FARARHÓPURINN Á ALHEIMSMÓT SKÁTA Í PÓLLANDI 2027

Fararmerkið

Fararmerki hópsins er einkennandi fyrir Ísland hannað af Andreu Dagbjörtu Mosverja og Erindreka BÍS. En Jamboree bað alla fararhópa að nota sama grunn fyrir merkið sitt og bæta við eiginleikum sem einkenna sitt land. Ákveðið var að hafa bæði rennandi hraun niður virkt eldfjall ásamt norðurljósum á stjörnubjörtum himni sem aðaleinkenni íslenska fararhópsins.


Fararstjórar

Fararstjórar hópsins eru Dagbjört Brynjarsdóttir (Dagga) úr Mosverjum og Dagmar Ýr Ólafsdóttir úr Skjöldungum.

Þær hafa verið saman í skátaflokk í mörg ár, eru Gilwell skátar og hafa að auki tekist á við ýmiss skátaverkefni, bæði stór og smá!

Hægt er að senda fyrirspurn á fararteymið í gegnum netfangið þeirra jambo2027@skatarnir.is


Fararteymið

Fararstjórunum til halds og trausts er flottur flokkur skáta sem mynda fararteymið og mun aðstoða þær í ýmsum verkefnum sem kemur að undirbúning og skipulagi ferðarinnar.


Sveitirnar og þátttakendur

Þátttakendur á alheimsmóti verða vera á aldrinum 14 – 17 ára þegar mótið byrjar 30. júlí 2027 (fædd á bilinu 30. júlí 2009 – 30. júlí 2013).

Níu skátum er raðað saman í einn skátaflokk með einum foringja og fjórir flokkar saman mynda eina sveit.

Íslenski fararhópurinn mun fara út með 5 sveitir og því einungis 180 pláss fyrir íslenska þátttakendur. Fararhópurinn mun hittast fyrir ferðina á undirbúningsfundum og í sveitarútilegum þar sem hópnum er hristað saman og einnig verður farið yfir ferðalagið og dagskrá mótsins til að undirbúa þátttakendurna sem best.

 

Skilyrði fyrir þátttakendur

  • Vera orðin 14 ára og ekki orðin 18 ára þegar mótið hefst, 30. júlí 2027
  • Hafa farið á a.m.k. fjögurra nátta skátaviðburð og gist í tjaldi allan tímann
  • Hafa unnið sér inn færnimerkin:
    • Skyndihjálp
    • Hnífur
    • Útieldun
  • Vegna víðáttumikils mótsvæðis þarf þátttakandi að vera í góðu líkamlegu formi og geta fengið a.m.k. 10 kílómetra á dag (nema ef um sérstök frávik er að ræða)
  • Meðmæli frá sveitarforingja og einum úr félagaþrennunni þar sem hún er starfandi í félaginu, annars félagsforingja
  • Góð heilsa þar sem að á mótinu er mikil útivera og dagskrá sem krefst mikillar hreyfingar í +25°C hita og því mikilvægt að þátttakendur séu líkamlega hraustir
  • Þekki skátalögin og geti haft þau að leiðarljósi í allri vegferðinni í kringum mótið og í samskiptum við aðra.
  • Taka þátt í undirbúningsfundum og/eða útilegum sveitarinnar og fararhópsins til að tryggja að þátttakandi sé vel upplýstur og undirbúinn fyrir ferðina t.d.:
    • Hittingur fararhópsins á Landsmóti skáta á Hömrum 2026
    • Sveitarútilegur
    • Undirbúningsfundir sveitarinnar
  • Geta borið allan farangurinn sinn í einum bakpoka (18-20 kg) með minni dagspoka í u.þ.b. 30 mínútur (möguleg ganga frá rútunni að tjaldsvæðinu)
  • Hafa andlega burði til að búa þétt við frumstæðar aðstæður í fjölbreyttri mannflóru og miklu áreiti í þrjár vikur fjarri foreldrum/forráðafólki
  • Hafa jákvætt viðhorf gagnvart nýjum reynslum, ólíkum menningarheimum og að kynna íslenskt skátastarf á alþjóðlegum vettvangi

Sjálfboðaliðar (IST)

Sjálfboðaliðarnir eru skátar sem hafa náð 18 ára aldri og fara fyrr á mótið til að aðstoða við uppsetningu og undirbúning mótsins. Þau fá síðan mismunandi hlutverk og verkefni sem þau sinna yfir mótið.

Þau verða síðan lengur á mótssvæðinu þegar fararhópurinn fer af svæðinu til að aðstoða við frágang mótsins.

BANDALAG ÍSLENSKRA SKÁTA


Hraunbær 123,110 Reykjavík (sjá á korti)Sími: 550 9800Netfang: skatarnir@skatarnir.is 

OPNUNARTÍMI SKRIFSTOFU

Mánudaga – fimmtudaga: 09:00 – 16:00Föstudaga: 09:00 – 13:00

Privacy Preference Center