Binda

Um færnimerkið

“Binda” er framhald á færnimerkingu „Hnýta“. Hér æfirðu þig í að leysa þrautir og hvernig má nota snæri/reipi á fjölbreyttan og skemmtilegan hátt.

Kröfur

Reynir á ● Lausnaleit ● Líkamleg áskorun ● Hugmyndaflug og sköpun. Til að fá færnimerkið „Binda“ þarftu að þekkja til og geta sýnt flokknum þínum og foringja eftirfarandi: ● Geta hnýtt fimm ólíka hnúta, notað þá til að leysa alvöru verkefni og vita við hvaða tilefni hvaða hnútur hentar best. ● Þekkja ólíkar tegundir af snæri og reipi og vita við hvaða tilefni er gott að nota hvaða tegund. ● Kunna að búa til talíu og nota hana til að lyfta, draga eða spenna eitthvað upp.