en þinni eigin. Þú ræður hvernig þú skráir kílómetrana en munum að skáti er heiðarlegur.

tjald

10 nætur í tjaldi

Þetta sumar eru útilegusumarið mikla. Þú þarft að sofa samtals tíu nætur í tjaldi en þær þurfa ekki endilega að vera allar í röð.

Sofa undir berum himni

Það er fátt betra en að sofna undir stjörnunum (eða miðnætursólinni) og anda að sér fersku lofti alla nóttina (við mælum ekki með að gera þetta í rigningu).

Synda í sjónum

Hvað er betra á heitum degi en að skella sér í kaldan sjóinn og synda smá. Góðar ráðleggingar fyrir byrjendur í sjósundi má finna hér. 

Eldamennska í náttúrunni

Umhverfið á Íslandi býður oft upp á frábært útsýni þar sem þið getið eldað og jafnvel fundið hráefni til að nota í matseldina. Til að klára þessa áskorun þarf að elda minnst þriggja rétta máltíð úti í náttúrunni og þarf máltíðin að innihalda minnst 2 hráefni sem finnast þar. Kynnið ykkur vel hvað þið notið úr náttúrunni, passið að það megi örugglega borða það. Auk þess skulu þið gæta fyllstu varúðar ef þið eruð með opinn eld úti og í kringum annað fólk.

Prófa nýja íþrótt

Það er alltaf gaman að stíga út fyrir þægindaramman. Margir æfa einhverja íþrótt en eiga enn eftir að prófa aðrar íþróttir. Hérna eru nokkrar hugmyndir af íþróttum sem þú hefur mögulega ekki prófað en ef þú hefur prófað þær allar þá verður þú að nota hugmyndaflugið og finna nýja!  

    • Sjálfsvörn, crossfit, fótbolti, handbolti, körfubolti, dans (tiktok), blak, lyftingar, kayak, ruðningur, badminton, borðtennis, spretthlaup, golf, hjólaskautar, hjólabretti, keila og svo margt fleira.

Synda í stöðuvatni

Tilvalin dagskrá fyrir eina helgi í sumar væri að skella sér í einn af þeim mörgu skátaskálum sem standa við stöðuvatn og taka sundsprett í vatninu til að hressa sig við. 

  • Hugmyndir: Úlfljótsvatn, Skátalundur við Hvaleyrarvatn og Skátafell við Skorradalsvatn

Sigla bát eða fleka

Það er alltaf gaman að skella sér út á vatn og blotna smá. Þú getur til dæmis skellt þér á Úlfljótsvatn og kíkt á bátaleiguna þar eða reynt á sköpunargáfu þína og byggt þinn eigin fleka. Passaðu bara að allir séu vel syndir áður en flekanum er siglt á vatni. 

sigla akureyri moot

GANGI YKKUR VEL

#flakkogflandur

#skátarnir