Alheimsmót 2027

26. alheimsmót skáta í Póllandi 2027

Alheimsmót skáta 2027
30. júlí - 8. ágúst 2027

Alheimsmót skáta er einn stærsti viðburður alþjóðlegrar skátahreyfingar þar sem þúsundir ungmenna frá öllum heimshornum sameinast í eina tjaldbúð. Mótið fer yfirleitt fram á fjögurra ára fresti og skiptast skátabandalög heimsbandalagsins WOSM á að vera gestgjafar. Á mótinu upplifa skátarnir samstöðu, ævintýri, frið og ólíka menningarheima ásamt því að fá tækifæri til að taka þátt í fjölbreyttri dagskrá sem stuðlar að persónulegum þroska skátans, leiðtogafærni og borgaravitund. Á þessari síðu mun helstu upplýsingum um mótið vera safnað saman.


Hér er hægt að nálgast allar helstu upplýsingar um mótið á opinberri heimasíðu mótsins. 

Days
Hours
Minutes
Seconds
Niðurtalningu lokið!

Helstu dagsetningar:

27. júlí 2027 - IST hópurinn flýgur út

29. júlí 2027 - Aðalhópurinn flýgur út

30. júlí 2027 - Mótssetning

8. ágúst 2027 - Mótsslit

9.-13. ágúst 2027 - Eftirmótsupplifun í Kraká

Wyspa Sobieszewska

50.000 skátar frá 140 löndum

180 íslenskir þátttakendur
104 foringjar og sjálfboðaliðar

5 skátasveitir

36 skátar í hverri sveit

4 sveitarforingjar

  • Skráning

    Hægt er að skrá sig á biðlista með því að ýta á bláa hnappinn hér að neðan


    Þátttakendur á alheimsmóti verða vera á aldrinum 14 – 17 ára þegar mótið byrjar 30. júlí 2027 (fædd á bilinu 30. júlí 2009 – 30. júlí 2013).



    Níu skátum er raðað saman í einn skátaflokk með einum foringja og fjórir flokkar saman mynda eina sveit.


    Íslenski fararhópurinn mun fara út með 5 sveitir og því einungis 180 pláss fyrir íslenska þátttakendur. Fararhópurinn mun hittast fyrir ferðina á undirbúningsfundum og í sveitarútilegum þar sem hópnum er hristað saman og einnig verður farið yfir ferðalagið og dagskrá mótsins til að undirbúa þátttakendurna sem best.



    Skilyrði fyrir þátttakendur

    • Vera orðin 14 ára og ekki orðin 18 ára þegar mótið hefst, 30. júlí 2027
    • Hafa farið á a.m.k. fjögurra nátta skátaviðburð og gist í tjaldi allan tímann
    • Hafa unnið sér inn færnimerki sem tengjast: Skyndihjálp, hnífur, útieldun
    • Vegna víðáttumikils mótsvæðis þarf þátttakandi að vera í góðu líkamlegu formi og geta fengið a.m.k. 10 kílómetra á dag (nema ef um sérstök frávik er að ræða)
    • Meðmæli frá sveitarforingja og einum úr félagaþrennunni þar sem hún er starfandi í félaginu, annars félagsforingja
    • Góð heilsa þar sem að á mótinu er mikil útivera og dagskrá sem krefst mikillar hreyfingar í +25°C hita og því mikilvægt að þátttakendur séu líkamlega hraustir
    • Þekki skátalögin og geti haft þau að leiðarljósi í allri vegferðinni í kringum mótið og í samskiptum við aðra.
    • Hafa kynnt sér siðareglur Æskulýðsvettvangsins
    • Hafa kynnt sér samskipta – og siðareglur þátttakanda mótsins sem allir þátttakendur þurfa að lesa yfir og samþykkja áður en þau fara á mótið
    • Hafa kynnt sér 2. grein reglugerðar Bandalags íslenskra skáta um utanferðir skáta.
    • Taka þátt í undirbúningsfundum og/eða útilegum sveitarinnar og fararhópsins til að tryggja að þátttakandi sé vel upplýstur og undirbúinn fyrir ferðina t.d.: Hittingur fararhópsins á Landsmóti skáta á Hömrum 2026, Sveitarútilegur, Undirbúningsfundir sveitarinnar
    • Geta borið allan farangurinn sinn í einum bakpoka (18-20 kg) með minni dagspoka í u.þ.b. 30 mínútur (möguleg ganga frá rútunni að tjaldsvæðinu)
    • Hafa andlega burði til að búa þétt við frumstæðar aðstæður í fjölbreyttri mannflóru og miklu áreiti í þrjár vikur fjarri foreldrum/forráðafólki
    • Hafa jákvætt viðhorf gagnvart nýjum reynslum, ólíkum menningarheimum og að kynna íslenskt skátastarf á alþjóðlegum vettvangi

    Verð fyrir þátttakendur

    572.000,- kr ISK


    Innifalið í verði:

    • Þátttökugjöld til mótsins - 224.000,-
    • Eftirmótsupplifun í Kraká - 110.500,-
    • Einkenni - 32.000,-
    • Annar kostnaður - 205.500,- 
    • Sameiginlegur búnaður og flutningur búnaðar til og frá móti t.d. tjöld fyrir allan fararhópinn, sem hefur ekki verið síðustu mót
    • Sveitarstarf fyrir mót
    • Fararstjórn og undirbúningsferðir fararstjóra til Póllands
    • Skrifstofu- og ófyrirséður kostnaður
    Skrá á biðlista
  • Undirbúningur fyrir brottför

    Ferðaskjöl

    Þegar barn undir 18 ára aldri ferðast milli landa án fylgdar beggja forsjáraðila geta landamærayfirvöld krafist sönnunar þess að barnið hafi leyfi þeirra til að ferðast.

    Annars getur barnið átt hættu á að tefjast eða vera synjað um komu eða brottför. Öllum ólögráða skátum verður sent skjal til þess að fylla út fyrir brottför. 


    Vegabréf

    Skátarnir þurfa að vera með vegabréf sem gildir að lágmarki í  6 mánuði fyrir heimför í ágúst 2027. Ef þið þurfið að endurnýja vegabréfið ykkar þá mælum við með því að gera það með góðum fyrirvara. 


    Bólusetningar

    Skátarnir þurfa að senda velferðarteyminu bólusetningarvottorð þar sem eftirfarandi bólusetningar koma fram:

    • Mislingar, hettusótt, rauðir hundar (MMR)
    • Mænusótt, stífkrampi 
    • TBE – Tick Born Encephalitis.  

    Mælt með en ekki krafa: 

    • Lifrarbólga A og B

    Búnaður

    Ítarlegur útbúnaðarlisti mun koma þegar nær dregur en það er þá ýmislegt sem er vitað að skátarnir þurfa að hafa með sér. T.d.

    • Skátaskyrta með viðeigandi grunnmerkjum (alþjóðlegubandalögunum WAGGGS og WOSM) - Við ferðumst á mótið og heim aftur í skátaskyrtu
    • Hátíðarklútur - Við ferðumst á mótið og heim aftur með hátíðarklút, ef skátarnir vilja skipta hátíðarklút er gott að gera ráð fyrir að eiga einn auka til að ferðast með heim. 
    • Handfarangursbakpoki - við ferðumst öll með eins handfarangurbakpoka
    • Svartur duffelbag - við ferðumst öll með búnaðinn okkar í eins duffelbag
  • Sveitirnar

    Við munum fara með fjóra og hálfa sveit út á Alheimsmót skáta 2027. Í hverri heilli sveit eru 36 skátar og 4 foringjar samtals 40 skátar. 20 skátar í hálfu sveitinni, 17 skátar og 3 foringjar.


    Sveitirnar eru:


    Keilir - gulur

    Félögin í Keili eru 

    • Hraunbúar 
    • Landnemar

    Foringjar:

    • Erna Mjöll - Hraunbúar
    • Harpa Hrönn - Hraunbúar
    • Harpa Kolbrún - Hraunbúar 
    • Siggi Úlla - Landnemar

    Laki - rauður

    Félögin í Laka eru:

    • Mosverjar
    • Faxi
    • Vífill
    • Skjöldungar
    • Garðbúar

    Foringjar:

    • Kiddi - Stígandi
    • Sædís Erla - Mosverjar
    • Matta - Mosverjar 
    • Bengta - Mosverjar

    Hengill- grænn

    Félögin í Laka eru:

    • Skjöldungar
    • Hraunbúar
    • Kópar
    • Fossbúar

    Foringjar:

    • Hanna Greta - Skjöldungar
    • Margrét Unnur - Skjöldungar
    • Valur Kári - Skjöldungar
    • Arney Sif - Skjöldungar

    Askja - blár

    Félögin í Öskju eru:

    • Klakkur
    • Ægisbúar
    • Árbúar

    Foringjar:

    • Anna - Klakkur
    • Valdís - Klakkur
    • Helgi Valur - Klakkur
    • Sigrún - Klakkur

    Hekla - fjólublár

    Félögin í Heklu eru:

    • Heiðabúar
    • Landnemar
    • Árbúar
    • Vífill

    Foringjar:

    • Pálína - Landnemar
    • Jakob - Hraunbúar
    • Sandra - Heiðabúar

    Hekla blandast síðan hálfri sveit frá Lúxemborg


  • Siðareglur þátttakenda

    Hér má finna siðreglur þátttakenda Alheimsmóts 2027

    Siðareglur þátttakenda
  • Velferðarteymi

    í velferðateyminu eru Guðrún Stefánsdóttir hjúkrunarfræðingur, Hrólfur Brynjarsson læknir, Ingibjörg Guðmundsdóttir kennari og Ásgerður Inga Stefánsdóttir kennari.


    Það er aldrei langt í hjálpina! Guðrún og Hrólfur eru í öllum Abler spjallhópum sveitanna og má hvenær sem er senda þeim línu ef spurningar vakna varðandi málefni sem tengjast velferðarteyminu.


    Hér má finna heilsufarskönnun sem allir í fararhópnum þurfa að svara:

    Heilsufarsskýrsla

Dirfska (e. braverly) er þema 26. alheimsmóts skáta og markmiðið með því er að hvetja ungt fólk til að sýna hugrekki í þágu framtíðar mannkynsins og plánetunnar.


Ungt fólk getur verið öðrum fyrirmynd með því að standa fyrir því sem það trúir á og hvetja til jákvæðra breytinga. Skátastarf getur valdeflt ungt fólk til þess að kynnast eigin styrkleikum og veikleikum og stuðlað að eigin þroska, ásamt því að efla eigin sjálfsvitund og þrautseigju og styrkja jafnvægið á milli náttúrunnar, tækninnar og andlegrar vellíðunnar. Skátar geta tekið frumkvæðið og stigið djörf skref inn í framtíðina.

Ungu fólki dreymir um betri framtíð fyrir samfélög sín og mörg upplifa sterka ábyrgð gagnvart heiminum í kringum sig.

Fullorðnir ættu að styðja við, hvetja, styrkja og veita ungmennum svigrúm í að uppgötva eigin möguleika og gera drauma sína að veruleika. Að ungmennin geti tjáð sig hátt og með hugrekki, að þau séu örugg í að dreyma stórt og taka til verka í takti við eigin sannfæringu. Að ungmennin geti lært af mistökum og fagnað sigrunum. Við eigum að gera okkar besta til að styðja þau í þessari vegferð og tryggja að þau finni sig ekki ein á meðan þau kanna og finna sína eigin leið.

Við viljum að 26. Alheimsmót skáta verði vettvangur sem hvetur ungt fólk til að sýna djörfung og bregðast við af kjarki fyrir hönd okkar allra og jarðarinnar.

Nú er tíminn kominn fyrir skáta til að vera breytingin, taka frumkvæðið og stíga fram með hugrekki. Við viljum hvetja ungt fólk til að fara út fyrir þægindarammann og taka virkan þátt í mikilvægum umræðum. Skátar munu læra að hlúa að eigin vellíðan. Við sjáum fyrir okkur jamboree sem veitir innblástur en hjálpar einnig ungu fólki að finna jafnvægi í sjálfu sér og læra að hugsa um andlega heilsu sína.


Þema mótsins

Kynningarmyndband frá mótinu