Fjölskylduskátasveit Skjöldunga tók á móti tilnefningu
Foreldraverðlaun Heimilis og skóla voru afhent í 25. sinn við hátíðlega athöfn í Safnahúsinu við Hverfisgötu á afmælisdegi samtakanna, 17. september 2020. Þar tók Helga Þórey, félagsforingi Skjöldunga við tilnefningu um Foreldraverðlaunin fyrir verkefnið Fjölskylduskátasveit Skjöldunga.
![](https://skatarnir.is/wp-content/uploads/Helga-Þórey-800x534.jpg)
![](https://skatarnir.is/wp-content/uploads/helga-þórey-hópmynd-800x534.jpg)
Við á Skátamiðstöðinni óskum þeim innilega til hamingju með þessa flottu tilnefningu!