Flokka og Endurvinna

Um færnimerkið

Við eigum aðeins eina jörð og til þess að við sem hana byggjum getum notið hennar sem lengst er mikilvægt að við göngum vel um hana. Skátar taka virkan þátt í að reyna að vernda jörðina og viðhalda henni og það er best gert með því að vita hvernig við höfum áhrif á hana og hvað við getum gert til að minnka skaðleg áhrif okkar.

Kröfur

Reynir á ● Virkni í samfélaginu ● Náttúruvitund ● Eigin gildi. Til að fá færnimerkið “Flokka og endurvinna” þarftu að vita hvernig við mannfólkið höfum áhrif á náttúruna og sýna að þú leggur þitt af mörkum til að vernda hana. Það gerirðu með því að: ● Ræða við flokkinn/sveitina þína um það hvað þú notar rafmagn í dags daglega og gerðu lista yfir það hvernig þú getur minnkað notkunina. Eftir einhvern tíma, t.d. mánuð, skaltu skoða listann aftur og athuga hvernig gengið hefur að minnka rafmagnsnotkun. ● Standa, ásamt flokknum/sveitinni, fyrir hreinsunarátaki þar sem þið safnið rusli einhvers staðar úti eða hjá einhverju fyrirtæki og gefið eða seljið allt sem er nýtilegt. ● Kynntu þér umhverfismerkin á mismunandi vörum með flokknum/sveitinni þinni og foringja. Lærðu þrjú algengustu merkin og hvað þau standa fyrir. Að auki þarftu að kunna skil á eftirfarandi: ● Vita hvað verður um ruslið eftir að þú hefur sett það í rétta flokkunartunnu. ● Vita hvar í nágrenni þínu er hægt að kaupa notaða hluti og ræða við flokkinn/sveitina þína um hvað af því sem hægt er að kaupa sé við hæfi að nota aftur, t.d. föt, húsgögn, íþróttabúnað, tjöld, leikföng, mataráhöld, gleraugu. ● Kynntu þér um hve langan veg þarf að flytja matvæli áður en þau koma í matvörubúðina í nágrenni þínu og hvaða áhrif það hefur á það hvaða mat þú velur að kaupa. ● Kynntu þér hversu mikið af náttúruauðlindum (t.d. rafmagn eða vatn) þarf til að framleiða tilteknar vörur, t.d. mat, föt eða rafmagnstæki, og ræddu við flokkinn/sveitina þína um hvernig þið getið haft áhrif á það hvaða vörur þið notið í dag.